Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert yfirleitt frekar harður við
sjálfan þig, en það hefur sína kosti. Þú kemst
því gjarnan til áhrifa.
20. apríl - 20. maí
Naut Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar
sem aldursmunur er mikill milli einstaklinga.
Ef þú vilt að aðrir sýni þér sanngirni verður
þú að vera reiðubúinn til að endurgjalda í
sömu mynt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Bilun í tölvunni eða annars konar
tæknivandamál geta sett strik í reikninginn
hjá þér í dag. Skrifaðu sjálfri þér ástarbréf og
teldu upp öll góðverkin sem þú hefur gert
upp á síðkastið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að þú standir ekki í vegi
fyrir metnaðarfullum tilburðum samstarfs-
manns þíns. Hann beinir í það minnsta at-
hygli sinni að vinum og öðru fólki.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú ungur, uppreisnargjarn og
fremur tilkippilegur í dag. En ef þú bíður nógu
lengi kemur afgangurinn af myndinni í ljós,
allt er hluti af mynstri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú reynir að vera heiðarlegur, og það
er svolítið augljóst. Ef þú missir af tækifæri
fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert ákveðinn og veist hvað þú vilt svo
þú skalt láta ummæli annarra um sjálfselsku
þína sem vind um eyru þjóta. Hvernig væri að
setja eigin markmið? Í umsjón annarra fara
þau úr böndunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú getur ekki tekið að þér hlut-
verk talsmannsins nema þú vitir hvað það er
sem þið bjóðið og til hvers á að nota það.
Kannski verður þú líka fljótfær og gerir eitt-
hvað vanhugsað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Seigla þín verður prófuð á næst-
unni. En allt skal vera í hófi. Mundu að aðgát
skal höfð í nærveru sálar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn hentar ekki til verslunar
eða samningagerðar. Tengsl þín við sporð-
dreka eru einstaklega sterk.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt líklega lenda í snörpum
orðaskiptum við einhvern í dag. Þú þarft að
sækja fjölda viðburða en þeir verða að vera
áhugaverðir til þess að halda athyglinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Að ræða við vini er tilvalið í dag. En
það er ekki nóg að vera yfirlýsingaglaður,
sýndu að hugur fylgi máli og láttu verkin tala
líka.
Pétur Stefánsson skrifaði þessaskemmtilegu oddhendu á Leir-
inn á miðvikudaginn:
Við frosti og ís mér hugur hrýs.
Hlýju kýs ég fremur.
Gleðin rís er varminn vís
með vorsins dísum kemur.
Og ekki er þessi limra eftir Sig-
rúnu Harldsdóttur af lakara taginu:
Karlinn hann Benni bogni
bjó nokkur ár að Sogni,
fengi hann hroll
hann fauk oft um koll
jafnvel stundum í stafalogni.
„Ráðning í starf,“ segir Davíð
Hjálmar Haraldsson. Þessi staka
geymir tungutak sem var daglegt
mál þegar ég var götustrákur á
Laugaveginum:
Háseta þarf hér á sjó,
hlýtt um borð og dekur,
að kalfatta og kítta þó
kunni þegar lekur.
Eins og við var að búast urðu við-
brögð við vísu Sigurlínar Her-
mannsdóttur um náttúrupassann.
Gústi Mar orti:
Náttúruna nú til dags
nánast allir trassa.
Ef menn vilja leita lags
leyfi þarf og passa.
Og Fía á Sandi:
Það er hart að verða að velja
valkvíða er slæmt að una.
Því málið er
Hvort orku vora á að selja
eða sjálfa náttúruna.
Á facebók birtist þessi vísa í vik-
unni. Hún er eftir Eyþór Árnason
frá Uppsölum í Blönduhlíð, sem
fékk bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar árið 2009 og hefur
m.a gefið út ljóðabókina Hundgá
úr annarri sveit. Vísan skýrir sig
sjálf:
Á Austurvelli trónir nú íslenskt jólatré
og ýmsir hafa löngun til að þrasa.
