Morgunblaðið - 10.12.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ekki hefur enn verið leyst úr ágrein-
ingi stéttarfélagsins Eflingar og
ræstingafyrirtækisins Hreint ehf.
um launa- og starfskjör pólsku
starfsmannanna, sem vinna við ræst-
ingar á Landspítalanum.
„Við höfum verið að fara yfir þessi
mál og það er alveg greinilegt að það
er ýmislegt sem hefur vantað upp á
hjá þeim og enn vantar uppá. Þetta
er engan veginn búið. Það er ennþá
tekist á um nokkur atriði,“ segir
Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður
kjaramálasviðs Eflingar.
Á fundi 26. nóvember lýsti fyrir-
tækið því yfir að það myndi leggja
fram tímaskráningar og launaseðla
og leiðrétta það sem upp á vantaði.
Harpa segir að borist hafi gögn sl.
föstudag sem félagið hefur verið að
fara yfir undanfarna daga og er það
að undirbúa frekari kröfur á hendur
Hreint fyrir hönd starfsfólksins.
,,Við fengum frá þeim upplýsingar
um allan hópinn, hvað þeir hefðu
verið að greiða, þ.e.a.s. launaseðla og
síðan fengum við nokkurskonar
vaktafyrirkomulag sem þeir hafa á
einhverjum tímapunkti stillt upp
gagnvart hverjum og einum, þó það
komi alls ekki fram í ráðningarsamn-
ingi,“ segir hún. Auk þessa hefur fé-
lagið fengið nafnlausar stikkprufur
frá nokkrum starfsmönnum um
hvernig raunvinnutíma þeirra er
háttað. Hefur stéttarfélagið borið
raunvinnutíma starfsfólksins saman
við greiðslur og segir Harpa að mik-
ið beri í milli.
Hún segir stéttarfélagið gera al-
varlegar athugasemdir við fyrir-
komulag varðandi vinnutíma. Fyrir-
tækið hafi tekið upp á því að greiða
aðeins sjö og hálfan tíma fyrir átta
tíma viðveru á dagvinnutíma. ,,Við
höfum aldrei haft hugmyndaflug til
þess að fyrirtæki gætu stillt þessu
upp með þessum hætti.“
Að sögn Hörpu hefur stéttarfélag-
ið þó einnig fengið viðurkenningu
fyrirtækisins á ýmsum atriðum þar
sem það fellst t.d. á að greiða fyrir
akstur ef strætisvagnar ganga ekki
og fyrir svokölluð lokaþrif, sem ekki
teljast vera hefðbundin dagræsting.
Enn sé hins vegar deilt um greiðslur
fyrir alla viðveru starfsfólksins.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, fer þungum orðum um þetta
mál, og um nýlega uppsögn ræsting-
arfólks hjá Stjórnarráðinu, í leiðara
nýjasta fréttablaðs Eflingar. „Nauð-
synlegt er að stéttarfélög beini at-
hygli sinni í ríkara mæli að þessari
starfsgrein og fylgi málum fast eftir.
Efling-stéttarfélag hlýtur að taka
þessi mál inn í komandi kjarasamn-
inga sem leiðarljós í myrkri tillits-
lausra útbjóðenda á störfum ræst-
ingafólks sem sjá stundargróðann
einan sem sitt markmið,“ skrifar
hann.
Stéttarfélagið Efling undirbýr frekari kröfur á hendur Hreint ehf. vegna starfsfólks við ræstingar á
Landspítalanum Enn er deilt um greiðslur fyrir viðveru starfsfólksins að sögn Hörpu Ólafsdóttur
Ennþá tekist á um nokkur atriði
Morgunblaðið/Ómar
Réttindi Tekist hefur verið á um kjör ræstingafólks á Landspítalanum.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Reykjavíkurborg og bílastæðasjóður hyggjast taka upp
gjaldskyldu á almennum bílastæðum við Laugaveg á
milli Rauðarárstígs og Ásholts, Brautarholt vestan Nóa-
túns, Skipholt vestan Nóatúns, Stórholt frá Þverholti að
Skipholti og við Ás-, Mjölnis- og Traðarholt. Verða göt-
urnar á gjaldsvæði 2 þar sem gjaldskylda er frá níu að
morgni til sex á daginn virka daga en um helgar er gjald-
skylda frá tíu til fjögur. Skipulagsbreytingar munu einn-
ig breyta Ás-, Mjölnis- og Traðarholti í einstefnugötur.
Kemur þetta til vegna fyrirhugaðrar byggingar
stúdentaíbúða á svokallaðri bílastæðalóð við Brautarholt
7 sem voru kynntar á íbúafundi í gær.
