Morgunblaðið - 29.12.2014, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2014
Mikið skelfing held
ég að tilveran væri
snauð ef við hefðum
ekki ævintýri til að
orna okkur við. Æv-
intýri sem fá hugann
til að reika, jafnvel
fljúga um heima og
geima. Ævintýri sem
spyrja áleitinna spurn-
inga og leita eftir svör-
um. Þannig er ég
nokkuð viss um að ævintýri forn eða
nýrri, sönn eða skálduð gefi lífinu lit
og gæði nútímann innihaldi hvort
sem við upplifum þau sjálf eða heyr-
um frá þeim sagt.
Lífið er ævintýri
Lífið er náttúrulega ekkert annað
en eitt stórt og samfellt ævintýri.
Dulúðug spennusaga sem þú veist
svo sem minnst um hvert leiðir þig.
Ein er sú saga sem hefur þó haft
meiri áhrif á mig en aðrar. Það er
sagan af fæðingu, lífi og starfi, dauða
og upprisu Jesú Krists. Ekki nóg
með að sagan sú hafi varðveist í 2000
ár og haft meiri áhrif í veröldinni en
aðrar sögur, heldur miðum við tíma-
tal okkar við hana.
Sagan sú er reyndar fyrir mér
ekki eins og hvert annað ævintýri
heldur sí-lifandi og -gefandi stað-
reynd. Því sannarlega getur raun-
veruleikinn oft verið hið mesta og
besta ævintýri.
Mörg hver, ef ekki flest, yljum við
okkur við hana ár eftir ár. Og þó að
hún kunni að virka rómantísk og fal-
leg þá er hún jafnframt nöturleg,
ögrandi og illskiljanleg. Og þó að í
mínum huga sé hún fallegasti við-
burður allra tíma, þá er hún hreint
alls engin glansmynd. En hún fjallar
um kærleika Guðs. Um orðið sem
varð hold og bjó á meðal okkar. Um
hann sem sendur var til þess að
frelsa okkur. Veita von og fylla
hjörtu okkar af himnesku súrefni,
ólýsanlegum friði, og veita lífi okkar
tilgang.
Hún skilur eftir spurningar sem
gott er að láta búa með sér og íhuga
ár eftir ár, fá að hvíla í, upplifa og
njóta, þótt maður skilji
hana ekki.
Það er eitthvað við
þessa sögu
Það er eitthvað meira
en lítið við þessa sögu.
Áhrif hennar eru greini-
lega magnaðri, dýpri og
varanlegri en aðrar sög-
ur bjóða upp á. Hún hef-
ur einhver ólýsanleg
áhrif á mann svo maður
tekur að binda vonir
sínar við hana. Hún sýn-
ir okkur skilning, umburðarlyndi og
samstöðu auk þess að veita okkur
styrk og von og færa okkur frið.
Sjálfur Guð fæddist inn í þennan
heim sem ósjálfbjarga barn við að-
stæður eins og þær gerast verstar.
Hann kom ekki eins og þruma úr
heiðskíru lofti eða þrengdi sér inn í
þennan heim frekar en hann treður
sér inn í hjarta þitt.
Hann kom til að taka sér stöðu
með þér eins og þú ert, nákvæmlega
þar sem þú ert staddur hverju sinni.
Hann kom til að þjást með þér og
gráta með þér og hann kom til að
gleðjast með þér í gegnum tárin
þrátt fyrir allt. Hann kom til að veita
þér von og fylla þig lífi með eilífum
tilgangi.
Ævinnar ljúfustu
og bestu stundir
Ég trúi því að ævinnar bestu
stundir, dýrmætustu augnablik, feg-
urstu draumar og ljúfustu þrár séu
aðeins sem forréttur að þeirri veislu
sem koma skal og lífið raunverulega
er. Þess vegna er svo mikilvægt að
njóta aðventunnar í ljósi jólanna og
ævinnar í ljósi lífsins.
Jesús sagði: Ég er ljós heimsins.
Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkri heldur hafa ljós lífsins. Ég lifi
og þér munuð lifa!
Ekki eins og hvert
annað ævintýri
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Það er eitthvað
meira en lítið við
þessa sögu. Áhrif henn-
ar eru greinilega magn-
aðri, dýpri og varanlegri
en aðrar sögur bjóða
upp á.
Höfundur er rithöfundur og áhuga-
maður um lífið.
