Morgunblaðið - 10.12.2014, Blaðsíða 11
Rúmlega tuttugu nemendur á öðru ári
samtímadansbrautar og sviðshöfunda-
brautar eru í áfanganum Óhefðbundin
leikrými. Þau koma fram og sýna verk í
dag á ýmsum ólíkum stöðum. Á nám-
skeiðinu var rýmið sjálft uppspretta
sköpunar. Unnið var með óhefðbundin
leikrými þar sem staðsetning, arkitekt-
úr, aðstæður og jafnvel saga rýmisins
var stökkpallur í verklega vinnu. Nem-
endur sýna verk sín á fjórum mismun-
andi stöðum í miðbæ Reykjavíkur í dag
og auk sýningarinnar í Listasafni Einars eru þessar:
Verk 1 Changing Room, staðsetning: Austurbæjarskóli. Gengið inn í
anddyri íþróttaaðstöðu skólans á jarðhæð vestan megin frá horni Vita-
stígs og Bergþórugötu. Sýningar kl. 16:00 og 16:40.
Verk 2 KB, staðsetning: Fyrir framan Kaffibarinn, Bergstaðastræti 1,
mæta í röðina fyrir utan barinn, hjá dyraverði.
Sýning stendur yfir frá kl. 16-17. Áhorfendur geta mætt hvenær sem er
á þeim tíma.
Verk 4 Útsýnið er gott, staðsetning: Mæting fyrir framan aðalinngang
Landakotsspítala, í tröppunum.
Sýningar kl. 18 og 18:40.
Aðgangur er ókeypis en gestir þurfa að skrá sig á netfanginu leik-
list@lhi.is. ATH: Takmarkaður sætafjöldi.
Á Kaffibarnum og Landakotsspítala
ÓHEFÐBUNDIN LEIKRÝMI Á FLEIRI STÖÐUM
Dans Þær spegluðu verkið á milli sín dansararnir Ingileif og Madli Paves og sú þriðja gekk milli verka í salnum.
vegar frjálsum vilja. Einnig hefur
stemningin sem við upplifum hér á
safninu innan um verkin hans að
sjálfsögðu sitt að segja í því hvern-
ig verkið okkar hefur þróast,“ seg-
ir Hekla og bætir við að sýning
þeirra sé leið fyrir fólk til að tengj-
ast Einari og hans hugmynda-
fræði, því það séu kannski ekki
margar leiðir til þess fyrir almenn-
ing. „Þetta safn er svo merkilegt
og þessi mögnuðu verk eru langt á
undan sinni samtíð. Við erum afar
þakklát aðstandendum safnsins að
hafa sýnt okkur það traust að leyfa
okkur að vinna verkið inni á safn-
inu.“ Ásamt Heklu eru í hópnum
þau Jóhann Kristófer Stefánsson
og Haukur Valdimar Pálsson af
sviðshöfundabraut og Ingileif F.
Wechner og Madli Paves af sam-
tímadansbraut.
Verkið Finding Einar, verður
sýnt í þrígang í dag í Listasafni
Einars, kl. 17, 17:40 og 18:20.
Æskilegt er að þeir sem hafa
áhuga á að koma og njóta sýning-
arinnar panti pláss og láti vita af
sér í gegnum netfangið leik-
list@lhi.is Mæta skal fyrir framan
Styttugarðinn á Freyjugötu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Krásir jólanna eru víða á borðum í
desembermánuði og hugsa margir til
þess með skelfingu hversu lengi þeir
verði að losa sig við konfektmolana,
laufabrauðið og rjómaterturnar sem
þeir hafa innbyrt. Í tímaritinu Read-
er’s Digest er grein eftir lækna sem
benda á hvernig nýta megi jólamán-
uðinn til að styrkja bæði líkama og
sál. Til dæmis sé ljómandi gott að fá
sér heitt súkkulaði (sem gert er úr
dökku súkkulaði) því í hóflegu magni
lækki það og jafni blóðþrýsting. Þeir
segja einnig gott að syngja mikið í
þessum mánuði því söngur dragi úr
streitu og auki um leið framleiðslu
oxýtósíns sem er stundum kallað
„ástarhormónið“. Í sumum tilvikum
getur söngur komið á eðlilegum og
djúpum andardrætti, rétt eins og við
iðkun jóga.
Jólainnkaupin geta aukið brennslu
líkamans því á hlaupum um versl-
unarmiðstöðvar má hæglega brenna
á bilinu 200 til 300 hitaeiningum á
klukkustund. Svo er auðvitað tilvalið
að gera ærlega jólahreingerningu í
íbúðinni, geymslunni, háaloftinu eða
garðskúrnum – öll hreyfingin kemur
brennslunni í gang. Læknarnir benda
jafnframt á að það geti verið ein-
staklega gott fyrir sálartetrið að
skrifa jólakort á persónulegum nót-
um því það fylli mann þakklæti í garð
þeirra sem skrifað er til. Jólin geta
því verið heilnæm á ýmsan máta!
Slökun í stað streitu þegar nær dregur jólum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hreyfing Á klukkustundarlöngu búðarápi má brenna allt að 300 hitaeiningum.
Heilsubót jólahátíðarinnar
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -