Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 42
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 18
FÓTBOLTI María Þórisdóttir, landsliðs-
kona Noregs í fótbolta, stóð vaktina í
miðri vörn liðsins gegn Evrópumeist-
urum Þýskalands á HM í Kanada í
síðustu viku. María er fulltrúi Íslands
á HM, en hún er dóttir Þóris Hergeirs-
sonar, þjálfara norska kvennalands-
liðsins í handbolta.
María spilaði sinn fyrsta A-landsleik
gegn Íslandi á Algarve-mótinu fyrr á
þessu ári og var nú mætt til að halda
einu besta liði heims í skefjum. Það
gerði hún frábærlega.
Þetta er nokkuð magnað þar sem
hún íhugaði að hætta í fótbolta
fyrir nokkrum árum, en hún er einnig
frábær handboltakona og fór aftur að
æfa hann.
„Þegar ég kom heim af HM U20
fyrir þremur árum var ég alveg búin
að fá nóg. Ég fann ekki hvatninguna
til að halda áfram,“ segir María, sem
glímdi við mikið af meiðslum á þeim
tíma, í viðtali við heimasíðu norska
knattspyrnusambandsins.
„Ég saknaði fótbolta alltaf meir og
meir og fór að finna fyrir ástinni aftur
þegar við hituðum upp í fótbolta á
handboltaæfingum. Þá ákvað ég að
byrja aftur,“ segir María sem fór aftur
af stað af krafti í fótboltanum fyrir ári
og er nú á HM. - tom
Fulltrúi Íslands á HM íhugaði að hætta í fótbolta
Á HM María var í byrjunarliðinu gegn
Evrópumeisturunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Þróttur stefnir hraðbyri upp í Pepsi-deild karla
í fótbolta en liðið vann stórleikinn gegn KA, 2-1, í sjöttu
umferðinni á gervigrasinu í Laugardal í gær. Þróttur er
búinn að vinna alla sex leiki sína til þessa í deildinni með
markatölunni 17-2.
Viktor Jónsson heldur áfram að raða inn mörkum, en
þessi 21 árs gamli framherji sem er í láni frá Víkingi skoraði
sjöunda mark sitt í gær sem reyndist sigurmarkið. Hann
er nú búinn að skora í öllum umferðum deildarinnar og
bikarnum.
Þessi velgengni Þróttar er bara áframhald af síðustu leik-
tíð, þeirri fyrstu sem Englendingurinn Gregg Ryder var með
liðið. Eftir að Þróttur var nærri fallinn 2013 sneri Ryder
dæminu við og endaði í þriðja sæti í fyrra. Nú virðist ekkert
geta stöðvað Þróttara á leið sinni í Pepsi-deildina á ný. - tom
Ekkert fær stöðvað Þróttara
HANDBOLTI Stelpurnar okkar í
íslenska handboltalandsliðinu
standa áfram utan stórmótanna,
en eftir að fara á þrjú í röð frá
2010-2012 hefur íslenska liðið ekki
komist á síðustu þrjú. Þær fara
ekki á HM 2015 í Danmörku í lok
árs þrátt fyrir jafntefli, 19-19, og
hetjulega frammistöðu gegn firna-
sterku liði Svartfjallalands.
Brekkan var alltof brött fyrir
íslenska liðið eftir níu marka
tap ytra í fyrri leiknum. Ágúst
Jóhannsson landsliðsþjálfari fékk
þó nákvæmlega það sem hann
vildi; frábæra frammistöðu frá
baráttuglöðu íslensku liði.
Það segir kannski sitt um styrk-
leika svartfellska liðsins, og hvað
Ísland á enn mikið verk eftir óunn-
ið í sóknarleiknum, að Florent-
ina Grecu-Stanciu, markvörður
Íslands, varði 30 skot í leiknum
og var með 63 prósenta hlutfalls-
markvörslu. Þrátt fyrir það náði
Ísland ekki í sigur.
Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir, markahæsti leikmaður Olís-
deildarinnar, er að koma virkilega
sterk inn í landsliðið og stýrði leik
þess af myndarskap í gær. Hún
er líka öflug skytta og skilaði
fimm mörkum úr átta skotum, en
þremur úr vítaköstum.
Varnarleikur Íslands var virki-
lega góður. Sunna Jónsdóttir var
eins og klettur fyrir miðju hennar
og gerði mikið fyrir Florentinu í
markinu.