Guðni Ágústsson fv.
ráðherra hefur sent
frá sér skemmtilega
bók sem hann kallar
Hallgerður – Örlaga-
saga hetju í skugga
fordæmingar.
Bókarheitið er langt
en segir greinilega til
um efnið. Einar Falur
Ingólfsson, ritdómari
Morgunblaðsins, orðar
það svo að með bók sinni taki Guðni
upp málsvörn fyrir Hallgerði lang-
brók – sem er laukrétt – en telur
nálgun Guðna gamaldags og bætir
við að óvíst sé að „fræðasamfélag
samtímans“ skrifi upp á aðferðina.
Einar Falur er greinilega varkár
maður gagnvart þeim sem völdin
hafa, í þessu tilfelli sjálfu fræði-
samfélaginu, samtökum lærðra
manna og sérfræðinga. Þessi fyrir-
vari og ótti við fræðimenn er að vísu
allfurðulegur. Ég á ekki von á öðru
en að innvígðir fræðasamfélags-
menn viðurkenni tjáningarfrelsi
fólks, m.a. að fullvita Íslendingum sé
frjálst að lesa forn og ný skáldrit
upp á sitt eindæmi og sjálfdæmi um
hvað hverjum finnst um söguefni,
persónur og persónugerð, svo og
tímana og þjóðfélagsgerðina, sögu-
sviðið sem skáldskapurinn allur
markast af. Eða til hvers er verið að
gefa út bækur almenningi til kaups
og lestrar, ef þessi markhópur bók-
sala má ekki dæma fyrir sig hvað
stendur í bókunum?
Ekki þar fyrir – vissulega má gera
ráð fyrir að ýmsir fræðasamfélags-
menn komi að Njálufræðum eitt-
hvað á annan veg en Guðni Ágústs-
son án þess að álasa honum fyrir sín
tök á viðfangsefninu. Þeir munu
fremur dást að Guðna
fyrir að vera áhuga-
samur um bókmenntir
eins og fræðimennirnir
eru sjálfir. Það fræða-
samfélag sem ég þekki
lítur ekki á sig sem
rannsóknardóm sem
segir fyrir um „rétta“
aðkomu að því að lesa
bækur, mynda sér
skoðanir og tjá sig op-
inberlega um bækurnar
í heild eða einstaka
hluta þeirra. – Guðni Ágústsson á
skilið virðingu fyrir málsvörn sína
um Hallgerði Höskuldsdóttur, enda
er hann að ítreka skoðun sem lengi
hefur lifað í huga fólks.
Ritdómari Morgunblaðsins segir
um bók Guðna að nálgun hans sé
gamaldags. Það er hrein firra. Nálg-
un Guðna er nútímaleg. Hann leggur
nútímamat á ævi Hallgerðar. Hann
talar nánast sem nútímafemínisti
um harkalega meðferð karlaveldis
Njálssögualdar á Hallgerði. Þetta er
bein vísun til kvennakúgunar allra
þjóðfélagsgerða um aldir allt fram á
daginn í dag.
Bók Guðna Ágústssonar er ágæt-
ur lestur, þörf hugvekja. Á henni
sannast að góð bók er góð, ef hún er
góð!
Eftir Ingvar
Gíslason
Ingvar Gíslason
» Guðni Ágústsson á
skilið virðingu fyrir
málsvörn sína um Hall-
gerði Höskuldsdóttur,
enda er hann að ítreka
skoðun sem lengi hefur
lifað í huga fólks.
Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra.
Sýn Guðna á
Hallgerði er nú-
tímaleg og femínisk
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Bridgefélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 12. desember var
spilaður Mitchell tvímenningur á 14
borðum.
Efstu pör í N/S - % skor:
Guðm. Sigursteinss. - Unnar Guðmss. 63,9
Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 58,3
Erla Sigurjóns. - Jóhann Benediktss. 57,2
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 56,7
A-V
Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 59,5
Tómas Sigurjss. - Björn Svavarsson 56,7
Ægir Hafsteinsson - Bjarni Hólm 56,3
Skarphéðinn Lýðss. - Ásgr.Aðalsteinss. 54,9
Þriðjudaginn 15. desember var
spilaður tvímenningur með þátttöku
26 para.
