Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Aðventan er gengin
í garð og aðdragandi
jólanna ávallt með
einhvern veginn öðru-
vísi brag en endranær
á ársins hring.
Mér er efst í huga
hversu þessi árstími
dregur miskunn-
arlaust fram þá mis-
munun sem ríkir í
samfélaginu, mis-
munun sem heldur er
að aukast ef eitthvað er. Þar vega
sjálfskaparvítin oft þungt og eru oft
hvað átakanlegust í sinni nöktustu
birtingarmynd einmitt í aðdrag-
anda mestu hátíðar ársins. En þessi
mismunun, þetta hyldýpi sem á
milli allsnægta og örbirgðar er, á
auðvitað alltaf að vera okkur sem
þjóð, ekki bara umhugsunarefni,
heldur fyrst og síðast hvati til raun-
hæfra aðgerða í þágu þeirra sem
erfiðast eiga. Svo einfaldur var ég
að eftir græðgisvæð-
inguna miklu í byrjun
aldarinnar og hrapalleg
endalok hennar, þá hélt
ég að menn hefðu lært
og lært nóg. En nú örl-
ar á henni á ný, ekki
bara örlar, heldur er
stefnan sett á end-
urtekningu hennar. En
aftur að sjálfskaparvít-
unum þar sem vímu-
efnin vega þyngst og
eru mestu ógæfuvald-
arnir. Þar er áfengið
mikilvirkast í eyðingu sinni á mann-
legum gildum. Okkur bindind-
ismönnum hefur oft verið legið á
hálsi fyrir að leggja svo mikla
áherzlu á baráttuna gegn áfenginu
og gleyma öðrum eyðingarvöldum
s.s. hinum ólöglegu vímuefnum, en
við höfum ávallt tekið fram að bar-
átta okkar varðar öll vímuefni
hverju nafni sem þau nefnast . Hins
vegar kemur það ofurskýrt fram í
nýlegri bandarískri rannsókn,
þeirri vönduðustu sem gjörð hefur
verið, að við höfum, því miður má
kannski segja, rétt fyrir okkur um
mikilvirkasta eyðingaraflið. Bretar
segja áfengið einnig versta heil-
brigðisvandamálið og algengustu
dánarorsökina í þokkabót. Við get-
um því stolt sagt að við séum og
höfum verið á réttri leið og enn á
ný leggjum við áherzlu á baráttuna
gegn öllum þessum eyðingaröflum.
Hins vegar eru svo hræðilega
margir sem draga áfengið út fyrir
sviga og berja sér svo á brjóst í
heilagri hneykslun varðandi önnur
vímuefni. Þetta er hættuáróður sem
virðist ná til svo margra, máske
vegna þess að einmitt þarna er að
finna fjölmennasta neytendahópinn.
Við bendum líka á leið, leið bind-
indis, okkar leið sem er líka nauð-
synleg fyrir þær sakir að við getum
sýnt fram á hversu heilbrigt og um
leið hamingjuríkt bindindið er. Ég
sagði nemendum mínum á átján ára
kennsluferli mínum, sem ég get svo
sannarlega sagt í dag einnig:
Hversu ótalmarga hef ég hitt um
dagana sem sjá sárt eftir því að
hafa átt áfengið að vini, enga sem
sjá eftir því að hafa valið leið bind-
indis heldur þvert á móti. Þessi ein-
falda mynd segir meira en löng
prédikun.
Það fólk sem berst fyrir bættu
og heilbrigðara þjóðlífi á mikið verk
óunnið, en verst er að mæta því of-
urefli sem áfengisauðvaldið er,
þeim ofurfjármunum sem teflt er
gegn heilbrigði og hollum lífs-
háttum og þar er aðventan engin
undantekning nema síður sé.
Aldrei er glansmynd blekking-
arinnar skýrari en einmitt þá og
vafalaust finnum við mest til þess
þá hversu eyðingaröflin eru öflug.
Og það er staðreynd að ætíð skulu
þau sækja á þann garð sem veik-
astur er fyrir, ungt fólk og ómótað
eru ævinlega fremstu skotmörk
áfengisauðvaldsins, það sýnir
reynslan okkur. Nauðsynin er því
ríkust að verja þennan hóp sem
bezt, það á að vera samfélagsleg
skylda okkar. Menn segja gjarna
að hvert ár ungmennis án vímuefna
sé dýrmætt, ugglaust rétt, en dýr-
mætast að láta öll slík efni lönd og
leið ævina alla.
