Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 15. júní 2015 | SKOÐUN | 11
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Til er kvæði eftir skáldbóndann
Guðmund Inga Kristjánsson þar
sem hann ávarpar hrútana sína
af mikilli kurteisi; hreinlega
þérar skepnurnar: „Þér hrútar ég
kveð yður kvæði, / ég kannast við
andlitin glöð / er gangið þér allir
á garðann / að gjöfinni fimmtán í
röð …“ Þegar maður hefur fylgst
með persónu Sigurðar Sigurjóns-
sonar í myndinni Hrútar og sam-
bandi hans við skepnurnar sínar
skilur maður betur andann í
þessu kvæði.
Æsispennandi mynd um riðu-
veiki í sauðfé? Já auðvitað. En
einhvern tímann hefði það þótt
saga til næsta bæjar að hægt
væri að búa til slíka mynd. Ekki
svo ýkja langt síðan einbúar
í sveit voru einkum hafðir til
aðhláturs og sýndir með sam-
blandi af vorkunnsemi, vantrú
og glotti. Nú er þetta hetja vorra
tíma. Andlit þjóðarinnar.
Hinn eilífi kotbóndi
Þetta er á meðal þess sem Hrunið
færði okkur, þrátt fyrir allt: úr
því að lygasagan um okkur leiddi
yfir þjóðina skuldir og skömm
varðar nú öllu að finna á ný sög-
urnar sem fjalla um okkur eins
og við erum og vorum. Finna eitt-
hvað sem er satt og segja frá því.
Sú leit stendur enn og fer fram í
listum; meðal annars bókmennt-
unum og kvikmyndunum. Og nú
er spurt: erum við Íslendingar
þá ekkert víkingar inn við beinið
heldur kannski fyrst og fremst
kotbændur í grunninn þegar allt
kemur til alls? Með öllu sem því
fylgir: steigurlæti smælingjans,
stolti, þolgæði og þrjósku – og
óhlýðni.
Þjóð sem talast ekki við
Það er þráður milli þeirrar pers-
ónu sem Sigurður Sigurjónsson
leikur hér og þeirrar persónu
sem hann lék sem ungur maður
í Landi og sonum. Í þeirri mynd
þurfti persóna hans að fella
hestinn til þess að rjúfa sam-
band sitt við landið og komast
burt: hér kemur hún sér ekki að
því að farga skepnunum og getur
ekki rofið tengsl sín við jörð-
ina, kemst ekki burt. Við sjáum
hann fyrst þar sem hann fer með
hægð og dyttar að girðingunni
– íslenskir bændur eru eilíflega
að bjástra við girðingarnar hjá
sér. Frásögnin er hægferðug en
krókalaus og við þekkjum þenn-
an mann. Snyrtimennsku hans,
iðjusemi og vandvirkni í öllu sem
hann tekur sér fyrir hendur, ást
hans á skepnunum og þeim arfi
sem honum hefur verið trúað
fyrir: allt þetta vekur virðingu
hjá áhorfanda. Við sjáum það
hvernig honum fellur varla verk
úr hendi, áttum okkur á því að
þetta er góði hirðirinn, grandvör
persóna, sem er trúr yfir litlu.
Biblían er hér allt um kring,
enda talaði Kristur í dæmisögum
sínum varla um annað en sauð-
fjárbúskap á Íslandi. Við könn-
umst hér við söguna af bræðr-
unum þar sem annar starfaði af
trúmennsku við föðurleifðina en
hinn fór í burtu og sóaði öllu og
sukkaði en kom aftur við mikinn
fögnuð; faðirinn slátraði sauði.
Hér er annar bróðirinn dálítið af
því tagi – óstöðugur drykkjubolti,
en samt eru málin ekki alveg svo
einföld, því að hann er líka sá
sem sigrar í hrútakeppninni og
hefur ráð undir rifi hverju þegar
á reynir, þó að úrræði hans kunni
reyndar að orka tvímælis. Við
vitum ekki fyrir víst hvað hefur
valdið því að þeir talast ekki
lengur við bræðurnir, en úti um
allt þekkjum við hins vegar slík-
ar sögur; af bræðrum í afskekktu
nábýli sem hættir eru að talast
við, og kannski erum við Íslend-
ingar að einhverju leyti slík þjóð:
systkini sem talast ekki lengur
við.
