Morgunblaðið - 10.12.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Desembertilboð
– á völdum postulínsborðbúnaði,
glösum og hnífapörum
Komdu
í verslu
n RV
og sjáð
u glæsil
egt
úrval af
borðbún
aði
RV
2014/11
Verslun RV er opin virka daga kl 8-18 og laugardaga kl 10 -16
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég ólst upp hér í næstahúsi og listagarðurinnfyrir framan safnið varmitt leiksvæði. Ég var
mjög forvitin um þessi verk sem
barn, en mér finnst ég ekki hafa
skilið þau að neinu ráði fyrr en
núna þegar ég hef kynnt mér hug-
myndafræði Einars og hvernig
hann kaus að lifa sínu lífi, þessi
merkilegi maður,“ segir Hekla El-
ísabet Aðalsteinsdóttir en hún
ásamt fjórum öðrum nemum í
sviðslistadeild Listaháskóla Ís-
lands, ætlar að sýna allsérstakt
verk í Listasafni Einars Jónssonar
í dag. Verkið heitir Finding Einar,
a guided tour through the Museum
of Einar Jónsson.
Guðs vegur eða frjáls vilji
„Okkur var blandað saman í
hóp, nemum á sviðshöfundabraut
og samtímadansbraut, og gert að
búa til verk í óhefðbundnu rými.
Þetta er hluti af seríu lokaverk-
efna í áfanga sem heitir Óhefð-
bundin leikrými, og okkar hópur
er einn af fjórum,“ segir Hekla og
bætir við að fjöllistamaðurinn
Hannes Sigurðsson taki einnig
þátt í verkinu þeirra. „Þetta er
marglaga samsuðuverk, við vörp-
um litum á sumar höggmyndirnar,
spilum tónlist, dönsum, tölum,
leikum. Verkið flæðir hér milli
rýma og innan um höggmyndirnar
og það færist líka upp í íbúð þeirra
hjóna, Einars og Önnu. Áhorf-
endur taka þátt í sýningunni, þeir
fara í einskonar ratleik sem leiðir
þá lengra og lengra inn í safnið,
lengra og lengra inn í hug-
myndafræði Einars um andleg
málefni. Líf og list Einars er við-
fangsefni okkar. Við kynntum okk-
ur hvernig Einar skapaði sína list,
hver hugmyndafræði hans var að
baki verkunum. Hann hafði mikinn
áhuga á andlegum málefnum og
það hafði stöðug áhrif á sköpun
hans. Í mörgum verkanna er hann
að fást við trú og trúarspeki. Hann
var mikill tvíhyggjumaður og velti
fyrir sér þessum tveimur leiðum
mannsins í lífinu, annars vegar að
feta blindandi Guðs veg og hins
Drögum fram dul-
rænar hliðar hússins
Listasafn Einars Jónssonar lifnar við í dag þegar hópur af nemendum úr Listahá-
skóla Íslands ætlar að leika sér með rýmið þar í sýningu þar sem meðal annars
verður dansað innan um stórbrotin verk Einars og ferðast um safnið og farið upp
í íbúð þeirra hjóna sem þar bjuggu árum saman.
Morgunblaðið/Þórður
Lifnar við Í einum salnum fór þessi á stjá og snerti suma áhorfendur.
Uppi á lofti Í íbúð Einars og Önnu konu hans, hafði Hannes Sigurðsson
brugðið sér í hlutverk Einars þar sem hann sat við glugga og spjallaði.
Fatahönnuðurinn Michael Berkowitz
flytur hádegisfyrirlestur í Listahá-
skóla Íslands í dag, miðvikudag. Yfir-
skrift fyrirlestrarins er Hönnun á
hreyfingu – Að hanna praktískan nú-
tímaklæðnað.
Berkowitz á að baki 25 ára feril í
tískuiðnaðinum og er hann maðurinn
á bak við nokkrar þekktustu flíkur
samtímans. Til dæmis má nefna
hlaupastuttbuxur sem hann hannaði
fyrir Nike og nærföt fyrir Calvin
Klein. Berkowitz mun fjalla um skap-
andi ferli fatahönnuðarins, mikilvægi
rannsóknarvinnu og leitina að inn-
blæstrinum.
Berkowitz mun að auki ræða um
hvernig hönnuður getur sett mark
sitt á alþjóðlegan tískuiðnað. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 12.10 í Listahá-
skóla Íslands, GESTAGANGI í Þver-
holti 11, fyrirlestrarsal A, og eru allir
velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Vefsíðan www.michaelhberkowitz.com
Tíska Berkowitz mun meðal annars ræða um skapandi ferli fatahönnuðarins.
Maðurinn á bak við fötin
Í kvöld klukkan 18 hefst svokölluð
sælustund í skammdeginu og verður
hún haldin í Hljómskálagarðinum. Um
fjölskylduskemmtun er að ræða og
fer hún fram í Jöklu, tjaldi Sirkuss Ís-
lands. Þar munu koma fram fjölmarg-
ir skemmtilegir listamenn sem munu
leika listir sínar, flytja jólalög, fara
með hugvekjur og segja sögur. Að-
gangseyrir er aðeins 1.500 kr., en
ókeypis er fyrir alla sem hafa ekki
efni á jólatónleikum í ár.
Á meðal þeirra sem fram koma eru
Svavar Knútur, Unnur Sara Eldjárn,
Illgresi, Sönghópurinn Veirur, JólaHe-
múllinn og Vox Populi.
Endilega …
… kíkið í
sirkustjaldið
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónleikar Sælustund verður í kvöld.
Í gær var mikil fálkahátíð í Hameem,
sem er 150 kílómetra vestan við Abu
Dhabi í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum. Þetta mun hafa verið al-
þjóðleg hátíð og meðal þess sem fram
fór var keppni, þar sem fálkar og fálka-
temjarar reyndu með sér. Hér má sjá
fálkatemjara með gullið sitt, fálkann
sinn, en þeir tóku þátt í keppninni.
Ekki fer sögum af því hvernig leikum
lyktaði en fálkar eru afar vinsælir
meðal höfðingja í þessum heimshluta.
Fálkar eru vinsælir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Fálkatemjarar koma saman á
hátíð tileinkaðri fuglinum fagra
AFP
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.