Reynslan er ólygnust og ef menn
aðeins vilja hlusta á aðvör-
unarraddir þeirra sem fást við af-
leiðingarnar þá hlýtur almenn
skynsemi að segja mönnum hvað
helzt skuli varast. Megi aðventan
verða vakningartími og færa okkur
nær því að eiga vímulaus jól, vímu-
lausa ævitíð.
Gleðilega og gæfuríka aðventu.
Umhugsunarefni á aðventu
Eftir Helga Seljan » Bretar segja áfengið
einnig versta heil-
brigðisvandamálið og al-
gengustu dánarorsökina
í þokkabót.
Helgi Seljan
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
IOGT.
Ibrahim Sverrir
Agnarsson, formaður
Félags múslima á Ís-
landi, er enn við
sama heygarðshornið
og svarar málefna-
legum spurningum,
sem að honum er
beint, með þjósti og
útúrsnúningum eða
þá alls ekki. Í Morg-
unblaðið 3. desember
ritar hann greinarstúfinn „Gústafi
svarað“ og vísar til þeirra orða
Salmanns Tamimi, fyrrverandi
formanns félagsins, frá 8. október
2010, og gerir að sínum, að moska
á Íslandi þurfi að vera á íslensk-
um forsendum án erlends fjár-
magns, svo ekki hendi að erlendir
aðilar taki yfir stjórnartaumana.
Með þessu reynir hann greinilega
að breiða yfir ágreining sinn við
forverann, því hann lætur ógert
að vísa í sín eigin orð um þetta
atriði, sem hann viðhafði í samtali
við fréttastofu Ríkisútvarpsins 24.
október 2013 „að fjármagn til
byggingarinnar fáist víða og með-
al annars sé leitað í sjóði múslima
í Kúveit og Sameinuðu arabísku
furstadæmunum“. Gott og vel,
engan áhuga hef ég á hugs-
anlegum ágreiningi í Félagi músl-
ima á Íslandi hvað varðar fjár-
mögnunina, sem vel kann að vera
tilbúningur, í því skyni að kasta
ryki í augu almennings. Hér þyk-
ir mér málflutningur Ibrahims
Sverris vera orðinn „lúsugur“ og í
hávegum hafður orðskviðurinn:
„Gott er að hafa tungur tvær og
tala sitt með hvorri.“ Eða ber að
túlka orð hans svo að Félag músl-
ima á Íslandi hafi í hyggju að
leita eftir fjármögnun á mosk-
ubyggingunni í útlöndum?
Lakara þykir mér þó að Ibra-
him Sverrir hefur ekki haft rænu
á því að lesa opna bréfið frá 18.
nóvember sl. til enda, því þar gat
að líta fleiri spurningar en þær
sem lutu að fjármögnun mosku í
Reykjavík. Þykir mér því viðeig-
andi að árétta þær og óska svara
við fyrstu hentugleika. Í þessu
sambandi vísast til viðtals við
Ibrahim Sverri á útvarpsstöðinni
Bylgjunni 2. júní 2014, en þar
lýsti hann því yfir að félagsmenn
hans væru fylgjandi því að sjaría-
lög giltu um erfða- og fjöl-
skyldumál múslima hér á landi.
Af þessu tilefni spurði ég hvort
félagsmenn trúfélagsins teldu, að
rétt væri að ráða til
lykta á grundvelli
sjaríalaga fleiri mál-
um en erfða- og fjöl-
skyldumálum og
sömuleiðis hvort trú-
félagið teldi það
samræmast góðu sið-
ferði og allsherj-
arreglu, að gera
erfðahlut kvenna og
óskilgetinna barna
rýrari en samkvæmt
íslenskum lögum.
Þetta eru „gleymdu spurn-
ingar fordómafulla kjánans“, sem
mjög svo hefur pirrað trúar-
leiðtogann.
Gleymdu spurn-
ingar kjánans
Eftir Gústaf
Níelsson
Gústaf Níelsson
»Hér þykir mér mál-
flutningur Ibrahims
Sverris vera orðinn
„lúsugur“ og í hávegum
hafður orðskviðurinn:
„Gott er að hafa tungur
tvær og tala sitt með
hvorri.“
Höfundur er sagnfræðingur.
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Hæ sæti, hvað ert þú að borða?
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Verð frá
2.494 kr.
– fyrir dýrin þín
Bragðgott, holl
t og næringarr
íkt