Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Jólaóratoría BWV 248 eftir Johann
Sebastian Bach verður flutt í Nes-
kirkju í kvöld kl. 19.30 af kór kirkj-
unnar, fjórum einsöngvurum,
Stúlknakór Neskirkju og 20 manna
barokkhljómsveit. Einsöngvarar
verða Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
an, Jóhanna Halldórsdóttir alt, Þor-
björn Rúnarsson tenór og Hrólfur
Sæmundsson barítón. Stjórnandi á
tónleikunum verður Steingrímur
Þórhallsson.
Í tilkynningu segir að jóla-
tónleikarnir í Neskirkju séu sér-
staklega veglegir þetta árið sökum
þess að á þessu ári eru 10 ár liðin
frá því að Steingrímur réðst til
starfa sem organisti við kirkjuna og
tók við stjórn kórsins.
Jólaóratoría Bachs
flutt í Neskirkju
Organistinn Steingrímur Þórhallsson.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Kammersveitin heldur alltaf tón-
leika í desember sem við köllum
jólatónleika þó við séum ekki bein-
línis að leika jólatónlist. Á efnis-
skránni er að vanda hátíðleg barokk-
tónlist,“ segir Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari og listrænn stjórnandi
Kammersveitar Reykjavíkur. Í ár
fara tónleikarnir fram 7. desember
kl. 17 í Norðurljósasal Hörpu.
Á efnisskránni eru Concerto
armonico nr. 1 í G-dúr og Concerto
armonico nr. 2 í B-dúr eftir Unico
Willem van Wassenaer, Básúnu-
konsert í Es-dúr eftir Georg Christ-
oph Wagenseil og Fiðlukonsert í g-
moll RV 317, Flautukonsert í F-dúr
RV 453 La tempesta di mare og
L‘Estro Armonico op. 3 nr. 10 í h-
moll RV 580 fyrir 4 fiðlur eftir Ant-
onio Vivaldi.
„Kammersveitin hefur í gegnum
árin lagt áherslu á að bjóða ungu og
framúrskarandi tónlistarfólki sem
nýlega hefur komið heim frá námi að
leika einleik á tónleikum sveit-
arinnar,“ segir Rut, en einleikarar í
ár eru flautuleikarinn Hafdís Vigfús-
dóttir, básúnuleikarinn Carlos Caro
Aguilera og fiðluleikararnir Joaquin
Páll Palomares, Una Sveinbjarnar-
dóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir
og Gunnhildur Daðadóttir. „Það er
mjög skemmtilegt fyrir þau að fá
tækifæri til að spila með hljómsveit.
Við leyfum einleikurunum yfirleitt
að velja verkin sem þau vilja spila,
en þá innan tiltekins ramma sem
verkefnavalsnefndin setur sér.“
Jólatónleikar Kammersveit-
arinnar hafa verið haldnir í Hörpu
síðan tónlistarhúsið var vígt, en
fram að því fóru þeir ávallt fram í
Áskirkju. „Okkar fyrstu tónleikar í
kirkjunni voru í byrjun janúar 1984,
en kirkjan var vígð í lok ársins 1983.
Það hefur mikið verið rætt í okkar
hópi hvort við ættum að vera áfram í
Hörpu eða fara til baka í Áskirkju.
Niðurstaðan er enn að vera í Hörpu,
ekki síst sökum þess að hljómburð-
urinn í Norðurljósum er mjög góður
og Harpa tekur fleiri gesti auk þess
sem fleiri erlendir ferðamenn rata á
tónleika okkar þegar þeir fara fram í
Hörpu. Báðir staðir hafa sína kosti
og sína galla, því Áskirkja er óneit-
anlega miklu jólalegri og fallegri
staður, enda kemst fólk nánast
ósjálfrátt í jólaskap við að leggja leið
sína þangað,“ segir Rut.
Hátíðlegt og grípandi verk
„Ég stakk upp á þessu verki og
verkefnavalsnefndinni fannst það
passa mjög vel inn í heildar-
dagskrána,“ segir Hafdís Vigfús-
dóttir sem leikur einleik í La temp-
esta di mare eftir Vivaldi. „Allir
konsertar Vivaldis fyrir flautuna
eiga það sameiginlegt að vera mjög
skemmtilegir. Þeir eru frekar stutt-
ir, en glaðlegir og grípandi. Það er
mjög gaman að spila þessa tónlist,
enda er hún bæði hátíðleg og hress,“
segir Hafdís og tekur fram að gam-
an sé að koma fram sem einleikari
með hljómsveit. „Það er ekki á
hverjum degi sem maður fær tæki-
færi til að leika einleik með hljóm-
sveit.“
Hafdís flutti heim til Íslands fyrir
rúmu ári eftir átta ára dvöl við fram-
haldsnám, fyrst við Konservatoríið
Rueil-Malmaison í Frakklandi, síðan
Konunglega konservatoríið í Den
Haag í Hollandi, í og loks Tónlist-
arháskólann í Ósló. Aðspurð segist
hún hafa byrjað í tónlistarnámi fjög-
urra ára gömul, en fyrst farið að
spila á flautu sjö ára. „Ég var fyrst
sett á blokkflautu eins og margir
þegar þeir byrja, en lék mér oft að
því að snúa henni á hlið. Þannig að
það var aldrei vafi í mínum huga
hvaða hljóðfæri ég vildi leika á í
framtíðinni.“
Liggur vel fyrir fiðluna
„Það er ekki oft í boði að spila ein-
leik með hljómsveit og því grípur
maður eðlilega tækifærið þegar það
gefst,“ segir Gunnhildur Daðadóttir
sem leikur einleik ásamt þremur
öðrum fiðluleikurum í L‘Estro
Armonico eftir Vivaldi. Tónskáldið
var sjálft afburðasnjall fiðluleikari
og samdi um 230 fiðlukonserta um
ævina, og því liggur beint við að
spyrja Gunnhildi hvort verkið sé vel
samið fyrir einleikshljóðfærið. „Já,
öll einleiksverk Vivaldis fyrir fiðluna
eiga það sameiginlegt að þau liggja
vel fyrir hljóðfærið,“ segir Gunn-
hildur.