Stelpurnar fengu tækifæri til að
vinna leikinn í næstsíðustu sókn
leiksins en Ramune Pekarskyte
skaut hátt yfir markið. Ramune
átti arfadapran seinni hálfleik.
Hinum megin kórónaði Florentina
stórkostlegan leik sinn með því að
verja lokaskot Svartfellinga.
- tom
Brekkan var einfaldlega of brött
Ísland fer ekki á HM í handbolta þrátt fyrir góðan leik gegn Svartfj allalandi.
FRAMTÍÐIN Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir spilaði mjög vel í gær og
skoraði fimm mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÚRSLIT
PEPSI-DEILD KVENNA
STJARNAN - ÞÓR/KA 5-1
1-0 Írunn Þorbjörg Aradóttir (13.), 2-0 Anna
Björk Kristjánsdóttir (19.), 2-1 Sara M. Miller
(21.), 3-1 Sjálfsmark (67.), 4-1 Harpa Þorsteins-
dóttir (76.), 5-1 Írunn Þorbjörg Aradóttir (81.).
STAÐAN
Breiðablik 5 4 1 0 16-2 14
Stjarnan 6 4 0 2 15-4 12
Selfoss 5 4 0 1 13-6 12
Þór/KA 6 3 2 1 15-11 11
ÍBV 5 3 1 1 13-4 10
Valur 5 3 0 2 12-8 9
Fylkir 5 1 1 3 4-12 4
Afturelding 5 0 1 4 3-16 1
KR 5 0 1 4 3-17 1
Þróttur 5 0 1 4 0-14 1
NÆSTU LEIKIR Á ÞRIÐJUDAG
FYLKIR - ÍBV 18.00
VALUR- BREIÐABLIK 19.15
KR - ÞRÓTTUR 19.15
SELFOSS - AFTURELDING 19.15
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
er kominn í stutt sumarfrí eftir
að lið hans, Unicaja Málaga, féll
úr leik í undanúrslitum spænsku
úrvalsdeildarinnar í körfubolta.
Málaga-liðið tapaði gegn
Barcelona, 77-74, í framlengdum
leik í Katalóníu og mæta Börs-
ungar erkifjendum sínum í Real
Madrid í úrslitaeinvíginu.
Málaga-menn voru grátlega
nálægt ótrúlegri endurkomu, en
eftir að tapa fyrstu tveimur leikj-
unum í einvíginu á útivelli unnu
þeir báða heimaleikina og komu
einvíginu í oddaleik. - tom
Sumarfrí eft ir
framlengingu
TÆPT Jón Arnór og félagar voru nálægt
ótrúlegri endurkomu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Ýmsar vangaveltur
voru um það í aðdraganda leiks-
ins gegn Svartfjallalandi hvort
Ísland væri komið á EM í Póllandi
eða ekki. Samkvæmt tölfræðinni
var íslenska liðið ekki alveg öruggt
með sæti í lokakeppninni en það
þurfti ansi mikið að gerast til að
svo yrði ekki.
En íslensku strákarnir tóku þá
skynsamlegu ákvörðun að treysta
ekki á tölfræðina og rúlluðu yfir
Svartfellinga frammi fyrir fullri
Laugardalshöll í gær. Staðan var
19-11 í hálfleik og þegar yfir lauk
munaði tólf mörkum á liðunum,
34-22. Farseðilinn til Póllands er
því klár en þetta er í níunda sinn í
röð sem Ísland verður með í loka-
keppni EM.
Mikið vatn runnið til sjávar
Einn maður hefur verið með á
öllum þessum mótum, Guðjón
Valur Sigurðsson, en EM í Póllandi
verður hans nítjánda stórmót. Ein-
stakur árangur hjá þessum magn-
aða íþróttamanni sem byrjaði leik-
inn í kvöld af miklum krafti, öfugt
við leikinn í Ísrael á miðvikudag-
inn. Fyrirliðinn skoraði fjögur af
fyrstu sex mörkum Íslands og gaf
tóninn fyrir framhaldið.
Sigurinn í gær fullkomnaði
endur reisn íslenska handbolta-
landsliðsins eftir erfiða mánuði.
Ísland tapaði sem kunnugt er fyrir
Bosníu í umspilsleikjum um sæti
á HM Katar en komst svo bak-
dyramegin inn á mótið. Íslenska
liðið endaði í 11. sæti í Katar eftir
misjafna spilamennsku. Þá voru
íslensku strákarnir búnir að gera
sér erfitt fyrir í riðlinum í undan-
keppni EM með því að tapa fyrir
Svartfjallalandi á útivelli í nóvem-
ber á síðasta ári.
