Morgunblaðið - 05.12.2014, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
✝ ÞorvaldurHeiðdal Jóns-
son fæddist á Ein-
arsstöðum í Kræk-
lingahlíð 20.
nóvember 1922.
Hann lést á Dval-
arheimilinu Hlíð
24. nóvember
2014.
Foreldrar hans
voru Ólafía Val-
gerður Hálfdán-
ardóttir, húsfreyja, f. 21.10.
1901, d. 22.9. 1992, og Jón Árel-
íus Þorvaldsson, bóndi, f. 8.11.
1899, d. 12.2. 1976. Systkini
Þorvaldar eru í aldursröð Þor-
gerður Kristjana, f. 1918, d.
1925, Kristján Sigurbjörn, f.
1920, d. 2006, Sigurvin, f. 1929,
Kristrún, f. 1931, Málfríður
Heiðrós, f. 1934, og Þorgerður
Kristjana, f. 1940.
Þorvaldur Heiðdal kvæntist
Þórunni Jóhönnu Pálmadóttur,
f. 17.1. 1943, þann 17.6. 1960.
Foreldrar hennar voru Þor-
gerður Jóhanna Jónsdóttir, f.
1924, d. 2003, og Pálmi Sig-
kvæntur Gyðu Hrönn Sigþórs-
dóttur, f. 21.6. 1974. Börn
þeirra eru Sigþór Gunnar, f.
1998, og María Björk, f. 2002.
Fyrir átti Jón tvo syni með
Þóru Jakobínu Hrafnsdóttur,
Þorvald Heiðdal, f. 1988, sam-
býliskona Anne C. Grubbe Möll-
er, f. 1991, og Guðbjörn Ólsen,
f. 1990. 4) Gestheiður Brynja, f.
15.6. 1968, sambýlismaður Her-
mann Helgi Kristjánsson, f.
27.10. 1966. Sonur Gestheiðar
með Krisjáni Guðmundssyni er
Jón Þór, f. 1991, sambýliskona
Sunna Guðmundsdóttir, f. 1989,
og eiga þau einn son. Dóttir
Gestheiðar með Ægi Ágústs-
syni er Auður Katrín, f. 2002.
Þorvaldur var bóndi á Tré-
stöðum í Glæsibæjarhreppi og
varði mestum hluta ævi sinnar
þar, hann sinnti ýmsum störf-
um meðfram bústörfum. Var
meðhjálpari, sóknar-
nefndarmaður og söng í kirkju-
kór Glæsibæjarkirkju, hann var
ætíð mikill kirkjunnar maður.
Valdi og Hanna fluttu til Ak-
ureyrar vorið 1989 og þar tók
hann einnig þátt í félagsstarfi.
Hann var til dæmis í Félagi
aldraðra og Karli II.
Útför Þorvaldar Heiðdal fer
fram frá Akureyrarkirkju í
dag, 5. desember 2014, og hefst
athöfnin kl. 13.30.
urður Ólafsson, f.
1918, d. 1982.
Börn Þorvaldar
og Þórunnar eru:
1) Gerður Guðrún,
f. 4.4. 1960, gift
Hermanni Antoni
Traustasyni, f. 7.5.
1958. Börn þeirra
eru Eva Björk, f.
1990, sambýlis-
maður Gestur Ing-
ólfsson, f. 1978, og
eiga þau einn son, og Tína Ósk,
f. 1998. Fyrir átti Gerður tvö
börn með Jóni Lárusi Ingva-
syni, Jóhönnu, f. 1977, gift
Gunnari Brynjólfssyni, f. 1968,
og eiga þau tvo syni, og Ingva
Hrannar, f. 1986, og á hann tvö
börn. Fyrir átti Hermann Adolf
Braga, f. 1978, Hartmann, f.
1982, d. 1990, og Ólaf Björgvin,
f. 1985. 2) Rósa Kristín, f. 14.5.
1963, gift Ólafi Jósefssyni, f.
27.7. 1963. Börn þeirra eru Atli
Már, f. 1986, og Þórunn, f.
1992, í sambúð með Jóni Ingi-
bergi Guðmundssyni, f. 1995. 3)
Jón Árelíus, f. 14.8. 1964,
Elsku pabbi. Þá er komið að
kveðjustundinni sem ég hef lengi
kviðið fyrir. Það er mjög margt
sem ég gæti sagt um þig en erfitt
að gera það í fáum orðum. Fyrst
og fremst er það þakklæti, þakk-
læti fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig og mína, ég held ég hafi
aldrei þakkað þér það nóg, sér-
staklega allur tíminn sem þú
hafðir fyrir son minn, afastrákinn
þinn.
