Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverð-
launa kvenna, voru kynntar í Aðalsafni Borgarbókasafns
Reykjavíkur í gær. Alls eru níu bækur tilnefndar til
verðlaunanna, þrjár í hverjum flokki, þ.e. flokki fag-
urbókmennta, fræðibóka og barna- og unglingabóka.
Í flokki barna- og unglingabóka eru tilnefndar bæk-
urnar: Á puttanum með pabba eftir Kolbrúnu Önnu
Björnsdóttur og Völu Þórsdóttur; Hafnfirðingabrand-
arinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og Vinur minn,
vindurinn eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.
Í umsögn dómnefndar um Á puttanum með pabba
segir m.a.: „Sagan er fjörlega og vel skrifuð og fram-
vindan er ófyrirsjáanleg og spennandi. Bókin snertir á
því hvernig er að eiga foreldra af mismunandi þjóðerni.“
Um bók Bryndísar segir: „Sagan er vel skrifuð og
skemmtileg. Þessi bók snertir á viðkvæmum málefnum
eins og einelti, kvíðaröskun unglinga, ástinni og ást-
arsorginni og fjallar um þessi mál á raunsæislegan hátt,
án þessa að bjóða upp á einfaldar lausnir.“ Um bók
Bergrúnar segir: „Bókin er mild og lágróma og það er
kyrrð yfir henni. Hún færir nærumhverfi barna í sam-
hengi og gerir náttúruna og náttúrufyrirbæri sem börn-
in þekkja úr sínu daglega umhverfi skiljanlegri.“
Óvenjuopinská ljóð
Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar bækurnar:
Englaryk eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur; Lóabora-
toríum, eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og Ástin ein
taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu
Jökulsdóttur.
Í umsögn dómnefndar um Englaryk segir m.a.: „Sag-
an er sögð frá nokkrum sjónarhornum og höfundi tekst
vel að varpa ljósi á flókin sambönd persóna og skapar
skemmtilega togstreitu þeirra á milli. Hinn íslenski smá-
bær birtist hér laus við allar klisjur og stíllinn er fal-
legur, áreynslulaus og tær.“ Um Lóaboratoríum segir:
„Teikningarnar í bókinni hafa sterk höfundareinkenni
og textinn er meinhæðinn og beittur og vísar beint í nú-
tímann. Lóa sýnir okkur í þessu verki að hún er ótrú-
lega nösk að greina íslenska þjóðarsál í sinni rannsókn-
arstofu. Um bók Elísabetar segir: „Ljóðin lýsa á óvenju
opinskáan og einlægan hátt ástarsambandi ljóðmæl-
anda við ofbeldismann og hvernig hún festist í þrá-
hyggju og ástarfíkn. Þetta er ljóðabálkur í þremur hlut-
um sem byrjar í tilhugalífinu og endar með skilnaði.“
Frumkvöðlarannsókn
Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru til-
nefndar bækurnar: Saga þeirra, sagan mín eftir Helgu
Guðrúnu Johnson; Kjaftað um kynlíf eftir Siggu Dögg
og Ofbeldi á heimili – Með augum barna í ritstjórn Guð-
rúnar Kristinsdóttur.
Í umsögn dómnefndar um bók Helgu segir m.a.:
„Hér er einstaklega áhugaverð og spennandi saga sett
saman úr mörgum ólíkum heimildabrotum. Hún veitir
sjaldgæfa innsýn í líf kvenna sem allar fóru gegn
straumnum, hver á sinn hátt. Bókin er kærkomin og
fróðleg heimild um líf og örlög kvenna á þessu tíma-
bili.“ Um bók Siggu segir: „Hér er komin heildstæð
handbók fyrir kynfræðslu. Hún er til þess fallin að opna
og hvetja til umræðu, þar sem jafnframt er lögð áhersla
á að svigrúm þurfi að vera til að skoða fjölbreytileikann
og bera virðingu fyrir honum.“ Um bókina Ofbeldi á
heimili – Með augum barna segir: „Bókin samþættir
niðurstöður yfirgripsmikillar könnunar á þekkingu
barna á heimilisofbeldi, viðtöl við börn og mæður þeirra
sem búið hafa við ofbeldi á heimilum ásamt greiningu á
orðræðu fjölmiðla um heimilisofbeldi. Þetta er frum-
kvöðlarannsókn sem á sér fáar hliðstæður erlendis og
er einstök í íslensku samfélagi, þar sem ofbeldi á heim-
ilum hefur ekki áður verið rannsakað frá sjónarhóli
barna.“ silja@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Fjöruverðlaunin Guðrún Eva, Elísabet, María Hjálmtýsdóttir (fulltrúi Lóu), Guðrún, Helga Guðrún, Sigga Dögg,
Bergrún Íris, Bryndís og Kolbrún Anna voru viðstaddar, þegar greint var frá tilnefningunum í gær.