Síðan þá hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar og það hefur verið allt
annað að sjá íslenska liðið í síðustu
fjórum leikjum í undankeppninni.
Íslensku strákarnir byrjuðu á því
að valta yfir Serbíu í Höllinni,
38-22, fylgdu því eftir með jafn-
tefli við sama lið á útivelli, unnu
svo tíu marka sigur á Ísrael í Tel
Avív áður en þeir settu punktinn
yfir i-ið með sigrinum á Svart-
fjallalandi. Íslenska liðið skoraði
32,8 mörk að meðaltali í þessum
fjórum leikjum og fékk aðeins á
sig 23,3 mörk.
Hugarfarið breyttist
Aron Kristjánsson landsliðsþjálf-
ari þakkar breyttu hugarfari þenn-
an viðsnúning á leik íslenska liðs-
ins: „Þetta snerist um hugarfarið.
Við spiluðum mjög vel á EM í Dan-
mörku 2014 en það kom eitthvað
þreytu- og vanmatsástand fyrir
leikina gegn Bosníu, liði sem við
héldum að við myndum vinna.“
„Við töpuðum því einvígi og
umræðan í kringum HM í Katar
var svolítið neikvæð. Þar vorum
við mjög sveiflukenndir, áttum
frábæra leiki inn á milli í bland við
mjög lélega. Það var svolítið áfall
fyrir okkur,“ sagði Aron.
„Þegar við komum inn í Serbíu-
verkefnið var hugarfarið allt
annað og allir voru klárir á því um
hvað þetta snerist,“ bætti Aron við.
Hann segir að íslenska liðið hafi
ákveðið að sækja aftur í grunn-
gildin; baráttuna og fórnfýsina
sem hefur skilað því svo langt í
gegnum tíðina.
En það spilar fleira inn í. Björg-
vin Páll Gústavsson hefur spilað
glimrandi vel í íslenska markinu
og samvinna þeirra Bjarka Más
Gunnarssonar og Vignis Svavars-
sonar í miðri vörninni verður betri
með hverjum leiknum. Vörnin
og markvarslan hafa svo skilað
íslenska liðinu fjölda marka úr
hraðaupphlaupum sem vantaði í
Katar. Og svo munar öllu að hafa
Aron Pálmarsson heilan. Hann
kann handbolta upp á tíu og spil-
aði eins og engill í gær, skoraði sex
mörk og átti auk þess mýgrút af
stoðsendingum á félaga sína.
Góð ára í kringum Ólafs
Þá hefur innkoma Ólafs Stefáns-
sonar í þjálfarateymið haft sitt
að segja að sögn Arons: „Það var
frábært að fá Óla inn. Hann er
mikill liðsmaður og það er góð ára
í kringum hann. Hann gefur leik-
mönnunum góð ráð og kemur inn
með taktísk atriði.“
„Þjálfarateymið virkar rosa-
lega vel og þessi samsetning hefur
komið vel út,“ sagði Aron sem
getur farið brosandi í sumarfrí;
nýkrýndur Danmerkurmeistari
með Kolding og búinn að koma
Íslandi á EM. Það er þó enn óvíst
hvort Aron verði áfram við stjórn-
völinn hjá íslenska landsliðinu en
það var á honum að skilja að það
væri líklegra en ekki. ingvithor@365.is
Endurreisnin fullkomnuð
Íslenska landsliðið tryggði sér sæti á níunda Evrópumótinu í handbolta í röð með tólf marka sigri á Svart-
fj allalandi, 34-22, í Laugardalshöllinni í gær. Strákarnir eru búnir að rífa sig upp úr Katar-deyfðinni.
TIL PÓLLANDS Strákarnir okkar fagna sigrinum í gær og eru á leið á EM í enn eitt skiptið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SPORT
MÁNUD. KL. 19:30
365.is Sími 1817
FJÖLNIR – LEIKNIR
Nýliðar Leiknis halda í Grafarvoginn í kvöld og etja kappi við
Fjölnismenn. Ekki missa af beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og
Stöð 2 Sport 2 sem hefst stundvíslega klukkan 19:30.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
D
-4
3
0
C
1
6
2
D
-4
1
D
0
1
6
2
D
-4
0
9
4
1
6
2
D
-3
F
5
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K