Takk fyrir allt, elsku pabbi.
Guð gaf mér engil sem ég hef hér á
jörð.
Hann stendur mér hjá og heldur um
mig vörð.
Hann stýrir mér í gegnum lífið með
ljósi sínu.
Ég er svo þakklát að hafa hann í lífi
mínu.
Ég vona að hann viti að hann er mér
kær.
Allar mínar bestu hugsanir hann fær.
Hans gleði og viska við alla kemur.
Við flestalla honum vel semur.
Hann sýnir mér svo mikla ást.
Hann vill aldrei sjá neinn þjást.
Hann er minn klettur og hann er mín
trú.
Hann er minn besti pabbi, staðreyndin
er sú!
(Katrín Rut 1979)
Hvíl í friði. Þín dóttir,
Gestheiður Brynja.
Í dag ég kveð þig, pabbi minn, í
hinsta sinn. Minningarnar hafa
streymt fram síðustu daga, minn-
ingar frá æskunni þegar við vor-
um í sveitinni. Alltaf man ég þig
svo léttan og mikill leikur var í
þér við okkur krakkana, stutt í
stríðnina og galsaganginn, alltaf
varstu tilbúinn að bera okkur á
bakinu þegar við nenntum ekki
að labba og alltaf fengum við að
þvælast með þér hvort sem var í
fjósinu, fjárhúsunum eða úti á
túni. Þú kenndir mér svo margt,
kenndir mér að vinna, kenndir
mér að það þurfti að hafa fyrir
hlutunum og standa á eigin fót-
um. Þið mamma börðust áfram
þó að oft væri ansi erfitt og úr
litlu að moða en þú varst alltaf
þinn eigin herra og bóndi af líf og
sál. Þú hugsaðir alltaf vel um allt,
hvort sem það voru dýrin á bæn-
um, túnin eða vélarnar, þér var
annt um þetta allt. Eitt var þér
líka sérstaklega annt um en það
var Glæsibæjarkirkja, kirkjan
þín eins og þú sagðir svo oft, þar
söngst þú, varst meðhjálpari,
slóst kirkjugarðinn og tókst graf-
ir, já þú áttir alltaf aukastundir
fyrir kirkjuna og þú varst alltaf
mjög trúaður.
Þú ert af þeirri kynslóð sem
lifði tímana tvenna, bjóst í mörg
ár í torfbæ, mundir vel eftir stríð-
inu og hermönnum hér á landi,
sagðir okkur sögur af því þegar
þeir komu heim til afa og ömmu
og reistu byssurnar upp við bað-
stofuvegginn áður en þeir gengu í
bæinn. Þín fyrstu kynni af hey-
skap voru að slá með orfi og ljá og
raka með hrífu, svo kom bylting-
in þegar farið var að notast við
hesta og svo dráttavélar. Það er
ekki skrýtið þó að skrokkurinn
hafi gefið sig, eins og þú vannst
alltaf mikið með höndunum. Ég
man þegar það kom fóðurblanda
heim í 50 kg pokum, allt tókst þú
þetta á herðar þér af vörubíls-
pallinum. Þegar þú fluttir inn á
Akureyri og hættir búskap
varstu nú ekki bjartsýnn á lífið en
eftir nokkra mánuði varstu kom-
inn á fullt í félagsstarf aldraðra
og hafðir varla tíma til alls þess
sem þú þurftir að gera. Síðustu
árin fór verulega að halla undan
fæti hjá þér en alltaf varstu vel
með á nótunum og þín dægra-
stytting var lestur, sast í stólnum
þínum og last allan daginn, þú
fylgdist líka alltaf vel með öllu
sem gerðist í fréttum og heimi
íþróttanna. Alltaf var jafn gaman
að koma til þín eftir heimaleikina
hjá Akureyri (handboltafélagi)
og segja þér frá úrslitunum. Eins
fylgdist þú alltaf vel með barna-
börnunum og varst óspar á að
hvetja þau og hrósa þeim, hvort
sem var vegna íþróttaafreka,
prófa í skólanum eða hvers ann-
ars sem þau tóku sér fyrir hend-
ur og alltaf fannst þeim jafn
spennandi að fá að hitta þig til að
segja frá.