Níu bækur tilnefndar
Fjöruverðlaunin verða afhent í janúar á nýju ári
Bókmenntaverðlaun kvenna fyrst veitt hérlendis 2007
Boðið verður
upp á hádeg-
isdjass alla
föstudaga á
Kex hosteli í
desem-
bermánuði með
tónleikum sem
hefjast kl.
12.15 og eru
um klukku-
stund að lengd.
Þannig verður
sköpuð skemmtileg stemning þar
sem tónlist og veitingar renna nið-
ur með ófyrirsjáanlegum hætti,
segir í tilkynningu.
Fyrstu hádegistónleikarnir fara
fram í dag og er það Tómas R. Ein-
arsson kontrabassaleikari sem ríð-
ur á vaðið með Gunnari Gunn-
arssyni píanóleikara og Snorra
Sigurðarsyni sem leikur á trompet
og bongótrommur.
Djassgeggjari
Tómas R. Einarsson
Hádegisdjass
á föstudögum
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Lau 3/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 4/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Lau 10/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 13:00 Sun 11/1 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 6/12 kl. 20:00 Lau 27/12 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
Sun 7/12 kl. 20:00 Fös 9/1 kl. 20:00
Lau 13/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Fös 12/12 kl. 20:00 Fös 19/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas.
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 14/12 kl. 18:00
aukasýning
Sun 28/12 kl. 20:00
Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k. Mán 29/12 kl. 20:00
Fös 12/12 kl. 20:00 7.k. Sun 28/12 kl. 18:00
aukasýning
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Lau 13/12 kl. 13:00 aukas. Lau 20/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Lau 13/12 kl. 15:00 Lau 20/12 kl. 15:00 aukas.
Sun 7/12 kl. 13:00 aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 15:00 Sun 14/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00 aukas.
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Karitas (Stóra sviðið)
Fös 5/12 kl. 19:30 21.sýn Þri 30/12 kl. 19:30 26.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 29.sýn
Lau 6/12 kl. 19:30 22.sýn Sun 4/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/1 kl. 19:30 30.sýn
Fös 12/12 kl. 19:30 23.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 28.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Konan við 1000° (Kassinn)
Fös 5/12 kl. 19:30 36.sýn Mið 7/1 kl. 19:30 38.sýn Mið 14/1 kl. 19:30 40.sýn
Lau 6/12 kl. 19:30 37.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 39.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 41.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 6/12 kl. 11:00 Lau 13/12 kl. 11:00 Lau 20/12 kl. 11:00
Lau 6/12 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 13:00 Lau 20/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 14:30 Lau 13/12 kl. 14:30 Lau 20/12 kl. 14:30
Sun 7/12 kl. 11:00 Sun 14/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 11:00
Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 14:30 Sun 14/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 10 leikárið í röð.
Ofsi (Kassinn)
Sun 7/12 kl. 19:30 5.sýn Lau 13/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 19:30
Sýning sem hefur fengið frábærar viðtökur.
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30 Mán 29/12 kl. 13:00 Lokas.
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Ævintýrið um Augastein (Aðalsalur)
Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 7/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00
MP5 (Aðalsalur)
Fös 5/12 kl. 20:00 Fös 12/12 kl. 20:00 Mán 15/12 kl. 20:00
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Lau 6/12 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 15:00
Lísa og Lísa (Aðalsalur)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
Aðventa (Aðalsalur)
Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00
Átta ungir listamenn
opna í kvöld kl. 20
Hina konunglegu
teiknisýningu í sýning-
arrýminu Ekkisens
sem er í kjallara Berg-
staðastrætis 25B.
Listamennirnir eru
vinir sem hittast af og
til og teikna saman. Nú
sýna þeir afrakstur
þessara teiknifunda og
segir í tilkynningu að
teikning sé þeim
einkar hugleikin.
Listamennirnir eru
Matthías Rúnar Sig-
urðsson, Karl Torsten
Ställborn, Sigurður
Ámundason, Arn-
grímur Sigurðsson,
Héðinn Finnson, Gylfi
Freeland Sigurðsson,
Sölvi Dúnn Snæbjörns-
son, Arnór Kári Eg-
ilsson.
Teikningar ungra listamanna í Ekkisens
Teiknararnir Listamennirnir sýna teikniáhöldin.