Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
• Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn
velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra
• Platinumlínan okkar er mjög sterk og
þolir uppþvottavél
Spiegelau er ekki bara glas
heldur upplifun
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin jólagjöf
eða á hátíðarborðið.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | progastro.is
Opið alla virka daga frá 09:00 – 17:00.
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Allt fyrir eldhúsið
Verð frá
2.490 kr.
Geimferðastofnun Japans, JAXA,
hefur skotið á loft geimfari sem á að
safna sýnum á fjarlægu smástirni í
von um að þau varpi ljósi á myndun
alheimsins fyrir 4,6 milljörðum ára
og veiti vísbendingar um hvernig líf
hófst á jörðinni. Gert er ráð fyrir því
að ferðin standi í sex ár.
Könnunarfarinu Hayabusa 2 var
skotið á loft með H-HA burðarflaug
frá Tanegashima-geimferðamiðstöð-
inni í suðurhluta Japans í fyrradag.
Geimfarið á að fljúga framhjá
jörðinni til að fá þá þyngdarhjálp
sem þarf til að auka hraða þess svo
það komist á áfangastað. Það á að
koma að smástirninu um mitt árið
2018 og snúa aftur til jarðar í lok
ársins 2020.
Geimfarið á að sprengja gíg í smá-
stirnið til að safna sýnum, sem hafa
verið óvarin fyrir vindum og
geislum, og flytja þau til jarðar.
Smástirni eru leifar frá myndum
sólkerfisins. Þau eru efnið sem ekki
varð að reikistjörnum eða tunglum
eða brot úr öðrum hnöttum sem hafa
sundrast við árekstra, að því er fram
kemur á stjörnufræðivefnum.
Geimfarið á að rannsaka 1999JU3,
smástirni sem talið er að innihaldi
vatn og lífræn efni. Margir stjörnu-
fræðingar telja að þegar slíkum
smástirnum rigndi yfir jörðina í ár-
daga sólkerfisins hafi þau borið með
sér vatn og efni sem eru nauðsynleg
lífi.
Áður hafði Japanar sent geimfarið
Hayabusa til að rannsaka smástirnið
Itokawa árið 2005. Geimfarið sótti
ryk af yfirborðinu og sneri með heim
til jarðar.
Áætlað er að leiðangur Hayabusa
2 kosti jafnvirði 32 milljarða króna.
bogi@mbl.is
Heimild: DLR, CNES, JAXA
Geimfarið Hayabusa 2 á að safna sýnum úr smástirninu 1999JU3 og flytja þau til jarðar
Er með þýskt-franskt
hylki, sem nefnist
MASCOT og á að lenda
á smástirninu eftir
100 m frjálst fall
MINERVA-II
Tvö lítil fjarstýrð farartæki
eiga að lenda á smástirninu
og undirbúa söfnun
sýna á yfirborðinu
MASCOT
Stærð:
30 x 30 x 20 cm
Þyngd:
um 10 kg
Japanar skjóta á loft geimfari til að kanna smástirni
Loftnet til að
koma gögnum
til Hayabusa 2
Rafhlaðan endist í
16 klukkustundir
Jónavél
Loftnet
Sólarrafhlaða
Sýnatökuhólkur
Myndavél
Segulmælir
Smásjá
MASCOT er með
búnað sem gerir farinu
kleift að fara á þrjá
staði á smástirninu
MASCOT á að skoppa 10 til 70 metra frá lendingarstaðnum
Hreyfi-
klumpur
Vél
Asteroid 1999JU3
Þvermál: um 900 m
Möndulsnúningur: 7,6 klst.
Skotið á loft 3. desember 2014
Á að fara á braut um smástirnið árið 2018
Á að snúa aftur til jarðar í lok ársins 2020
Á að taka sýni úr smástirni
Rannsóknin gæti varpað ljósi á upphaf lífs á jörðinni
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
varaði Rússa við því að erfiðir tímar
væru framundan vegna refsiaðgerða
Vesturlanda og lægra olíuverðs þeg-
ar hann flutti árlega stefnuræðu sína
í Kreml í gær. Hann sakaði leiðtoga
Vesturlanda um að hafa notað átökin
í austanverðri Úkraínu sem átyllu til
að grafa undan öflugu og sjálfstæðu
Rússlandi.
Antov Siluanov, fjármálaráðherra
Rússlands, hefur sagt að tap Rúss-
lands vegna refsiaðgerðanna og
lægra olíuverðs nemi jafnvirði 17.500
milljarða króna á ári. Stjórnin í
Moskvu hefur spáð efnahagssam-
drætti á næsta ári.
Boðar aðgerðir til að
verja rúbluna
Pútín gaf til kynna að Rússar
þyrftu að búa sig undir langvarandi
refsiaðgerðir og boðaði ráðstafanir
til að stemma stigu við miklu gengis-
falli rúblunnar. Gengi hennar lækk-
aði um tæp 9% gagnvart Bandaríkja-
dollar á mánudaginn var, meira en
nokkru sinni fyrr á einum degi frá
fjármálakreppunni í Rússlandi 1998.
Gengi rúblunnar hefur lækkað um
60% gagnvart dollarnum og 45%
gagnvart evrunni frá því í byrjun
ársins, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Talið er að Rússar hafi tekið jafn-
virði rúmra 12.500 milljarða króna
úr landi í ár og Pútín lofaði almennri
sakaruppgjöf til handa þeim sem
flyttu fé aftur til Rússlands.
Segir Krím hafa
„heilaga þýðingu“
Nikolai Petrov, sérfræðingur í
rússneskum efnahagsmálum, telur
að aðgerðirnar sem Pútín boðaði hafi
lítil áhrif. „Þetta er ekki lausn á þeim
alvarlega vanda sem efnahagur
Rússlands er í núna,“ hefur AFP eft-
ir honum.
Pútín boðaði ekki neinar breyting-
ar á stefnu sinni í utanríkismálum og
réttlætti innlimun Krímskaga í
Rússland fyrr á árinu. Hann sagði að
Krím hefði „heilaga þýðingu“ fyrir
Rússa og líkti skaganum við Must-
erishæðina í Jerúsalem. Vestræn
ríki hefðu notað deiluna um Austur-
Úkraínu sem tylliástæðu til að
þjarma að Rússlandi. „Í hvert sinn
sem einhver telur að Rússland sé
orðið of öflugt, of sjálfstætt, er þess-
um tækjum beitt umsvifalaust.“
Forsetinn sakaði Vesturlönd um
að leggja „járntjald“ umhverfis
Rússland til að einangra það en lagði
áherslu á að stjórnin í Kreml myndi
ekki láta undan þrýstingnum. „Við
erum tilbúin að takast á við hvers
konar ögranir og við sigrum.“
Tónninn í ræðu Pútíns þótti þó
mildari gagnvart Vesturlöndum en
oft áður og Pútín kvaðst ekki ætla að
rjúfa tengslin við Vesturlönd vegna
deilunnar. „Við ætlum ekki undir
neinum kringumstæðum að draga úr
tengslunum við Evrópu og Banda-
ríkin,“ sagði hann.
Pútín býr Rússa
undir efnahags-
þrengingar
Mildari tónn en oft áður í ræðu Pútíns
AFP
Einangrun Pútín kvartaði yfir
„járntjaldi“ umhverfis Rússland.
Starfsmenn Legoland í grennd við
London setja þriggja kílógramma
þunga stjörnu á átta metra hátt
jólatré sem búið var til úr 300.000
legókubbum á fjórum vikum. Tréð
verður til sýnis til jóla.
Átta metra hátt jólatré í Legolandi
Tré úr 300.000 legókubbum
AFP