Í Tungum austur syngur hún sæta
Beyoncé
og Sigmundur er bún’að friða Nasa.
Á Boðnarmiði orti Hallmundur
Kristinsson:
Þorsteinn með þremur Ásum
þraukaði heima á Básum.
Hann þjónaði þeim,
þó oftast tveim,
en þeirri þriðju í pásum.
Og spurði svo: „Hvað eru mörg þ
í þessu?“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um að kalfatta,
valkvíða og Nasa
Í klípu
„ÞÚ ÞARFT AÐ LÆRA AÐ LIFA Í NÚINU.
KANNSKI Í NÆSTU VIKU – TÍMINN ER
LIÐINN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„NÆTURVINNA! ÞÚ MEINAR ÞEGAR ÞAÐ ER
MYRKUR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum bara eitt
auglit.
ÉG ER AÐ FARA
Í SVIFFLUG!
ÉG HEF HÚSIÐ
FYRIR MIG!
ÁÁI! SLÆMA HNÉÐMITT SEGIR MÉR AÐ
ÞAÐ MUNI RIGNA!!
ÉG ER ÞREYTTUR
Á RIGNINGU!
AF HVERJU SEGIRÐU
EKKI HNÉNU ÞÍNU AÐ
HAFA HLJÓTT?!!
Skipulagsmál í Reykjavík verðasumum að yrkisefni enda af
nógu að taka. Hverfisgata, Hofs-
vallagata, Suðurgata, Hringbraut,
Snorrabraut, Borgartún og Grens-
ásvegur tala sínu máli.
x x x
Fyrir tæplega ári fór borgarfull-trúinn Hjálmar Sveinsson út á
ritvöllinn. „Ég spái því að Hverfis-
gatan eigi eftir að slá í gegn strax í
sumar,“ skrifaði spámaðurinn.
x x x
Hverfisgata virðist ekki gagnastneinum eftir breytingar. Fyrir
skömmu rakti mbl.is raunir hjól-
reiðamanns á götunni í máli og
myndum. Hann kvartaði yfir því að
bílum væri lagt yfir hjóla- og göngu-
stíginn, sem þvingaði hjólandi og
gangandi umferð út á akbrautina.
Reyndar komst maðurinn í mótsögn
við sjálfan sig, þegar hann sagði
ástandið skiljanlegt því vegna fram-
kvæmda þyrfti að lesta og losa.
x x x
Eðlilega kom Ragnar Reykás upp íhugann við áframhaldandi lest-
urinn: „Þegar það er rigning og rok
og slæmt skyggni er manni ekkert
vel við að fara út í umferðina“, tísti
maðurinn. „Víðast hvar erlendis
stoppa svona bílar bara úti á götu og
setja viðvörunarljósin í gang. Það
myndi skapa meira öryggi. Það er
ekkert mál fyrir bíla að sveigja
framhjá öðrum bílum, það er alvana-
legt.“
x x x
Guðbergur Bergsson skáld hittinaglann á höfuðið í viðtali í
Sunnudagsmogganum fyrir tæpri
viku: „IKEA-andinn er mjög
ríkjandi í þjóðfélaginu. Borgarstjór-
inn er til dæmis IKEA-maður sem
tók við af Jóni Gnarr sem sagði ís-
lenska fyndni af sömu tegund og
iðnaðarmenn höfðu. Íslenskir
iðnaðarmenn höfðu íslenskt kjaftavit
en þeim var haldið niðri en kjaftavit
Jóns Gnarr var magnað upp með
auglýsingum og hann lifði á því. Síð-
an kemur IKEA-maðurinn, Dagur,
og stærir sig af Hverfisgötunni sem
er orðin IKEA-gata þar sem allt er
snyrtilega dautt.“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Guð vonarinnar fylli yður öllum fögn-
uði og friði í trúnni svo að þér séuð
auðug að voninni í krafti heilags
anda. (Rómverjabréfið 15:13)