Morgunblaðið - 29.12.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2014
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
Karlar fremja 97% kynferðislegs
ofbeldis á stúlkum og 71%
brota á drengjum.
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Óskum
landsmönnum
árs og friðar
og þökkum viðskiptin á árinu
Komið og
gerið góð
kaup
Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opið mánud. - föstud. 11:00-18:00
Skoðið frien
dtex.is
Lokað gamlársdag
40-70%
afsláttur
Útsala
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook
Fagleg þjónusta í 60 ár
Óskum viðskiptavinum
okkar um land allt
gleðilegs nýs árs og friðar.
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Ég er upprisan
og lífið. Sá sem
trúir á mig mun
lifa þótt
hann deyi...
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Mikill fjöldi fólks þurfti að leita til
hjálparstofnana um jólin því fjár-
málaendar þeirra náðu ekki saman.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, for-
maður Mæðrastyrksnefndar, segir
að nefndin hafi tekið á móti alltof
mörgum fyrir þessi jól að hennar
mati. Hver einstaklingur sé einum of
mikið.
„Í íslensku þjóðfélagi er að mynd-
ast hópur sem er láglaunafólk og við
sáum fjölgun í þessum hópi hjá okk-
ur fyrir þessi jól,“ segir Ragnhildur.
„Launin hjá þeim sem eru í 100%
starfi duga ekki fyrir framfærslu.
Það kom kona hingað til okkar með
tárin í augunum með skattaskýrsl-
una sína. Hún var með árslaun upp á
tvær milljónir og 472 þúsund krónur.
Það er þessi hópur sem er að stækka
því verðlagið er að hækka.“
Fleiri útlendingar
Ragnhildur segir að aðrir hópar
eigi einnig erfitt í desember, öryrkj-
ar, eldri borgarar og þeir sem hafa
misst vinnuna. Þá sé einnig mikið af
fólki sem ráði ekki við líf sitt vegna
fíkniefnadjöfulsins. Þá tók hún eftir
breytingu meðal fjölda útlendinga
sem þurftu aðstoð.
„Jólin eru erfiður tími fyrir
marga. Vonleysi ríkir því margir sjá
enga lausn. Mér fannst þó nokkur
aukning meðal útlendinga í ár. Þar
eru margir illa settir, illa að sér í
tungumálinu og með litla þekkingu.
Ég tók líka eftir viðhorfsbreytingu,
það eru rosalegir fordómar í gangi
úti í samfélaginu gagnvart þessum
hópi,“ segir Ragnhildur.
Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar var
ekki búið að taka saman hversu
margir fengu aðstoð í ár en Vilborg
Oddsdóttir segir að fjöldinn hafi ver-
ið svipaður og í fyrra. „Fyrir jólin er
öðruvísi hópur sem þarf aðstoð því
desember er dýr mánuður. Fólk sem
er á lágum launum vantar töluvert
upp á til að ná endum saman.“ Hún
segir að komandi hækkun matar-
skatts hafi oft borið á góma fyrir
þessi jól meðal sinna skjólstæðinga.
„Matarskattur er að hækka og það
munar um það hjá fólki sem á ekki
fyrir mat nú þegar.“
Þá vakti séra Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur Bústaðakirkju, at-
hygli á því í predikun sinni um jólin
að aldrei hefðu jafn margir leitað til
sinnar kirkju fyrir jólin og nú.
Morgunblaðið/Golli
Dýr mánuður Fjöldi fólks leitaði til Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir jólin.
Mikið var um fólk sem er með lág laun og nær ekki fjármálaendum saman.
„Desember er
dýr mánuður“
Fjöldi fólks þurfti aðstoð fyrir jólin
Rúmlega 130 manns fengu asp-
assúpu, lambalæri og ís í eftir-
rétt á Tapashúsinu í málsverði
sem Hjálpræðisherinn stóð fyrir
á aðfangadag. Samkoman hefur
jafnan verið fjölsótt. „Ég held
að það hafi aldrei komið fleiri til
okkar. Þarna komu margir ein-
stæðingar og hælisleitendur.
Svo löbbuðu túristar framhjá og
kíktu inn. Það var ofboðslega
hátíðleg stemning og allir
ánægðir,“ sagði Rannvá Olsen,
kapteinn hjá Hjálpræðis-
hernum.
Aspassúpa,
lamb og ís
FJÖLMENNI HJÁ HERNUM
Karlmaður varð fyrir líkamsárás í
miðbæ Reykjavíkur um klukkan
sex í gærmorgun, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hópur manna veittist að mann-
inum, en árásarmennirnir voru
horfnir af vettvangi þegar lögreglu
bar að garði. Maðurinn hlaut
áverka í andliti og var fluttur á
slysadeild til skoðunar.
Líkamsárás í miðbæ
Reykjavíkur