Elsku pabbi, mikið var gaman
að þú skyldir ná að sitja og spjalla
við okkur á 92 ára afmælisdeg-
inum þínum og njóta dagsins með
öllum gestunum þínum. En nú
hefur þú fengið hvíldina, ert laus
við alla verkina og ert vonandi
farinn að njóta þín þarna hinu-
megin og eftir nokkra stund far-
inn að hafa svo mikið að gera að
þú sérð ekki fram úr því eins og
um árið þegar þú fluttir úr sveit-
inni. Guð blessi þig, pabbi minn,
og friður sé með þér. Takk fyrir
allar stundirnar sem við áttum
saman, við hittumst síðar. Þinn
Jón Árelíus (Brói).
Ég er svo lánsamur að hafa
fengið að alast upp að stórum
hluta hjá afa mínum og ömmu.
Því var hann afi mér svo miklu
meira en bara besti afi í heimi.
Ég á ótrúlega margar góðar
minningar um afa. Sérstaklega
man ég eftir því hvað við bjugg-
um vel að eiga hvor annan á
sumrin, þegar frí var í skólanum.
Afi var hættur að vinna vegna
aldurs, ég ekki byrjaður, og því
var nægur tími til að brasa.
Afi hafði alltaf nóg fyrir stafni
og var duglegur að finna sér eitt-
hvað til dundurs. Ég fékk oft að
þvælast með honum og stundum
fyrir honum. Það var til dæmis
mikið sport að fá að brasa í garð-
inum með afa, taka upp kartöflur
og slá grasið. Hann hafði mikla
þolinmæði gagnvart klaufa-
skapnum í mér, leiðbeindi mér af
yfirvegun og tók því ekkert illa
þegar ég, í öllum ákafanum, rak
hrífuskaft bylmingsfast í ennið á
honum, svo sást á honum í fleiri
vikur. Hann græjaði bara hrífu
með minna skafti og málið var
leyst.
Óteljandi göngutúrar, hand-
bolta- og fótboltaleikir á gangin-
um í Fjóló og badminton í betri
stofunni er meðal þess sem kem-
ur upp í hugann þegar ég hugsa
til baka. Það var líka gaman að
labba með afa í bæinn til að fara í
banka eða endurnýja happdrætt-
ismiða. Hann þekkti svo marga
og stoppaði annan hvern mann á
leiðinni til að ræða heimsmálin.
Það var afar fróðlegt, en ekki
skemmdi fyrir, að yfirleitt var
komið við í sjoppu á leiðinni heim.
Eins og flestir vita sem þekktu
afa þá var hann stórtenór og söng
mikið á meðan hann hafði heilsu
til. Á föstudögum, þegar hann tók
til hendinni og þurrkaði af heima
fyrir, var tíminn gjarnan notaður
til að æfa sönginn. Það voru mjög
notalegar stundir og ófá lögin
sem ungur maður lærði að syngja
með afa sínum.
Afi horfði mikið á íþróttir,
hafði bæði gaman af handbolta og
fótbolta og var auðvitað KA-mað-
ur. Það voru miklar gæðastundir
að horfa á góðan handboltaleik
með afa. Þá var einbeitingin alltaf
í hámarki og þögult samkomulag
í gildi á milli okkar um að afi
fylgdist með stigatöflunni, enda
með eindæmum athugull og
áreiðanlegur maður.
Elsku afi minn, takk fyrir allar
góðu stundirnar og takk fyrir að
styðja mig í einu og öllu.
Jón Þór.
Mig langar með örfáum orðum
að minnast föðurbróður míns,
Þorvaldar H. Jónssonar, sem lést
á Dvalarheimilinu Hlíð 24. nóv-
ember sl. Valdi frændi minn, eins
og ég kallaði hann, var mér afar
kær. Ég var víst ekki nema um 5
ára gömul þegar ég fór fyrst að
fara í sveitina til hans á Tréstöð-
um, en afi og amma bjuggu þá
líka þar, en síðar tóku Valdi og
Hanna kona hans alveg við búinu.
