Morgunblaðið - 29.12.2014, Qupperneq 11
Vetrarsæla Gengið á skíðum í nágrenni Djúpavíkur í fyrra, hér kemur göngufólkið niður af Trékyllisheiði.
líka hugleiðsla. Síðan er endað á
teygjum og slökun fyrir svefninn,“
segir Hrönn og bætir við að í
göngunni sé líka verið að spjalla
saman, njóta umhverfisins og hafa
gaman, en ekki verið að íhuga út í
eitt. Ekki sé nauðsynlegt að fólk
hafi prófað jóga áður og óreyndir
geta því vel tekið þátt í ferðinni ef
göngureynsla og úthald er fyrir
gönguna sjálfa.
Högum seglum eftir vindi
Hrönn segir að sumir eigi erf-
itt með að sjá fyrir sér jóga úti í
íslenskri náttúru og veðráttu en
það sé vel gerlegt. „Kúnstin er að
nýta þá fjölbreytni sem finna má
innan jóga en ef ekki er fýsilegt
að leggjast og setjast niður, má
gera standandi stöður að
ógleymdri gönguhugleiðslunni.
Þar fyrir utan eru öndunaræfingar
og hugleiðsla stór hluti af jóga en
það má gera sitjandi eða stand-
andi ef þarf,“ segir Hrönn og bæt-
ir við að það fari eftir veðri hvort
morgun- og kvöldjógað sé úti eða
inni í skálunum. „Blessunarlega
eru miklar sveiflur í íslensku veðri
og þess vegna gefst alltaf tækifæri
í svona ferðum til að taka jógaæf-
ingu en mikilvægt er að aka segl-
um eftir vindi. Til dæmis kom frá-
bært tækifæri í ferðinni í fyrra
fyrir útijóga og slökun kvöldið hjá
Skælingum en þann dag hafði ver-
ið hvasst og úrkoma seinnihluta
dagsins. Um kvöldið hafði stytt
upp, grasið var orðið þurrt og
kvöldsólin skein á okkur. Annað
gott tækifæri til slökunar kom
einn vindasaman dag þegar lægði
skyndilega og sólin braust fram á
sama tíma. Þá var hóprinn stadd-
ur ofan í Eldgjá rétt hjá Ófæru-
fossi og ekki skemmdi fyrir að við
vorum ein í gjánni sem er ekki
mjög algengt í júlí.“
Jóga í hálendiskyrrð
Gönguleiðin frá Sveinstindi
um Skælinga að Hólaskjóli liggur
niður með Skaftá, framhjá Skæl-
ingum og Eldgjá. „Þar ríkir nátt-
úrufegurð og hálendiskyrrð og því
frábært svæði til að stunda jóga
og hugleiðslu samhliða göngunni.
Á leiðinni upplifir maður kraft
jökulárinnar, þykkar mosabreiður,
auðn sanda og eldfjallajarðvegar
og stórbrotnar hraunmyndanir.
Ekki má gleyma einu fegursta
fjallavatni landsins, Langasjó, sem
má virða fyrir sér af toppi Sveins-
tinds, en í góðu skyggni gefur
hann útsýni yfir sunnanvert há-
lendið og inn á Vatnajökul.“
Þægindi og mögnuð náttúra
Snorri Guðjónsson verður
leiðsögumaður í gönguskíðaferð
sem farið verður í 12. til 15. mars
norður á Ströndum, en þar eru oft
góð snjóalög þó auð jörð sé sunn-
an jökla. „Ég fór með hóp á þess-
ar slóðir í samskonar ferð í hitti-
fyrra og það gekk mjög vel.
