Fréttablaðið - 16.09.2015, Síða 60

Fréttablaðið - 16.09.2015, Síða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is HORFÐU Í GÆÐIN 5 ÁRA ÁBYRGÐ Á ÖLLUM SONY SJÓNVÖRPUM Nýherji / Borgartúni 37 Kaupangi Akureyri netverslun.is Sjáðu stærstu myndina í snjallasta sjónvarpinu 65" – Verð: 369.990 kr. 75" – Verð: 569.990 kr. W85 800 4K Ultra HD upplausn, sjáðu hvert smáatriði í nýju ljósi 43" – Verð: 199.990 kr. 49" – Verð: 239.990 kr. 55" – Verð: 299.990 kr. X8 800 1000 Afburðahönnun og frábær myndgæði frá meisturum Sony 43" – Verð: 149.990 kr. 50" – Verð: 199.990 kr. 55" – Verð: 239.990 kr W80 1000 Íslenskir rétthafar í samstarfi við  helstu fjarskiptafyrirtæki landsins hafa náð samkomulagi um framkvæmd og túlkun  lögbanns þar sem lokað verður á síður sem gera út á ólöglega dreifingu á afþreyingarefni á netinu.  Lögbannið var sett  í Hæstarétti þann 14. október í fyrra, en þá var aðgangi að síðunum Deildu.net og Pirate Bay lokað. „Það mikilvægasta í þessu er kannski það að núna munu fjarskiptafyrirtækin loka á þessar vefsíður burtséð frá því undir hvaða léni þær eru,“ segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEF. Eftir lögbannið í Hæstarétti skiptu aðstandendur Deildu.net um lén strax í kjölfar dómsins. Nú verður nýjum síðum lokað samstundis. „Það sem hefur tekist að gera eftir að málið vannst í Hæstarétti, þar sem var staðfest að það skyldi lagt lögbann á lokun þessara síðna, er að nú erum við búin að gera þetta samkomulag við fjarskiptafyrirtæki um það hvernig beri að framfylgja þessu. Hvernig við ætlum að túlka og framfylgja lögbann- inu,“ segir Guðrún. „Er það ekki markmið allra að útrýma öllum glæpum úr þjóð- félaginu? Ég held að við lítum alveg raunsætt á stöðuna. Allir sem starfa í þessum bransa gera sér grein fyrir að okkur mun aldrei takast að loka öllum þessum síðum um ókomna tíð. En við getum gert það aðeins erfið- ara,“ segir hún, þegar hún er spurð að því hvort markmiðið sé að koma alfarið í veg fyrir ólöglegt niðurhal og bætir við að  rétthafasamtökin líti á lögbannsaðgerðirnar sem illa nauðsyn. Í dag eru í boði leiðir til þess að nálgast dagskrárefni innlendra sjón- varpsstöðva og geta notendur með þeim sótt dagskrárefni á þeim tíma og stað sem hentar hverjum og einum. Notkun á slíkri þjónustu hefur aukist um tæp 300% frá árinu 2011 þegar þjónustan var tekin upp og einn- ig hafa þjónustur á borð við Netflix verið að ryðja sér til rúms hérlendis á undanförnum árum. Nokkrar löglegar tónlistarveitur eru hér á landi, og er Spotify sú stærsta en talsvert hefur verið fjallað um að tónlistarmenn fái ekki nógu mikið greitt fyrir streymi af efni sínu inn á slíkum veitum. „Það má ræða það hvort listamenn séu að fá nægilega mikið greitt frá þessum tónlistarveitum. Svo sannar- lega vildi maður sjá hærri greiðslur en það hefur þó allavega breytt landslag- inu þannig að þeir eru að fá eitthvað greitt. Þetta er ekki lengur bara einn stór sjóræningjamarkaður heldur er komið einhvers konar viðskipta- módel sem hægt er að vinna með og mun kannski hafa meiri tekjumögu- leika í för með sér.“ Guðrún segir samkomulagið vera skref í baráttunni gegn ólög- legri dreifingu á afþreyingarefni og þessar löglegu tónlistarveitur á borð við Tónlist.is og Spotify bjóði upp á aðgengi að löglegu afþreyingarefni á netinu. Margt hafi breyst til batnaðar á undanförnum árum og rétt- hafasamtökin láti engan bilbug á sér finna. „Við ætlum ekkert að gefast upp í þessari baráttu gegn þessum vef- síðum sem dæmdar eru ólöglegar.“ Loka á vefsíðurnar óháð hýsingu þeirra Héraðsdómur úrskurðaði þann 14. október 2014 að loka skyldi aðgangi að síðunum Deildu. net og Pirate Bay. Var þetta í fyrsta sinn sem íslensk fjarskiptafyrirtæki loka á vefsíður vegna höfundarréttar. Deildu.net opnaði samdægurs vefsíðu á öðru léni. Í kjölfar samkomulagsins sem náðst hefur á milli rétthafanna, STEF, SFH, SÍK og FRÍSK og helstu fjarskiptafyrirtækja landsins munu fjarskiptafyrirtækin loka á vefsíðurnar óháð því undir hvaða léni síðan er hýst. Leiðum til þess að ná löglega í afþreyingarefni hefur fjölgað og hægt er að kynna sér þær inni á Tonlistogmyndir. is Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri STEF Rétthafasamtök hafa náð samkomulagi við helstu fjarskiptafyrir- tæki landsins um hvernig lögbannið verði túlkað og því framfylgt. Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is Er það Ekki markmið aLLra að útrýma öLLum gLæpum úr þjóðféLag- inu? Við ætLum EkkErt að gEfast upp í þEss- ari baráttu gEgn þEssum VEfsíðum sEm dæmdar Eru óLögLEgar. 1 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U D A G U r34 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 6 -0 5 9 0 1 6 4 6 -0 4 5 4 1 6 4 6 -0 3 1 8 1 6 4 6 -0 1 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.