Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 14
FÓLK|HEIMILI Formfagur stóll hönnuðanna Daggar Guðmundsdóttur og Rikker Rützou Arnved, sem ber nafnið „Fifty dining“, hefur verið valinn sem einn af sýn ingar gripum á hönnunarsýn- ingunni „Kvinder i dansk møbel- design“ sem haldin er í safninu Trapholt í Danmörku. Sýningin, sem var opnuð í síðustu viku, er haldin í tilefni 100 ára af- mælis kosningaréttar kvenna í Danmörku og er ætlað að gefa heildarsvip af sögu danskrar húsgagnahönnunar frá 1895 til dagsins í dag. Stóllinn var upphaflega hann- aður fyrir sýningu árið 2010. „Yfirskrift þeirra sýningar var „White out“ en þar áttu allir að hanna stól sem var hvítur og innan afmarkaðrar stærðar. Þannig að Woolly, eins og stóll- inn hét þá, var hvítur með þæfðri ull utan um kaðal sem Anna Gunnarsdóttir sá um að gera fyrir okkur. Með var teppi sem við höfðum undir stólnum þar sem við bjuggum til steina úr svampi en Anna þæfði utan um þá líka. Svo stóð stóllinn á stein- um eins og þeir væru þaktir snjó. Hugmyndin var að maður gæti lokað sig inni í stólnum í snjóbyl, séð út og hlýjað sér í ullinni en á sama tíma var hann gegnsær og léttur.“ Tveimur árum síðar kom stóll- inn á markað undir nafninu Fifty í framleiðslu Ligne Roset og árið 2013 kom svo minni útgáfan af honum út sem borðstofustóll. „Þá var bæði vafningi á snúru breytt og efnivið í snúrunni. Þar sem þessi snúra þolir bæði sól og rigningu getur stóllinn einnig nýst utandyra.“ Stóllinn hefur unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal Wall- paper Domestic Design Award og Interior Innovation Award Cologne auk þess að vera eitt af fjórum verkum sem tilnefnd voru til Grapevine Design Awards hér á landi árið 2013. „Stólinn fæst hjá Ligne Roset-verslunarkeðj- unni víða um heim og þeim búð- um sem selja merki þeirra. Eins og er selur engin verslun stólinn á Íslandi en áður fyrr var Casa með Ligne Roset-vörur til sölu.“ Dögg hefur verið búsett erlendis í nær aldarfjórðung en hún lauk meistaraprófi í hönnun frá Royal Danish Academy of Fine Arts árið 2011. Síðan þá hefur hún unnið með ýmsum framleiðendum eins og Ligne Roset, Christ ofle, B-Sweden, Ele- menti, Sólóhús- gögnum, Frogne og Norr 11 auk þess sem vörur hennar hafa verið sýndar í New York, Frankfurt, Barcelona, Ríó de Janeiro, Shanghaí og Tókýó. „Undanfarin ár hef ég verið að hanna ýmsa innanstokksmuni, bæði mublur og smærri vörur eins og lampa, vasa, teppi, bakka og kertastjaka. Svo hef ég verið að kenna nokkra hönnunarkúrsa og haft nemend- ur í starfsþjálfun víða að úr heim- inum. Ég er einnig að hefja fram- leiðslu á eigin vörulínu sem er ótrúlega tímafrekt og kostnaðar- samt en línan verður vonandi komin í verslanir í haust.“ UNNIÐ TIL FJÖLDA VERÐLAUNA HÖNNUN Íslenskur hönnuður kom að hönnun stólsins „Fifty dining“ sem sýndur er á sýningu í Danmörku. Vörulína hennar kemur í verslanir í haust. FJÖLHÆF Hönnun Daggar Guðmundsdóttur hefur verið sýnd víða um heim. MYND/ÚR EINKASAFNI BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚÐUM FRÁ kr. 4.900 CARMEN kr. 99.800 YUMI kr. 28.400 MINIMAL kr. 9.980 AMI kr. 19.900 EVA kr. 22.500 NOHO SÓFI - 219 CM kr. 199.800 CALVIN TUNGUSÓFI 269X153 cm kr. 227.400 2 SAMAN Í SETTI NÝ TT NÝ TT NÝ TT NÝ TT Mikið úrval garðsláttuvéla með bensínmótor eða rafmótor Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 -18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is REIKNAÐU DÆMIÐ á 365.is 365.is Sími 1817 VERÐLAUNASTÓLL „Fifty dining“-stóll Daggar og Rikker er á stórri sýningu í Dan- mörku. MYND/ÚR EINKASAFNI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 C -3 D 5 C 1 6 2 C -3 C 2 0 1 6 2 C -3 A E 4 1 6 2 C -3 9 A 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.