Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 15. júní 2015 | FRÉTTIR | 9
MATVÆLAIÐNAÐUR SAH afurðir á Blönduósi
hafa ekki getað staðið við samninga sína um
útflutning á kjöti og hliðarafurðum vegna
verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun. Á
annað hundrað tonn af kjöti og um 70 þúsund
gærur bíða þess að verða flutt út frá fyrir-
tækinu til Asíu og Færeyja og mun fyrirtæk-
ið þurfa að greiða bætur vegna tafa á flutn-
ingnum.
„Þetta er gífurlegt tap fyrir okkur. Gámur
sem átti að fara til Færeyja í gær er beint tap
þar sem hann kemst ekki á umsömdum tíma.
Þar eru bæði heilir skrokkar og fullunnin
vara í neytendapakkningum sem átti að fara
beint í búðir ytra,“ segir Gunnar Tryggvi
Halldórsson, framkvæmdastjóri SAH afurða.
„Sendingin til Asíu hefur verið föst í um
mánuð en þar bíða 160 tonn af lambakjöti og
70 þúsund gærur. Um mjög góðan samning
var að ræða fyrir okkur en nú þurfum við að
greiða bætur vegna tafa. Því á eftir að koma í
ljós hversu hagstæður samningurinn verður
eftir allt saman.“
Verkfall dýralækna hjá Matvæla stofnun
hefur staðið yfir síðan í byrjun apríl og
hefur það haft gríðarleg áhrif á matvæla-
framleiðslu í landinu, jafnt innflutning sem
útflutning. - sa
SAH afurðir á Blönduósi þurfa að taka á sig stórtap vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun:
Greiða bætur vegna tafa á útflutningi
VIÐ SLÁTRUN Framkvæmdastjóri SAH afurða telur
fyrirtækið þurfa að greiða háar fjárhæðir í bætur
vegna tafa á útflutningi.
AKUREYRI Um helgina braut-
skráði Háskólinn á Akureyri 328
kandídata þar sem Vigdís Finn-
bogadóttir var heiðursgestur við
athöfnina.
166 kandídatar brautskráðust
af Hug- og félagsvísindasviði og
81 af Heilbrigðisvísindasviði ann-
ars vegar og Viðskipta- og raun-
vísindasviði hins vegar.
Mikill meirihluti brautskráðra
nemenda við skólann var konur,
259 á móti 69 körlum.
Rektor skólans, Eyjólfur Guð-
mundsson, sagði í ræðu sinni við
athöfnina að farsælast væri að
fara varlega í sameiningar ríkis-
háskólanna.
- sa
Háskólinn á Akureyri:
328 kandídatar
brautskráðust
RÚMENÍA Ríkisstjórn Rúmeníu
stóð af sér vantrauststillögu í
rúmenska þinginu á föstudaginn.
Hundruð Rúmena hafa mót-
mælt fyrir utan þinghúsið og
krefjast afsagnar Victor Ponta
forsætisráðherra.
Ponta hefur komist undan
rannsóknum á meintri spillingu,
en hann á að hafa verið viðriðinn
fölsun, peningaþvott og skattsvik.
Klaus Iohannis, forseti Rúmen-
íu, hefur hvatt Ponta til að segja
af sér en Ponta situr sem fastast.
- srs
Kemst undan rannsóknum:
Ponta stendur
af sér vantraust
VICTOR PONTA Forsætisráðherrann á
að hafa svikið undan skatti.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
STJÓRNSÝSLA Iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, Ragnheiður Elín
Árnadóttir, hefur farið í 23 utan-
landsferðir frá því hún tók við
starfi ráðherra að loknum kosn-
ingum árið 2013. Samanlagt hafa
ferðirnar staðið yfir í 84 daga.
Þetta kemur fram í svari ráð-
herrans við fyrirspurn vara-
formanns Samfylkingarinnar,
Katrínar Júlíusdóttur. Sam-
anlagður kostnaður hins opin-
bera við þessar ferðir eru um 19
milljónir króna. Ódýrasta ferðin
kostaði ríkið um 13 þúsund krón-
ur en það var boðsferð flugfélags-
ins WOW air til Washington nú
nýverið. - sa
Iðnaðarráðherra svarar:
23 utanlands-
ferðir í 84 daga
RÁÐHERRA Iðnaðarráðherra hefur farið
23 sinnum til útlanda sem ráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
C
-9
1
4
C
1
6
2
C
-9
0
1
0
1
6
2
C
-8
E
D
4
1
6
2
C
-8
D
9
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K