Fréttablaðið - 04.05.2015, Side 54

Fréttablaðið - 04.05.2015, Side 54
4. maí 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 34 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is RISA LAGER SALA BÍLDSHÖFÐA 9 BÍLANAUSTSHÚSIÐ OPNUNARTÍMI: LAU. 1100–1700, SUN. 1300–1700, MÁN.–FÖS. 1200–1800 EIN STÆRSTA LAGERSALA FYRR OG SÍÐAR Á ÍSLANDI EKKI MISSA AF ÞESSU! AÐEINS Í NOKKRA DAGA! AFSLÁTTUR Leggur grunn að góðum degi – fyrir lifandi heimili – „Eftir að hafa starfað saman í ellefu ár er verulega gaman að finna áþreifanlegan árangur þarna úti,“ segir Katarína Mogen- sen, söngkona sveit arinnar Mammút sem nýbúin er að skrifa undir samning við breska plötu- fyrirtækið Bella Union. Stór nöfn á borð við Fleet Foxes, The Flaming Lips og John Grant eru á meðal skjólstæðinga útgáfunnar. „Við erum að fara í samstarf við þessa stóru, sjálfstæðu plötu- útgáfu og munum í framhaldinu senda frá okkur smáskífu 1. júní næstkomandi,“ útskýrir hún. „Við stefnum svo á að fara í stúdíó til að taka upp heila plötu í nóvember sem mun svo koma út í janúar 2016,“ segir söngkonan. Segir Katarína hljómsveitina sitja sveitta við að semja fyrir plötuna um þessar mundir. „Ég myndi segja að platan verði rök- rétt framhald af síðustu plötunni okkar, Komdu svarta systir, sem kom út 2013,“ segir Katarína. Hún segir tækifærið frábært fyrir sveitina og að sveitin muni taka þetta eins langt og mögulegt er með því að einblína á erlendan markað, en breiðskífan mun koma út í Norður-Ameríku og Evrópu. „Við munum fókusera á Evrópu á næstu mánuðum og svo tekur Norður-Ameríka við með haust- inu.“ Hljómsveitin mun koma fram á fjölda tónleikafestivala í sumar og er þegar komin á flug, þar sem hún eyddi helginni í Árósum og tróð upp á SPOT-festivalinu. Næst verður svo herjað á Les Nuits Botanique-tónlistarveisl- una í Brussel. „Við munum svo eyða dágóðum tíma í Þýskalandi og Bretlandi í sumar og koma fram á ýmiss konar tónleikum þar.“ „Við erum gríðarspennt fyrir þessu, en það sannast að þetta mjakast allt saman með góðu fólki,“ segir Katarína í lokin. gudrun@frettabladid.is Mammút skrifar undir hjá útgáfurisa Íslenska hljómsveitin Mammút hefur skrifað undir útgáfusamning hjá breska plötufyrirtækinu Bella Union, sem gefur meðal annars út tónlist Johns Grant. STÓRT TÆKIFÆRI Meðlimir hljómsveitarinnar sitja nú við skrif á efni fyrir nýja plötu. MYND/ RONJA MOGENSEN 2004 Sigruðu Músíktilraunir. 2005 Spila fyrst á Airwaves og spila þar því í tíunda skiptið í ár. 2006 Hituðu upp fyrir dEUS á Íslandi og í Þýskalandi. 2006 David Fricke fjallaði um sveitina í Rolling Stone. 2006 Fyrsta platan, Mammút, kemur út. 2008 Önnur platan, Karkara, kom út. 2009 Evróputúr. 2010 Evróputúr. 2012 Hituðu upp fyrir Of Monster And Man í Hljómskálagarðinum. 2013 Þriðja platan, Komdu til mín svarta systir, kom út og var valin besta plata ársins í öllum helstu fjölmiðlum landsins. 2014 Spila með Portishead, Massive Attack, Patti Smith, Björk og Lykke Li á íslenskum hátíðum. 2015 Skrifa undir samning við Bella Union. ➜ Ferillinn í nokkrum punktum Besti morgunmaturinn eru hveiti- lausu banana- og hnetusmjörs- pönnukökurnar með rifsberjum og kókosjógúrti þegar ég nenni að búa þær til. Heiða Rún Sigurðardóttir leikkona. MORGUNMATURINN „Þetta er alveg frábært, ég er ekki að trúa þessu! Tónleikar með Ásgeir Trausta í heimalandi hans, þetta var eitt af því sem ég ætlaði mér að gera í lífinu,“ segir hin franska Eva Lucas. Hún datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar hún var dregin út í leik á Facebook-síðu Ásgeirs. Þar höfðu 14.200 útlendingar skráð sig í leikinn, þar sem verð- launin voru flug til Íslands, gisting á hóteli og miðar fyrir tvo á tónleika Ásgeirs Trausta í Hörpu 16. júní. Eva var í skýjunum þegar umboðsmaður Ásgeirs tilkynnti henni gleðitíðindin. Þetta verður í fyrsta sinn sem hún heimsækir landið, en hún er búsett í Anglet í Frakk- landi. „Ég hef aldrei komið til Íslands áður og heldur aldrei séð Ásgeir á tónleikum, svo þetta verður í fyrsta sinn sem ég geri hvoru- tveggja.“ Eva er mikill aðdáandi Ásgeirs og ætlar að taka bestu vinkonu sína með á tónleikana, sem einmitt kynnti hana fyrir tónlist Ásgeirs. Þær vinkonurnar fá svo sannarlega íslenska tónlistarveislu, þar sem ljóst er að hljómsveitin Vök hitar upp fyrir tónleikana, en sveitin hefur slegið í gegn síðan hún sigr- aði Músíktilraunir árið 2013. -asi Getur ekki beðið eft ir að sjá Ásgeir á Íslandi Eva Lucas vann ferð til Íslands og miða á tónleika Ásgeirs Trausta í Hörpu þann 16. júní. Í SKÝJUNUM Eva var himinlifandi þegar hún frétti að hún hefði unnið keppnina. Staðfest hefur verið að rappar- inn Gísli Pálmi hljóti þann heiður að vera einn þeirra sem hita upp fyrir bræðurna í Rae Sremmurd á tónleikum þeirra í Laugardals- höllinni 27. ágúst. „Þess- ir bræður eru að gera mjög skemmtilega hluti og eru í smá uppáhaldi þessa dagana,“ segir Gísli spurður hvort hann sé ekki spenntur að hita upp fyrir þá. „Það er mikil upp- sveifla í hipphoppi í dag og þeir eru mjög áberandi í augnablikinu,“ bætir hann við. Bræðurnir njóta gríðar- legra vinsælda í dag og eru á hraðri uppleið. Til að mynda tróðu þeir óvænt upp á tónlistarhátíðinni Coachella í apríl, þegar þeir komu á svið hjá plötusnúðnum DJ Snake ásamt rapparanum DMX við gríðar- legan fögnuð áhorfenda. Því má búast við hipp- hoppfestivali í Laugar- dagshöllinni í sumar. -asi Gísli Pálmi hitar upp í höllinni Rapparinn Gísli Pálmi hitar upp fyrir bræðurna í Rae Sremmurd í sumar. STOLTUR Gísli er spenntur fyrir að fá að hita upp fyrir bræðurna.RAE SREMMURD Annar bróðirinn. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -7 7 B C 1 6 3 8 -7 6 8 0 1 6 3 8 -7 5 4 4 1 6 3 8 -7 4 0 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.