Morgunblaðið - 10.12.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Nú er vetur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
S805-2Y 110cm
ál snjóskófla
1.990
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.495
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
1.990
Rúðuskafa
190
Hálkusalt 5 kg
590
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
745
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Norðaustan-fárviðri geisaði á norð-
anverðum Vestfjörðum í gær og í
nótt og fór vindurinn langt yfir 50
metra á sekúndu í mestu hviðum.
Lögreglan á Ísafirði hvatti fólk til að
halda sig innandyra, Mennta-
skólanum á Ísafirði og grunnskól-
unum í Bolungarvík og á Ísafirði var
lokað, svæði voru afgirt vegna snjó-
flóðahættu, flug fellt niður og allir
bátar voru við bryggju enda voru 43
metrar á sekúndu á miðunum úti
fyrir Vestfjörðum auk mikillar öldu-
hæðar. Veðurstofa Íslands gaf til að
mynda út viðvörun vegna sjávar-
flóða en mikil ölduhæð, yfir 12 metr-
ar af norðan og norðnorðaustan, var
undan Vestfjörðum í gærkvöldi sem
og í nótt.
Veðurofsanum fylgdi auk þess
mikil snjókoma og byrgði bylurinn
mönnum sýn. Lögreglustjórinn á
Vestfjörðum og almannavarna-
nefndin á norðanverðum Vest-
fjörðum lokuðu veginum milli Ísa-
fjarðar og Súðavíkur um miðjan dag
í gær vegna aðstæðna. Samkvæmt
veðurspá mun veðrið ganga niður
um hádegi í dag og gert er ráð fyrir
að vegurinn verði opnaður í kjölfar-
ið. Á tímabili var einnig ófært á öðr-
um vegum og má þar nefna Kletts-
háls, Kleifaheiði, frá Bjarnarfirði að
Gjögri og Hálfdán en þungfært var
víðast hvar í Ísafjarðardjúpi.
Rafmagnslaust á Barðaströnd
Vinnuflokkur sem sendur var á
Barðaströnd til viðgerðar á raf-
magnslínum í gær varð frá að
hverfa þegar veðrið skall á undir
hádegi. Þar hefur verið rafmagns-
laust frá því aðfaranótt þriðjudags.
Vinnuflokkar halda aftur af stað
þegar veðrið gengur yfir en Krist-
ján Haraldsson, orkubússtjóri Orku-
bús Vestfjarða, sagði í gær að það
yrði þó ekki fyrr en í fyrsta lagi í
dag.
„Þetta er náttúrlega mjög
slæmt, það á hellingur eftir að eyði-
leggjast hér í frystikistum og ís-
skápum,“ segir Ásgeir Sveinsson,
bóndi á Innri-Múla og formaður
bæjarráðs Vesturbyggðar sem hef-
ur verið án rafmagns. „Þetta hefur
auk þess mikil áhrif á störf hérna á
bænum. Rúningsmenn sitja hér að-
gerðarlausir og fyrir þeim er þetta
ekkert annað en fjártjón. Svo er
náttúrlega stór hausaverkun á
Brjánslæk sem er ekki í vinnslu. Það
verður eflaust óhemju tap“
Vindurinn fór langt yfir 50 metra á sekúndu í verstu hviðum í gær en spáð er betra veðri í dag þrátt fyrir áframhaldandi rok
Morgunblaðið/Sigurjón
Fárviðri Menntaskólanum, sem og grunnskólanum, á Ísafirði var lokað.Bylur Íbúar á Vestfjörðum héldu sig flestallir innan dyra í gær enda gekk vonskuveður yfir svæðið.
Veðurofsi gerir vart
við sig á Vestfjörðum
Stofnunum var lokað, flug fellt niður og bátar við bryggju
Búist er við því að veðrið muni skána upp úr hádegi í dag
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í svari skipulagsfulltrúa Reykjavíkur til umsagnaraðila
um breytingar á skipulagi við Hlíðarendasvæði kemur
fram að gagnrýni á lokun svokallaðrar neyðarbrautar á
Reykjavíkurflugvelli verði ekki svarað efnislega þar sem
brautin sé hvorki á deili- né aðalskipulagi.
Þetta kemur fram í bréfi sem umhverfis- og skipulags-
svið borgarinnar sendi umsagnaraðilum í fyrradag, fjór-
um mánuðum eftir að umsagnir bárust. Fimm þeirra sex
aðila sem sendu inn umsagnir vegna breytinganna gagn-
rýndu áform um lokun flugbrautarinnar. Það eru Sig-
urður Thoroddsen arkitekt, samtökin Hjartað í Vatns-
mýrinni, Samtök ferðaþjónustunnar, Mýflug og
Icelandair Group. Svar skipulagsfulltrúa er í öllum til-
vikum hið sama; að flugbrautina sé hvorki að finna á
deiliskipulagi sem tók gildi 6. júní 2014 né á aðalskipulagi
Reykjavíkur 2010-2030. „Athugasemdin varðar því ekki
efnislega þætti deiliskipulagstillögunnar,“ segir í
svarinu.
„Þetta bréf staðfestir það sem við höfðum óttast að það
ætti að bolast áfram með þetta mál í þeirri von að það
verði ekki stöðvað,“ segir Friðrik Pálsson hjá félagasam-
tökunum Hjartað í Vatnsmýrinni. Í umsögn Sigurðar
Thoroddsen kemur fram að brautinni verði ekki lokað
nema með aðkomu innanríkisráðherra. Samtök ferða-
þjónustunnar vitna í áhættumat Isavia og að Rögnu-
nefndin sé enn að störfum. Mýflug tiltekur atriði tengd
öruggari heilbrigðisþjónustu eins og nálægð flugvallar
við Landspítala. Icelandair Group vísar einnig til áhættu-
mats Isavia og telur öryggi flugsamgangna stafa ógn af
lokun flugbrautarinnar. Hjartað í Vatnsmýrinni tiltekur
ofangreind atriði samhliða því að ólýðræðisleg vinnu-
brögð eru gagnrýnd í ljósi áskorunar um 70 þúsunda
manns um að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.
Ekkert svar frá borginni
Borgin svarar ekki efnislega gagnrýni vegna fyrirhugaðrar
lokunar á neyðarbraut á flugvellinum í Vatnsmýrinni
Morgunblaðið/RAX
Neyðarflugbraut Umrædd flugbraut er á norðaust-
urhluta Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni.
Þótt kröftuglega hafi hvesst á Vestfjörðum í gær, þá hefur Kári verið ansi
kröftugur víðar um land síðustu daga. Tafir urðu til að mynda á umferð
undir Hafnarfjalli í gær en fiskflutningabíll, hlaðinn skötusel og öðrum
fisktegundum, fauk þar út af veginum kvöldið áður þegar hvessti á suð-
vesturhorninu. Gærdagurinn var nýttur til þess að tæma bílinn en tjónið
er talið nema tugum milljónum króna. Flutningabíllinn var einn af fimm
bílum sem fuku út af veginum þetta kvöldið.
Fiskinum landað í annað sinn
VINDHVIÐUR FEYKJA STÆRSTU BÍLUM
Löndun Skötuselnum var landað í annað sinn, í þetta skiptið undir Hafnarfjalli.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason