Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m2
Hrefna Kristmanns-
dóttir, professor em-
eritus, skrifar grein í
Morgunblaðið 2. októ-
ber sl. Í greininni lýsir
Hrefna áhyggjum
vegna gæða náms í há-
skólum á landsbyggð-
inni! Það séu gerðar
minni kröfur til kenn-
ara við háskóla á „land-
byggðinni“. Ekki veit
ég hvaðan Hrefna hefur þessar upp-
lýsingar. Meðan ég var skólastjóri
Bændaskólans á Hvanneyri og yf-
irmaður búvísindadeildar Bænda-
skólans, var enginn ráðinn sem fast-
ur kennari við búvísindadeild nema
viðkomandi hefði verið metinn hæf-
ur. Það er því alveg óþarfi að gera
því skóna að hæfi kennara við búvís-
indadeild Bændaskólans á Hvann-
eyri hafi ekki verið eins og kröfur
eru um við HÍ. Hvað hefur gerst síð-
an ætla ég ekki að fullyrða, en veit
ekki annað en það hafi verið fylgt
ströngustu kröfum.
Hrefna segir: „Starfsmenn þess
skóla (LbhÍ) telja starfseminni best
borgið með sameiningu við öflugan
Háskóla Íslands.“
Þetta er rangt. Það er
að vísu rétt að nokkrir
„akademikarar“, að-
allega á Keldnaholti,
hafa lýst vilja til að
sameinast HÍ. Allur
þorri starfsmanna
LbhÍ á Hvanneyri, og
nokkrir á Keldnaholti,
vill ekki sameinast HÍ
á þeim forsendum sem
boðið var upp á. Það
var reyndar ekki boðið
upp á sameiningu,
heldur var kennsla á háskólastigi
lögð niður við Landbúnaðarháskóla
Íslands. Hana átti að færa til
Reykjavíkur. Skilja átti bændadeild-
ina, framhaldsskóla og tilraunastarf-
semi eftir á Hvanneyri, sem hlýtur
að verða eins og munaðarleysingi án
háskólanámsins eða eins og halak-
lipptur hundur.
Líta á háskólanám
sem byggðastyrki!
Engin umræða hefur verið um
gæði háskólanámsins segir Hrefna!
„ ... togast á sjónarmið þeirra sem
vilja hagræða og spara og heima-
manna sem líta á háskóla og há-
skólasetur á landsbyggðinni sem
byggðastyrki en lítið sem ekkert
hefur verið rætt um gæði háskóla-
starfs“. Svo bætir Hrefna við: „Aug-
ljóslega á fámennur skóli úti á landi
mun erfiðara með að ráða til sín vel
menntaða kennara …“ Augnablik!
Úti á landi, hvaða staður er það með
leyfi? Það er hinsvegar þannig að
þeir sem taka sínar gráður á Hvann-
eyri, Akureyri, Bifröst eða Hólum
eru mun fúsari til að fara í störf utan
Reykjavíkur, en þeir sem ljúka námi
í Reykjavík.
Í þeim greinargerðum sem lagðar
voru fram í upphafi þessarar um-
ræðu um sameiningu HÍ og LbhÍ,
var ekki bent á neinn sparnað af að
leggja niður háskólanámið á Hvann-
eyri! Hér var ekki um að ræða hag-
ræðingu eða sparnað, eins og
Hrefna heldur fram! Það er auk þess
frekleg móðgun og lítilsvirðing við
það starf sem unnið hefur verið á
Hvanneyri síðustu 67 árin, og aðra
háskóla utan Reykjavíkur, að segja
að litið hafi verið á háskólanámið
sem byggðastyrk! Metnaður og virð-
ing fyrir rannsóknum og þekkingu
hefur verið leiðarljós í starfi há-
skólanáms á Hvanneyri. Eru þá þeir
fjármunir sem HÍ fær á fjárlögum
byggðastyrkur til Reykjavíkur, eða
hvað?
HÍ vildi ekki taka að sér
menntun búfræðikandidata
Á árunum eftir stríð var mikil þörf
fyrir vel menntaða og hæfa starfs-
menn fyrir landbúnaðinn, bæði við
rannsóknir og leiðbeiningar. Nokkr-
ir áhrifamenn innan landbúnaðarins
vildu að námið yrði vistað við HÍ.
Ekki virtist áhugi fyrir því á þeim
tíma. Þá var rætt um að semja við
erlendan landbúnaðarháskóla. Nið-
urstaðan varð sú að námið yrði á
Hvanneyri. Fyrst hét þetta fram-
haldsnám í búfræði, en frá 1979 var
deildin nefnd búvísindadeild, ekki
háskóli, til að storka ekki Háskóla
Íslands!
