Fréttablaðið - 11.09.2015, Side 11

Fréttablaðið - 11.09.2015, Side 11
Sölusýning Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is Sölusýning á morgun frá kl. 10 til 16. Á morgun efnum við til sölusýningar í verslun okkar í Nóatúni 4. Þar gefst tækifæri til að skoða allt það nýjasta sem við bjóðum, m.a. uppþvottavélar sem fengu hæstu einkunn bæði hjá dönsku og sænsku neytendablöðunum, þvottavélar með sjálfvirkum kerfum, þurrkara með sjálfhreinsandi rakaþétti, hljóðlátasta blandarann frá Bosch og fleira og fleira. Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Veittur verður verulega góður afsláttur. Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur. Það verður heitt á könnunni! Sve itarStj ó rnarmál Sviðum og stofnunum innan Reykjavíkurborgar verður gert að bera ábyrgð á rekstri sínum með því að taka halla eða afgang með sér frá fyrra fjárhagsári yfir á það næsta. Verði halli á ein- hverjum málaflokkum þurfa þeir að mæta hallanum á næsta ári. Þetta var samþykkt í borgarráði í gær. „Eðlilegt er að svið og stofnanir sem koma vel út eða halda vel utan um reksturinn njóti ágóðans af því en þeir sem ekki standa sig vel verða þá að bera ábyrgð á þeim rekstri,“ segir Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi. Hún segir þessa reglu tilkomna vegna aðhaldsaðgerða Reykjavíkurborgar. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, segir þetta geta orðið heillavænlegt skref en bendir á að rekstur borgarinnar hafi ekki staðist væntingar. „Ég tel mikilvægt að vera með einhverjar slíkar reglur. Það er samt ekki nóg að afgreiða ársreikning og yppa öxlum yfir lélegum rekstri síðustu 12 mánaða. Það verður að grípa strax inn í og þar tel ég að svona reglur séu hjálplegar við. Þess vegna styð ég að þær séu settar en áskil mér allan rétt til að kalla eftir breytingum á þeim ef þær virka ekki sem skyldi,“ segir Halldór. – sa Gert skylt að taka hallarekstur með sér Afkoma borgarsjóðs hefur verið gagnrýnd undanfarið og afkoman fyrstu sex mánuði ársins var langt undir væntingum. Fréttablaðið/GVA Það er samt ekki nóg að afgreiða árs- reikning og yppa öxlum yfir lélegum rekstri síðustu 12 mánaða. Það verður að grípa strax inn í. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðis- flokks í Reykjavík Stjórnmál „Það stendur til að þetta verði forgangsmál okkar. Allir þing- flokkar velja sín forgangsmál og ég á von á að þetta verði eitt þeirra,“ segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur lagt fram frumvarp sitt um að leyfa sölu áfengis í einkarekn- um verslunum í annað sinn. Frum- varpið dagaði uppi á síðasta þingi. Þingmenn úr öllum flokkum nema Samfylkingunni og Vinstri grænum eru flutningsmenn frumvarpsins. Frumvarpið er efnislega það sama og Vilhjálmur lagði fram í fyrra fyrir utan breytingar sem byggja á nefndaráliti meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar frá því í ár. „Þær breytingar eru til dæmis að allir þurfa að sýna skilríki sama hvort þeir séu sextugir eða tvítugir og refsingarnar sem voru fyrir í áfengis- löggjöfinni eru betur skýrðar nú. Og greinargerðin gerir betur grein fyrir því að þarna er um að ræða allar verslanir; gjafavöruverslanir, sér- vöruverslanir og fleira, en ekki bara matvöruverslanir eins og umræðan var síðast.“ Þá er hnykkt á því að frumvarpið verði endurskoðað innan árs og á þeim tíma mun Áfengisverslun rík- isins geta starfað áfram. „Þetta er ekki breyting á einum degi. Það er sem sagt ekki verið að kollvarpa neinu,“ segir hann. – srs Snýr aftur með frumvarp um sölu áfengis Ef frumvarpið verður samþykkt verður það til endurskoðunar eftir ár. Fréttablaðið/GVA Þetta er ekki breyt- ing á einum degi. Það er sem sagt ekki verið að kollvarpa neinu. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálf- stæðisflokks F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 11F Ö S t U D a G U r 1 1 . S e p t e m B e r 2 0 1 5 1 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 0 F -C D 0 4 1 6 0 F -C B C 8 1 6 0 F -C A 8 C 1 6 0 F -C 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.