Borgin kemur til móts við íbúa
Nikulás Úlfar Másson, skrifstofustjóri skipulags,
bygginga og borgarhönnunar hjá Reykjavíkurborg, seg-
ir að íbúar við þessar götur geti sótt um íbúakort eins og
þekkist í miðbænum og með þessum breytingum fjölgi
bílastæðum við göturnar.
„Íbúar hafa haft áhyggjur af að umhverfið tapi ein-
hverjum bílastæðum þegar þessi bygging rís. Við vildum
kynna á þessum fundi hvað borgin ætlar að gera til að
koma til móts við þá.“
Lagning bíla við Ásholt er oft ansi frumstæð en
flestir leggja á ská þannig að ekki er hægt að mætast,
komi þær aðstæður upp. „Til að halda þeim bílastæðum
verður einstefna upp Ásholt, Mjölnisholt og Traðarholt.“
Við Lindargötu eru íbúðir fyrir stúdenta og könn-
uðu Nikulás og samstarfsmenn hans bílaeign stúdenta.
„Það eru komin fordæmi fyrir því að gera bara eitt bíla-
stæði fyrir hverjar fjórar íbúðir hjá stúdentum, til að
mynda á Lindargötu. Við gerðum grófa könnun á Lind-
argötu og þar eru 25% nemenda á bíl,“ segir hann og
bætir við að hann kannist við áhyggjur íbúa af því að
stúdentar fylli öll bílastæði hverfisins.
Útvíkkun gjaldsvæða
Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar kynnti fyrir
skemmstu megináherslur sínar fyrir næsta ár þar sem
m.a. kom fram frekari útvíkkun gjaldsvæða. Á næsta ári
má því sjá bílastæðaverði norðan Hverfisgötu, við Braut-
arholt og nágrenni, og þá verður farið að sekta vestar í
Vesturbænum.
Lítið hefur dregið úr fjölda stöðvunarbrotagjalda að
undanförnu og því samþykkti borgin fyrir skemmstu að
hækka sektir fyrir stöðvunarbrot um 100% með það að
markmiði að fækka sektum, sérstaklega vegna þeirra
sem leggja í blá bílastæði, sem eru fyrir fatlað fólk.
Gjaldið er nú 10.000 krónur.
Einstefna og gjaldskylda
verða tekin upp við holtin
Nýjar stúdentaíbúðir Þrjár götur verða einstefnugötur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúafundur Gert er ráð fyrir að íbúðarhús fyrir stúdenta rísi á lóðinni við Brautarholt 7. Þau áform voru kynnt á
íbúafundi í gær og þar kom m.a. fram að taka á upp gjaldskyldu fyrir að leggja bílum á svæðinu.
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til
að tæplega 358 milljóna kr. fjárhæð
verði bætt við ófyrirséð útgjöld sjö
ríkisstofnana vegna kostnaðar af
eldsumbrotunum norðan Vatnajök-
uls. Leggur nefndarmeirihlutinn til í
breytingartillögu við fjáraukalaga-
frumvarpið 2014 fyrir 3. umræðu að
þessi fjárhæð verði tekin af lið fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins yfir
ófyrirséð útgjöld.
„Millifærslurnar koma til viðbótar
329 millj. kr. sem samþykktar voru
við 2. umræðu. Þá eru heildargjöld
vegna eldsumbrotanna komin í 686,8
millj. kr. á yfirstandandi ári,“ segir í
nefndaráliti meirihlutans. Bent er á
að millifærslur vegna eldsum-
brotanna sem lagðar voru til við 2.
umræðu um frumvarpið hafi byggst
á mati á umframkostnaði stofnan-
anna til loka sept-
ember. Nú er lagt
til að millifærðar
verði fjárheimild-
ir sem nema áætl-
uðum umfram-
kostnaði fyrir
mánuðina októ-
ber-desember
sem nemur 357,8
millj. kr. Endurmeta á fjárþörfina á
nýjan leik í árslok og ef í ljós kemur
að fjárheimildirnar reynast umfram
raunkostnað verður mismunurinn
felldur niður í lokafjárlögum. Af
þessari viðbótarfjárhæð renna m.a.
75,2 milljónir til Jarðvísindastofnun-
ar HÍ, 135,8 millj. kr. til almanna-
varnadeildar Ríkislögreglustjóra,
65,9 millj. til Veðurstofunnar og 49,1
milljón fer til Landhelgisgæslunnar.
Heildargjöld vegna
eldsumbrotanna kom-
in í 686,8 milljónir
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
Andvirði: 8.030 kr.
Ilmsápa 100 g - 660 kr. | Ilmpoki 35 g - 1.160 kr.
Sturtusápa 250 ml - 2.380 kr. | Húðmjólk 250 ml - 3.830 kr.
VERBENA GJAFAKASSI
Jólatilboð: 6.350 kr.
SVÍFÐU INN Í
JÓLAHÁTÍÐINA