Ég ætla ekki að fara að velta fyrir
mér hugleiðingum Hrefnu um
meintar aðferðir „minni háskóla“ við
að taka upp ódýrar kennslugreinar
til að auka hagkvæmni í rekstri.
Verð þó að segja að mér finnst þær
ekki hæfa professor emeritus við
HÍ. Ég vil taka fram í lokin, að allir
starfsmenn LbhÍ vilja hafa samstarf
við Háskóla Íslands, og aðra há-
skóla, en flestir vilja ekki leggja
skólann niður. Ég hef hins vegar
verið talsmaður þess að eiga náið
samstarf við HÍ, að því gefnu, að
LbhÍ héldi fullu sjálfstæði, enda er
frelsi leiðarljós í öllu háskólastarfi.
Frumkvæði, áræði og þekking-
ariðnaður á landsbyggðinni mun í
framtíðinni m.a. koma frá fólki sem
stundað hefur háskólanám og hefur
þekkingu og sköpunargáfu.
Verði háskólanám lagt niður á
Hvanneyri, Hólum, Bifröst og Ak-
ureyri myndi ég spyrja: Hvers á
landsbyggðin að gjalda?
Hvers á Hvanneyri að gjalda?
Eftir Svein
Hallgrímsson » Verði háskólarnir á
Hvanneyri, Ak-
ureyri, Bifröst og Hól-
um lagðir niður mun ég
spyrja í alvöru: Hvers á
landsbyggðin að
gjalda?
Sveinn Hallgrímsson
Höfundur er fyrrverandi skólastjóri
Bændaskólans á Hvanneyri.
Friðarsúlan í Viðey,
sem eins og kunnugt
er er hugar- og ást-
fóstur myndlistar- og
tónlistarmannsins að
ógleymdum friðarsinn-
anum Yoko Ono, er
ekki aðeins fram-
úrstefnuleg hugmynd
sem varð að veruleika
heldur jafnframt ein-
stakt listaverk og
sögulegt sameiningartákn. Hugsað
sem leiðarljós fyrir heimsfriði. Það
er von Yoko að friðarsúlan lýsi upp
heitar óskir um frið í heiminum
hvaðanæva úr veröldinni og veiti
hvatningu, innblástur og samstöðu
í heimi þar sem ríkir ótti og ringul-
reið. Að fólk sameinist í þeirri ósk
sinni að gera friðsæla veröld að
veruleika.
Falleg hugsjón
Ég deili þessari fallegu hugsjón
Yoko Ono svo innilega og einlæg-
lega. Friðarsúlan hefur einmitt
reynst mér dýrmætur innblástur
og andlegt hjálpartæki við að lyfta
hug og hjarta í hæðir í bæn til
hans sem er ljós heimsins. Frið-
arhöfðingjans sem gefur okkur líf-
ið og einn megnar að viðhalda því
um eilífð. Til hans sem elskar okk-
ur út af lífinu. Hans sem er lífið
sjálft.
Þegar ég bið mínar einlægu en
fátæklegu bænir á kvöldin finnst
mér gott að horfa til friðarsúl-
unnar sem mér finnst auðvelda
þeim að klifra upp og fljóta með
hinum einstaka friðar-, óska- og
bænageisla upp í himininn. Hvort
heldur ég bið fyrir sjálfum mér,
ástvinum mínum og samferðafólki
eða fyrir friði í heiminum, almenn-
um samskiptum manna eða öðru
því sem á mér hvílir hverju sinni
og upp í hugann kemur. Og í þakk-
læti fyrir lífið og allt það góða sem
við höfum og er gefið. Fyrir allt
hið fallega sem við fáum að búa
við, þiggja og njóta.
Litróf
Litróf mannlegrar
tilveru fær sín ekki
notið nema allir lit-
irnir komi fram og fái
að njóta sín, hver
með sínum hætti. Til-
veran verður þá fyrst
fullkomin, þegar
daufu litirnir styðja
við þá sterku og hinir
sterku við þá daufu.
Væri tilveran ekki fá-
tækleg ef allt væri
bara svart og hvítt?
Ég á mér draum
Ég á mér nefnilega líka draum.
Draum um betra líf. Draum um
betri heim. Þar sem allir eru virtir,
hver á sínum stað, í sinni stétt og
stöðu. Þar sem allir eru mettir
gæðum sannleikans. Þar sem allir
fá að lifa í réttlæti og friði. Þar
sem sjúkdómar, áhyggjur og sorg-
ir eru ekki til. Og dauðinn aðeins
upphaf að betri tíð.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Friðarsúlan í Viðey
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Friðarsúlan hefur
reynst mér dýr-
mætur innblástur og
andlegt hjálpartæki við
að lyfta hug og hjarta í
hæðir í bæn til hans sem
er ljós heimsins.
Höfundur er rithöfundur
og áhugamaður um lífið.