Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 23
Morgunblaðið/G.Rúnar
Arður Hátt eigið fé skráðra félaga.
Samtals hafa félögin sem skráð eru á
aðallista Kauphallarinnar greitt
hluthöfum sínum liðlega 20 milljarða
króna það sem af er þessu ári. Þess-
ar greiðslur skiptast þannig að 12
milljarðar voru greiddir hluthöfum í
arð vegna afkomu síðasta árs, N1
færði niður hlutafé og greiddi út eig-
ið fé fyrir 3,9 milljarða og Össur
keypti eigin bréf fyrir 3,6 milljarða
króna. Þá hafa TM, VÍS og Vodafone
keypt eigin bréf fyrir samtals 1 millj-
arð króna. Þetta kemur fram í Mark-
aðspunktum Arion banka.
Greiðslur til hluthafa samsvara
4,6% af markaðsvirði félaganna, þeg-
ar tekið er tillit til þess að einungis
35% hlutafjár í Össuri eru í viðskipt-
um á íslenskum markaði. Þetta er
mjög hátt hlutfall í alþjóðlegu sam-
hengi og bendir Arion banki á að
leita þurfi 30 ár aftur í tímann til
þess að finna arðgreiðsluhlutfall yfir
4% í Bandaríkjunum.
Háar arðgreiðslur má skýra með
góðri afkomu félaganna, fáum vaxt-
artækifærum og góðri fjárhagsstöðu
fyrirtækja um þessar mundir, að
sögn Arion banka. Því til staðfest-
ingar er bent á að eiginfjárhlutfall
skráðra rekstrarfélaga, þ.e. annarra
en trygginga- og fasteignafélaga, sé
54%. Miðað við núverandi fjárhags-
stöðu og arðgreiðslustefnu sé líklegt
að framhald verði á myndarlegum
arðgreiðslum skráðra félaga.
Hafa greitt hluthöfum 20 milljarða
Líklegt að skráð félög greiði áfram háan arð í ljósi fjárhagsstöðu og arðgreiðslustefnu
FRÉTTIR 23Viðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_5
0.
11
.1
4
Veit á vandaða lausn
Hörðu pakkarnir
• frá Dualit •
Við undirbúning í eldhúsi og við matreiðslu er fátt betra en að vinna með vönduð og
góð tæki. Dualit tækin eru ekki einungis vönduð og traust heldur eru þau líka fallega
hönnuð sem eykur enn á ánægjuna við að vinna með þau. Kynntu þér breiða vörulínu
Dualit í verslun Fastus í Síðumúla 16. Dualit vörurnar eru margverðlaunaðar og hafa
fengið m.a. stimpilinn frá Good Housekeeping Institute.
Handþeytari
• kraftmikill 400W
• margir aukahlutir
• auðvelt að þrífa
Kr. 16.900,-
Brauðrist
• 2 brauðsneiðar
• auðvelt að þrífa
• tímastillir
Kr. 32.944,-
Töfrasproti
• kraftmikill 700W
• 6-blaða hnífur
• margir aukahlutir
Kr. 19.453,-
Hraðsuðuketill
• 1,7l
• snúrulaus ketill
• ryðfrítt stál
Kr. 20.331,-
Mjólkurfreyðir
• köld og heit froða
• ryðfrítt stál
• auðvelt að þrífa
Kr. 18.198,-
Ferðamönnum
hefur farið fjölg-
andi samfellt í 50
mánuði í röð, eða
allt frá því í októ-
ber árið 2010, að
því er fram kem-
ur í Morgunkorni
Íslandsbanka.
Samkvæmt töl-
um Ferða-
málastofu fóru í
nóvember 61 þúsund erlendir
ferðamenn frá landinu, sem er 31%
fleiri en í sama mánuði í fyrra. Alls
voru brottfarir erlendra ferða-
manna 915 þúsund á fyrstu 11 mán-
uðum ársins, en brottfarir Íslend-
inga voru 372 þúsund.
Ferðamannajöfnuður, það er fjöldi
brottfara ferðamanna umfram
fjölda brottfara Íslendinga, nemur
um 544 þúsund fyrstu 11 mánuðina.
Til samanburðar var árin 2006 og
2007 ferðamannajöfnuður í halla
upp á 25 til 27 þúsund.
Samfelld
fjölgun í
50 mánuði
Á ferð Enn fjölgar
ferðamönnum.
Seðlabankinn hefur sett reglur um
fjármögnunarhlutfall viðskipta-
banka í erlendum gjaldmiðlum,
sem er ætlað að tryggja lágmark
stöðugrar fjármögnunar í erlend-
um gjaldmiðlum til eins árs. Hlut-
fallið takmarkar því að hve miklu
leyti viðskiptabankar geta reitt sig
á óstöðuga skammtímafjármögnun
til þess að fjármagna langtíma-
útlán í erlendum gjaldmiðlum.
Í ljósi reynslunnar telur Seðla-
bankinn mikilvægt að draga úr
áhættu sem kann að myndast
vegna óhóflegs tímamisræmis milli
eigna og skulda viðskiptabanka
með því að takmarka tímamisræmi
í erlendum gjaldmiðlum sérstak-
lega. Er það sérlega brýnt í að-
draganda losunar fjármagnshafta,
segir í frétt Seðlabankans.
Á næsta ári áformar Seðlabank-
inn að innleiða reglur um hlutfall
fjármögnunar í erlendum gjald-
miðlum sem taka til allt að þriggja
ára.
Nýjar regl-
ur um fjár-
mögnun
Samtök iðnaðar-
ins hafa farið
þess á leit við
Fjármálaeft-
irlitið að það
beini þeim til-
mælum til Lýs-
ingar að virða
niðurstöður dóm-
stóla um það
hvernig haga skuli endur-
útreikningum á kaupleigusamn-
ingum er hafa að geyma ólögmæta
gengistryggingu. SI munu hafa án
árangurs óskað eftir svörum frá
Lýsingu um hvort fyrirtækið hygg-
ist viðurkenna fordæmisgildi dóms
frá í nóvember um að Lýsingu beri
að leiðrétta kaupleigusamninga
sem Eykt ehf. gerði við fyrirtækið.
Félagsmenn SI, sem óskað hafa eft-
ir svörum varðandi sín mál hjá Lýs-
ingu, hafi fengið þau viðbrögð að
fyrirtækið telji dóminn ekki vera
fordæmisgefandi fyrir aðra kaup-
leigusamninga fyrirtækisins.
SI leita til
FME vegna
Lýsingar
Lýsing SI vill svör
um fordæmisgildi.
Vilja svör vegna dóms