Ég hlakkaði alltaf til að fara í
sveitina til þeirra á vorin, en ég
átti átta góð sumur þar. Það var
alltaf nóg að gera og reyndi ég
eftir bestu getu að gera eitthvert
gagn, en eflaust hef ég verið eitt-
hvað til trafala svona til að byrja
með. Á þessum tíma voru vinnu-
brögðin við sveitastörfin ekki nú-
tímaleg, kýrnar voru handmjólk-
aðar, slegið var með orfi og ljá og
heyið rakað með hrífu, síðar
komu vélarnar og þá varð allt
miklu léttara og auðveldara.
Valdi frændi var alltaf góður við
mig, hann gat verið svolítið stríð-
inn, en gamansamur. Hann gat
líka skipt skapi ansi fljótt, en það
stóð aldrei lengi. Ég á mjög góð-
ar minningar um þessi sumur á
Tréstöðum sem voru ljúf og góð.
Þegar þau Valdi og Hanna fluttu
til Akureyrar fór ég oft í heim-
sókn til þeirra og var alltaf gam-
an að rifja upp sumrin í sveitinni.
Valdi dvaldi í Hlíð síðustu árin,
heilsunni hrakaði, en hann gat þó
lesið „ástarsögurnar“ sínar lengi
vel. Elsku Hanna mín og fjöl-
skyldur, ég votta ykkur mína
innilegustu samúð. Elsku Valdi
frændi, þakka þér innilega fyrir
öll árin. Guð blessi þig. Þín
frænka,
Ragna.
Þorvaldur Heiðdal
Jónsson
Móðir mín, tengdamóðir mín og amma
okkar,
KRISTÍN H. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
Reykjavík,
lést á Elliheimilinu Grund miðvikudaginn
26. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
.
Erlendur J. Ólafsson, Aðalheiður Sigurjónsdóttir,
Ingunn Ósk Erlendsdóttir,
Birna Rún Erlendsdóttir,
Ari Sveinn Erlendsson.
✝
Ástkær sambýliskona mín,
SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Viðarrima 4,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 3. desember.
Jakob Jónsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALGERÐUR GÍSLADÓTTIR
áður til heimilis að Álfalandi 8,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 1. desember.
Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju
mánudaginn 8. desember kl. 13.00.
Hjartans þakkir til starfsfólks dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Grundar fyrir einstaka umönnun, virðingu og hlýju.
Sólborg Bjarnadóttir, Sigurður Kristinsson,
Dagbjört Bjarnadóttir, Páll Högnason,
Hjalti Bjarnason, Kristín Kristjánsdóttir,
Sigríður Bjarnadóttir, Jón Orri Magnússon,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Frændi okkar og vinur,
GUÐMUNDUR HELGI SIGURJÓNSSON,
Strandgötu 40,
Neskaupstað,
lést mánudaginn 1. desember.
Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju
laugardaginn 6. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Erna Grétarsdóttir og Jolanta Krawczyk.
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN S. EINARSSON
húsasmíðameistari,
lést að morgni miðvikudagsins 3. desember
á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Kristín Björg Jónsdóttir, Jón Hlífar Aðalsteinsson,
Margrét Jónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir
og mágur,
MARINÓ ÞÓRÐUR JÓNSSON,
flugmaður og flugkennari,
Furugrund 70,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 9. desember kl. 15.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi.
Berghildur Jóhannesdóttir Waage
og fjölskylda,
Sigurður Jónsson, Sigurlína Guðnadóttir
og fjölskylda.
✝
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Digranesheiði 23,
Kópavogi,
fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn
8. desember klukkan 11.00.
Ykkur sem viljið minnast hennar er bent á
Von, félag til styrktar skjólstæðingum
gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi.
Jón Ingi Skúlason, Gerður Helgadóttir,
Þórdís Kristín Öfjörð, Ingólfur Einarsson,
Sveinn Skúlason, Helga Hjartardóttir,
Þóra Skúladóttir, Ríkharður Jónsson,
Ingigerður Skúladóttir, Hrafn Sigurðsson,
Magnús Þórarinn Öfjörð, Þórunn R. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐJÓN S. SIGURJÓNSSON
vélvirki,
Veghúsum 27,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 29. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Aðstandendur þakka auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk á 2. hæð suður á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir
einstaklega góða umönnun og velvild.
Randy Jonna Leonsdóttir,
Helga Leona Friðjónsdóttir, Pauli Debes,
Sigurjón Arthur Friðjónsson, Vilma Björk Ágústsdóttir,
Randý Baldvina Friðjónsdóttir, Logi Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.