En það er sem sé – án þess að
ljóstra upp of miklu um inntak
þessarar æsispennandi myndar
um riðuveikt sauðfé – í óhlýðn-
inni sem bræðurnir ná saman;
þegar þeir rísa gegn regluverk-
inu, sem birtist okkur í mynd
danskrar konu. Svo má reyndar
bollaleggja fram og aftur um það
hversu viturleg sú óhlýðni er – en
íslenski kotbóndinn getur samt
ekki annað gert en að óhlýðn-
ast. Hann getur hvorki brugð-
ið búi né haldið hokrinu áfram.
Hann getur hvorki lifað né
drepist. Hann er ofurseldur ytri
aðstæðum, hversu trúr hann er
og vinnusamur, og hann á ekki
annarra kosta völ en að grafa sig
í fönn og híma þar og bíða eftir
betri tíð.
Í Hrútum er sögð stór saga –
kannski stærsta saga Íslendinga
á síðustu öld. Og henni er enn
ekki lokið, eins og eftirminni-
lega er undirstrikað í áhrifamik-
illi lokasenu myndarinnar. Þetta
er sagan um það hvernig Íslend-
ingar breyttust úr mestu sveita-
þjóð Evrópu í mestu borgarþjóð
Evrópu; hvernig sambandið við
landið og skepnurnar rofnaði með
þeim afleiðingum að Íslending-
ar eru að mörgu leyti enn dálítið
ráðvillt þjóð með reikula sjálfs-
mynd.
Þér Hrútar
Þetta er sagan um
það hvernig Íslend-
ingar breyttust úr mestu
sveitaþjóð Evrópu í mestu
borgarþjóð Evrópu.
Ekki hlutgerð fegurð
Hugrekki þessara
kvenna og þessara
byltinga hefur
EKKERT með hlut-
gerða fegurð að
gera. Brjóstin þín
þurfa ekki að uppfylla einhverja
fegurðarstaðla (hvítra, mið-
aldra karla í Vesturlöndum) til
að breyta heiminum, þau þurfa
bara að vera óhrædd og laus við
skömm. Sagan þín þarf ekki að
vera falleg til að við nennum að
hlusta á hana og tökum mark á
henni. Raunveruleikinn, nákvæm-
lega eins og hann er, er það sem
stingur okkur svo djúpt og neyðir
okkur til að hlusta. Þú þarft ekki
að vera í bikíní til að við hlustum,
þú þarft ekki að velja þér síðkjól,
þú þarft ekki að hvítta á þér
tennurnar, maka á þig brúnku-
kremi, læra að labba í hælum,
vera andlit Oroblu eða krulla á
þér hárið.
www.kjarninn.is
Alma Mjöll Ólafsdóttir
Sumir fífl , aðrir ekki
Femínistar eru alls
konar fólk. Sumir eru
fífl; aðrir ekki. Það er
bara eins og gengur
og gerist með mann-
skepnuna. Við erum
ekki yfir það hafin að
rífast og slást; en það er tilgangs-
laust að búa sér til óvini. Það er
aftur á móti heimskulegt að láta
þessa tilbúnu óvini ráðskast með
sig.
www.pressan.is
Smári Pálmarsson
Slá sig til riddara
Ríkisstjórnin ber fyrir
sig neyð, segir að
fólk sé í lífshættu og
reynir þannig að gera
hjúkrunarfræðinga
að vonda fólkinu í
sögunni. Ríkisstjórnin slær sig
þannig til riddara (aftur), verandi
bjargvættur allra sem þurfa
aðhlynningu. Ekki hjúkrunarfræð-
ingarnir, heldur ríkisstjórnin.
www.stundin.is
Smári McCarthy
Liggurðu á skoðunum
þínum? Það er algjör
óþarfi . Sendu greinina
þína á greinar@visir.is
og við komum henni á
framfæri hið snarasta.
AF NETINU
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-C
6
D
C
1
6
2
B
-C
5
A
0
1
6
2
B
-C
4
6
4
1
6
2
B
-C
3
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K