Aðspurð segir Gunnhildur helstu
áskorunina við flutning verksins fel-
ast í því að einleikararnir fjórir stilli
saman strengi sína í túlkun verksins.
„Við þurfum að samræma hug-
myndir og komast að samkomulagi
um það hvernig við ætlum að túlka
verkið í sameiningu. Það hafa allir
sína skoðun og því þarf að gera
ákveðnar málamiðlanir í leitinni að
heildartúlkun verksins.“ Gunnhildur
flutti heim til Íslands fyrir tveimur
árum eftir framhaldsnám við
Listaháskólann í Lahti í Finnlandi,
Illinois-háskóla og Michigan-háskóla
í Bandaríkjunum. Hún situr í sæti
leiðara annarrar fiðlu í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Allar nánari upplýsingar um
efnisskrána og einleikarana má
finna á harpa.is en þar er einnig
hægt að nálgast miða.
„Maður grípur tækifærið“
Morgunblaðið/Golli
Einleikarar Joaquin Páll Palomares, Hafdís Vigfúsdóttir, Una Sveinbjarnardóttir, Gunnhildur Daðadóttir og Helga
Þóra Björgvinsdóttir. Á myndina vantar Carlos Caro Aguilera.
Kammersveit Reykjavíkur heldur árlega jólatónleika sína í Norðurljósasal
Hörpu sunnudaginn 7. desember kl. 17 Sex ungir einleikarar koma þar fram
Blind Spotting, dansverk Mar-
grétar Söru Guðjónsdóttur, verður
á faraldsfæti á næstu mánuðum í
ýmsum myndum. Verkið var upp-
haflega frumsýnt í Sophiensaile-
leikhúsinu í Berlín í júní sl. og í
framhaldinu sýnt hérlendis á al-
þjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal í
ágúst. Kvikmyndaútgáfa af verkinu
verður sýnd á hátíðinni Les Gran-
des Traversees í Frakklandi í jan-
úar nk. og upphaflega gerðin á
verkinu með átta dönsurum verður
sýnd í Bora Bora í Danmörku í
mars.
Sérstök útgáfa verksins fyrir tvo
dansara verður sýnd í Austurríki á
næsta ári auk þess sem sólóútgáfa
verksins verður frumsýnd 2015.
Blind Spotting
á faraldsfæti
Austurríski leikarinn Christoph
Waltz mun fara með hlutverk ill-
mennisins í næstu kvikmynd um
njósnarann James Bond, sem ber
titilinn Spectre. Ítalska leikkonan
Monica Bellucci og franska leik-
konan Léa Seydoux munu einnig
leika í myndinni og líkt og í síðustu
þremur myndum fer Daniel Craig
með hlutverk Bond. Þetta var
kunngjört á blaðamannafundi í Pi-
newood-myndverinu á Englandi í
gær.
Sam Mendes mun leikstýra
myndinni, líkt og þeirri síðustu,
Skyfall og dregur næsta mynd nafn
sitt af hryðjuverkasamtökum sem
komu fyrst við sögu í Bond-bókinni
Thunderball eftir Ian Fleming sem
gefin var út árið 1961 og sam-
nefndri Bond-mynd frá árinu 1964.
Fyrir þeim sam-
tökum fór eitt
þekktasta ill-
menni Bond-
sögunnar, Ernst
Stavro Blofeld,
en sá sem Waltz
leikur mun heita
Oberhausen.
Hvort Waltz fær
að strjúka hvít-
um ketti á meðan hann gerir grein
fyrir djöfullegum áætlunum sínum
er á huldu.
Tökur á Spectre hefjast í næstu
viku og verður myndin tekin í
Lundúnum, Róm, Mexíkóborg, Ölp-
unum og Marokkó. Þá kom einnig
fram á blaðamannfundinum í Pi-
newood að Bond myndi aka bifreið
af gerðinni Aston Martin DB10.
Christoph Waltz leikur ill-
mennið í næstu Bond-mynd
Christoph Waltz
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Gaurarnir sem sjá til fless a›
ekki sjó›i upp úr pottunum
2 í pakka, hvítur og rauður aðeins kr. 1.790,-
LID SID
Bjargvættirnir á brúninni
Enski uppistandarinn Jimmy Carr verður með
uppistand í Háskólabíói 22. mars á næsta ári og
nefnist sýningin Gagging Order. Carr er einn
þekktasti uppistandari Bretlands og sjónvarps-
maður og leikari að auki. Skopskyn Carr þykir kol-
svart og brandarar hans í vafasamari kantinum.
Carr hóf að troða upp árið 2000 og hefur notið
mikilla vinsælda í heimalandi sínu. Um Gagging
Order segir í tilkynningu að hún sé stútfull af óvið-
jafnanlegum húmor, greindarlegum, ruddalegum
og jafnvel algerlega óásættanlegum bröndurum.
Jimmy Carr treður upp í Háskólabíói
Jimmy Carr