Efstu pör í N/S:
Hulda Hjálmarsd. - Unnar A. Guðmss. 60,3
Guðm. Sigursteinss. - Auðunn Guðmss. 55,8
Örn Einarsson - Guðlaugur Ellertss. 55,1
A-V
Ólafur Ólafsson - Anton Jónsson 58,0
Óskar Ólafsson - Viðar Valdimarsson 57,2
Hrafnh. Skúlad. - Guðm. Jóhannsson 54,0
Föstudaginn 19. desember var síð-
asta spilakvöld BFEH á árinu 2014.
Spilað var á 9 borðum.
Efstu pör í N/S:
Hulda Hjálmarsd. - Unnar Atli Guðmss. 58,3
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 55,3
Óli Gíslason - Sverrir Jónsson 53,7
Albert Þorsteinsson - Björn Árnason 52,3
A-V
Guðm. Sigursteinss. - Auðunn Guðmss. 61,1
Anna L. Kjartansd. - Ásgr. Aðalsteinss. 60,6
Kristján Þorlákss. - Óskar Ólafsson 57,6
Örn Jónsson - Þorvaldur Þorgrímss. 52,8
Hauststigakeppni félagsins lauk
þriðjudaginn 16. desember.
Guðmundur Sigursteinsson stóð
uppi sem sigurvegari eftir harða
keppni við Tómas Sigujónsson og
Braga Björnsson.
Úrslit réðust á síðasta spilakvöldi.
Lokastaða hæstu spilara:
Guðmundur Sigursteinsson 239,5 stig
Tómas Sigurjónsson 235,5 stig
Bragi Björnsson 233,5 stig
Bjarnar Ingimarsson 198,5 stig
Óskar Ólafsson 191,5 stig
BFEH er komið í jólafrí og er
næsti spiladagur föstudaginn 1. jan-
úar 2015.
BFEH þakkar öllum fyrir spila-
mennsku þennan vetur og óskar öll-
um gleðilegra jóla og farsæls kom-
andi árs.
BFEH spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni
3. Spilamennska byrjar kl. 13:00
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks-
son og hjálpar hann til við myndun
para ef spilarar mæta stakir.
60 ára afmælismót
Jóns Baldurssonar
Gunnlaugur Karlsson stóð fyrir af-
mælismóti í tilefni af 60 ára afmæli
meistarans Jóns Baldurssonar
föstudaginn 19. desember.
47 pör tóku þátt í þessu skemmti-
lega móti og sigraði afmælisbarnið
ásamt Sigurbirni Haraldssyni.
Þeir fengu 75 stig.
Lokastaðan:
Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldss. 75
Hjördís Sigurjónsd. - Kristján Blöndal 73
Gunnl. Sævarss. - Kristján M.Gunnarss. 51
Karl G. Karlsson - Svala K. Pálsd. 46
FEB Reykjavík
Mánudaginn 15. desember var
spilaður tvímenningur á 12 borðum
hjá bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Hrafnhildur Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 275
Friðrik Jónsson – Jóhannes Guðmanns. 238
Ágúst Helgason – Haukur Harðarson 233
A/V:
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 285
Magnús Jónsson – Óli Gíslason 245
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 236
Fimmtudaginn 18.desember var
spilaður tvímenningur á 14 borðum.
Efstu pör í N/S
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 349
Jón Þ. Karlsson - Guðjón Margeirss. 339
Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 330
Ingibjörg Stefánsd. – Margrét Margeirsd.
322
A/V
Guðlaugur Bessason – Ólöf Hansen 403
Sigtryggur Jónss. – Sæmundur Pálsson 361
Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 335
Björn E.Péturss. – Valdimar Ásmundss. 331
Stjórn bridsdeildarinnar þakkar
spilurum fyrir samstarfið á líðandi
ári og óskar þeim og einnig þeim sem
lesa þennan
pistil gleðilegra jóla og gæfuríks
komandi árs. Þökkum fyrir að fá af-
not af húsnæði Bridssambands Ís-
lands.
Þökkum bridsfréttastjóra Morg-
unblaðsins fyrir að birta reglulega
fréttir frá félaginu.
Á komandi ári hefst spilamennska
mánudaginn 5. janúar kl. 13.
Spilað er í Síðumúla 37.
Guðmundur Snorrason og
Kjartan Ásmundsson Íslands-
meistarar í Butlertvímenningi
Guðmundur Snorrason og Kjartan
Ásmundsson sigruðu í Íslandsmótinu
í Butlertvímenningi sem fram fór um
síðustu helgi en þeir fengu 89 stig.
Annað sætið hlutu þeir Sigurður
Skagfjörð og Sigurjón Harðarson
sem voru með 66 stig .