Sjarminn við þessa ferð er að fá
að gista á hótelinu í Djúpavík í
uppábúnum rúmum, fá kjötsúpu
að kvöldi að lokinni skíðagöngu og
njóta félagsskapar við hótalhald-
arana Ása og Evu, þau eru frá-
bær. Það fer vel á því að njóta
þessara þæginda í bland við
magnaða náttúruna.“
Snorri segir að á fyrsta degi
sé ekið í Bjarnarfjörð og gist að
Laugarhóli. „Daginn eftir göngum
við á skíðunum upp Sunddal og yf-
ir Trékyllisheiði og komum niður í
Djúpavík. Þar gistum við í tvær
nætur hjá Evu og Ása. Fyrri dag-
urinn er frjáls, þá hefur stundum
verið boðið upp á sýningarferð um
síldarverksmiðjuna og farið stutt á
gönguskíðin. Seinni daginn er svo
skíðað í nágrenni Djúpavíkur og
síðan haldið heim.“
Snorri segir að gengnir séu á
skíðunum um 25 kílómetrar á
hverjum degi, en það fari þó eftir
færi. „Við erum yfirleitt um sjö til
átta tíma á göngu. Ég fékk á sín-
um tíma dellu fyrir skíðagöngu af
því að þetta er svo góð og í raun
þægileg alhliða hreyfing, maður
verður jafnþreyttur alls staðar í
líkamanum. Og ef veður er gott og
umhverfið stórbrotið, þá er þetta
frábær útivist um vetur.“
Hann segir að gönguskíði séu
auðveld, allir sem hafi farið á
svigskíði geti farið á gönguskíði.
Fyrir aðra gæti verið gott að taka
nokkra hringi á æfingasvæðum í
byggð, ef þeir hyggja á göngu-
skíðaferð upp til fjalla.
Jeppadeildin trússar
Snorri segir að gönguskíða-
hópurinn í Útivist hafi oft verið í
samstarfi við jeppadeildina. „Þeg-
ar við höfum farið í gönguskíða-
ferðir í Landmannalaugar þá hef-
ur jeppadeildin séð um að trússa
með dótið okkar þangað. Ef ein-
hver gefst upp eða eitthvað kemur
upp á, fær fólk að fara í jeppana.“
Snorri segir að þar sem
kostnaður við að taka rútu hafi
hækkað, sé meira gert af því hjá
Útivist en áður að fara á einkabíl-
um. „Þá reynum við að sameinast
í bílana og fólk skiptir bensín-
kostnaðinum niður. Þetta hefur
reynst mjög vel og er miklu ódýr-
ara þegar upp er staðið,“ segir
Snorri og bætir við að vissulega
setji veður stundum strik í reikn-
inginn í gönguskíðaferðunum, til
dæmis hafi þurft að hætta við ferð
á Drangajökul í fyrra vegna veð-
urs.
Slökun í Eldgjá Gott er að leggjast niður og njóta slökunar úti við.
Frábært að fá kjötsúpu
að kvöldi að lokinni
skíðagöngu og njóta fé-
lagsskapar við hótal-
haldarana Ása og Evu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2014
www.volkswagen.is
Volkswagen atvinnubílar
Einstakt
tækifæri
Nú í desember gefst einstakt tækifæri til að
kaupa sýningar- og reynsluakstursbíla
hjá VW atvinnubílum á góðum kjörum.
Kynntu þér málið hjá
sölufulltrúum okkar
á Laugavegi 174.
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn ÍsafirðiTakmarkað magn
Dagskrá Útivistar fyrir afmælisárið
2015 er glæsileg og kennir þar ým-
issa grasa. Þar eru í boði dagsferðir,
helgarferðir, lengri ferðir, hjólaferðir,
sérstakar kvennaferðir sem og skíða-
ferðir.
Einnig er boðið upp á jeppaferðir
þar sem þátttakendur koma á eigin
jeppum en leiðsögn er í ferðunum.
Vert er að taka sérstaklega fram að
boðið er upp á þrekþjálfun og nám-
skeið í fjallamennsku (undir liðnum
Fjallarefir), en það er hugsað fyrir
byrjendur eða þá sem hafa tekið sér
hlé í fjallamennsku og vilja byrja upp
á nýtt. Mörgum finnst betra að fara
af stað í útvist í slíkum lokuðum hóp-
um, það auðveldar að taka fyrstu
skrefin í átt til breytts og heilbrigðs
lífsstíls.
Nánar á heimasíðu Útivistar:
www.utivist.is
Afmælisár Útivistar 2015
Gaman Ferðast á gönguskíðum.
Líka jeppa-
ferðir og
þrekþjálfun
Fjör í jeppaferð Úr ferð í Þórsmörk,
Steinholtsá reyndist heldur djúp.