Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Snjallara
heyrnartæki
Beltone First™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Robert Mugabe, forseti Simbabve,
veittist harkalega að varaforsetan-
um Joyce Mujuru í gær, sakaði hana
um að hafa reynt að ráða hann af
dögum og sagði að hún væri þjófur.
Mugabe hélt ræðu á landsfundi
flokks síns, Zanu-PF, og sagði að
Mujuru hefði ekki mætt á fundinn
vegna þess að hún væri „hrædd“.
Mugabe er orðinn níræður og hef-
ur stjórnað Simbabve í 34 ár, eða frá
því að landið fékk sjálfstæði árið
1980. Mujuru var álitin líklegur arf-
taki Mugabe þar til eiginkona forset-
ans, Grace, haslaði sér völl í stjórn-
málunum fyrr á árinu og sakaði
varaforsetann um samsæri gegn for-
setanum. Gert er ráð fyrir að for-
setafrúin verði kjörin leiðtogi
kvennahreyfingar flokksins.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir
fyrrverandi talsmanni Zanu-PF að
Mugabe hafi breytt flokknum í
„einkaeign“ sína og hafi veist að
varaforsetanum til að styrkja stöðu
eiginkonu sinnar í flokknum.
Sakar vara-
forseta um
morðtilræði
Mugabe vill auka
áhrif konu sinnar
AFP
34 ár Robert Mugabe hefur stjórn-
að Simbabve frá árinu 1980.
Tilraunaflugi Orion-geimfars
bandarísku geimvísindastofnunar-
innar NASA var frestað í gær þar til
í dag vegna vandamála sem komu
upp með lokur Delta IV-eldflaug-
arinnar sem átti að skjóta því á loft.
Gangi allt að óskum flýgur geimfar-
ið fjær jörðinni en nokkurt far, sem
ætlað er að flytja menn, frá því í
tungllendingunum. NASA kallar til-
raunaflugið stærsta viðburðinn sem
stofnunin stendur fyrir á þessu ári.
Upphaflega stóð til að skjóta
Orion á loft kl. 12.07 að íslenskum
tíma í gær. Því var hins vegar ítrek-
að frestað, fyrst vegna hvassviðris
en síðar vegna vandamála með lokur
í eldflauginni. Ætlunin er að gera
aðra tilraun á sama tíma í dag.
Veðurspáin bendir til þess að 60%
líkur séu á því að hægt verði að
skjóta því á loft.
Tilraunaflugið á að taka fjóra og
hálfa klukkustund en að því loknu á
áhafnarhylki geimfarsins að lenda í
Kyrrahafinu. Ýmislegt getur þó far-
ið úrskeiðis enda mun Orion ferðast
á ríflega 32.000 kílómetra hraða á
klukkustund þegar það kemur aftur
inn í lofthjúpinn. Hitastigið fyrir
framan hitaskjöld áhafnarhylkisins
mun ná um 2.200°C.
Gangi allt að óskum verður Orion
fyrsta geimfarið, sem hannað er til
að flytja menn, sem fer út fyrir lága
jarðarbraut frá því að geimfarar
Apollo-leiðangranna fóru til tungls-
ins á 7. og 8. áratug síðustu aldar.
kjartan@mbl.is
Orion skotið í geiminn
NASA
Tilraunaflug NASA stefnir að því að skjóta geimfarinu á loft á hádegi í dag.
Lengsta ferð slíks geimfars frá tunglferðunum
Stjórnvöld í
Norður-Kóreu
hafa fyrirskipað
öllum alnöfnum
einræðisherra
landsins, Kim
Yong-un, að
breyta eiginnafni
sínu, að sögn
suður-kóreska
ríkissjónvarpsins
KBS. Kim er mjög algengt ættar-
nafn og Yong-un algengt eiginnafn
í Norður-Kóreu en ekki er vitað
hversu margir alnafnarnir eru.
Samkvæmt fyrirmælum einræðis-
stjórnarinnar má ekki gefa nýfædd-
um börnum eiginnafnið Yong-un ef
ættarnafn þeirra er Kim.
Þeir sem eru svo óheppnir að
vera alnafnar Kim Yong-un eiga að
taka upp nýtt eiginnafn og láta
breyta nafni sínu á öllum skírtein-
um, meðal annars fæðingar-
skírteinum. Sams konar bann gilti
um nöfn föður og afa Kims þegar
þeir voru við völd.
Alnafnar leiðtogans
taki upp nýtt nafn
Kim Yong-un
NORÐUR-KÓREA