Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 59
Bergur er annar handritshöfundur myndarinnar og Kristófer mun leikstýra en á myndina vantar Guðmund sem einnig skrifar handritið.
Fréttablaðið/GVA
„Sagan fjallar um unga vini, Björn
og Jórunni, sem lenda í hremmingum
þegar forn sáttmáli manns við náttúr-
una er rofinn og það fer í gang atburða-
rás sem stefnir landi og þjóð í hættu og
þau eru eina fólkið sem er með lykilinn
að þessari gátu,“ segir Kristófer um
söguþráðinn.
„Björn vaknar upp einn morguninn
með horn á höfðinu og þau fara að
reyna að átta sig á því hvernig hann
losnar við þau og þau átta sig á því að
þau þurfa að leysa úr þessum náttúru-
sáttmála,“ segir Kristófer en við það að
sáttmálinn er rofinn vakna alls kyns
vættir úr dvala og valda talsverðum usla.
Kristófer segir þá félaga að vonum
sátta við styrkinn og nú fari önnur
vinna á fullt skrið.
„Handritið er komið á fullt, af því að
við fengum grænt ljós. Það eru margir
sem sækja um og ekki margir sem fá
þannig að við erum mjög sáttir,“ segir
hann. Eftir er að finna leikara til þess að
fara með hlutverk í myndinni.
„Mesta áskorunin er að finna krakk-
ana, það vegur mest og þyngst. Þau
verða í öllum senum í myndinni.“ Hann
hefur þó reynslu af því að leikstýra
krökkum en hann leikstýrði sjónvarps-
þáttunum Fólkið í blokkinni og hefur
ástríðu fyrir því að búa til vandað efni
fyrir yngri kynslóðina. „Ég brenn svo-
lítið fyrir því að gera efni fyrir yngstu
kynslóðina og sinna henni.“
gydaloa@frettabladid.is
Trendið
Hneppt
hnossgæti
Afturhvarf tískunnar til sjöunda
áratugar síðustu aldar á sér
engin takmörk um þessar
mundir, og nú er heitasta heitt
að skarta svokölluðum A-línu-
pilsum, sem hneppt eru alla
leið niður. Við pilsin er afar
lekkert að klæðast háum stíg-
vélum, rúskinns jafnvel eins og
kom fram í síðasta Trendkafla
Fréttablaðsins.
Rúskinnið
sjaldan eins og
heitt og núna.
Gallapilsin eru
klæðileg.
Top Shop valdi þetta hneppta pils á
sína tískupalla.
Vintage pils eiga sérlega mikið upp á
pallborðið, enda töluvert afturhvarf til
fortíðar. Allir í skápana hjá mömmu.
B A R Á T T A N G E G N K R A B B A M E I N I
Fjöður sem vegur þungt
Kauptu Bláu fjöðrina – til stuðnings rannsóknum á bættri greiningu krabbameins.
Með kaupum á Bláu fjöðrinni leggurðu þitt af mörkum til
stuðnings rannsóknum á bættri greiningu krabbameins.
Afrakstur landssöfnunarinnar verður notaður til kaupa
á tækjum sem bæta greiningu krabbameins.
Mælingar á kjarnsýrum
Kjarnsýrur, bæði DNA og RNA, losna frá líffærum út í líkamsvökva. Magn kjarn
sýranna og gerð þeirra endurspeglar heilsu einstaklingsins. Vonir eru bundnar við
að nota megi mælingar á kjarnsýrum í blóði og þvagi til að skima fyrir margvíslegum
sjúkdómum, til sjúkdómsgreininga og til að fylgja eftir meðferð. Vonir standa til að
mögulegt verði að nota þessi próf í rannsóknaskyni til að berjast gegn krabbameini.
Vitað er að stökkbreytingar í erfðaefni meinsins valda sjúkdómum og þessar stökk
breytingar eru einmitt greinanlegar í líkamsvökvum.
Blái naglinn og Landsspítalinn
Landssöfnunin Fjöður sem vegur þungt er samstarfsverkefni Bláa naglans og Erfða
og sameindalæknisfræðideildar Landspítalans til að byggja upp fullnægjandi aðstöðu
til rannsókna á kjarnsýrum í líkamsvökva.
Þetta er í fyrsta sinn sem Birgitta
gefur út bók. „Ég vissi ekki alveg hvað
ég var að fara út í en ákvað bara að
dýfa mér í djúpu laugina. Ég byrjaði
bara á fyrstu bókinni og það kom
mér á óvart hvað ég hafði gaman af
að skrifa. Ég var með skýra mynd af
því hvernig ég vildi hafa teikning-
arnar og endaði á að fá hæfileikaríka
stelpu frá Armeníu til þess að mynd-
skreyta. Eftir að ég flutti heim fór ég
með hugmyndina og teikningarnar í
Forlagið og þeir voru mjög spenntir
fyrir þessu.“ – gj
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 33M i ð V i K U D A G U R 1 6 . s e p T e M B e R 2 0 1 5
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
6
-0
A
8
0
1
6
4
6
-0
9
4
4
1
6
4
6
-0
8
0
8
1
6
4
6
-0
6
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K