Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 16

Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 16
Allt í einu komin í hóp vondra Hún segir báknið og lögfræðina stoppa miklu fleira en fólk viti.“ Sumir segja að þetta séu bara ónýtir pólitíkusar og tala illa um pólitíkusa eins og þeir sem eru í pólitík séu allt í einu orðnir vont fólk þó að maður hafi verið góður áður – ég veit að ég var góð áður. En allt í einu er maður kominn í hóp vondra. Það sem fólk veit ekki er að það er oft eitt­ hvert regluverk, annaðhvort lögfræði eða stjórnsýsla eða eitthvað annað sem stoppar hlutina innan kerfanna. Kerfin eru orðin svo mikil en samt viljum við auðvitað hafa kerfin til þess að það séu einhverjar reglur.“ Hún segist alltaf hafa verið hrifin af slagorði Sjálfstæðis­ flokksins: Burt með báknið. „Vegna þess að mér finnst borgarbáknið vera allt of fast í skorðum.“ Nýlegar tölur sýna að rekstrarhalli borgarinnar er mikill. Björk segir það að hluta til stafa af dýrum kjarasamn­ ingum. „Þeir skiluðu sér að stærstum hluta til þeirra sem þurftu að fá tals­ verðar hækkanir. Þær voru sanngjarnar þessar launahækkanir en þær hafa orðið okkur talsvert dýrari en gert var ráð fyrir þannig að við þurfum að hag­ ræða. Við þurfum líka kannski að gera meiri kröfur til þeirra sem fengu launa­ hækkanir. Þó það sé ekki gaman að segja það, þá eins og með kennara, þeir fengu mjög góðar launahækkanir. Við verðum, og ekki bara gagnvart þeim heldur öllum öðrum líka, að fá meiri framleiðni út úr störfunum. Þegar maður er farinn að borga góð laun þá getur maður gert meiri kröfur og það er kannski hluti af þessari hagræðingu sem við þurfum að fara í. Við þurfum að krefja fólk um árangur og ég held við getum hagrætt innan kerfisins þannig og verið bara svolítið stífir atvinnurek­ endur.“ Við erum alltof upptekin af greiningum Talið berst að félagsráðgjöf, starfi sem Björk þekkir af eigin reynslu. „Það er grunnhlutverk félagsráð­ gjafa að kortleggja styrkleika fólks og finna einhverjar bjargir í sam­ félaginu til þess að hjálpa einstak­ lingnum að koma sér áfram og vera sjálfbjarga. Mér finnst mjög margir félagsráðgjafar vera alltof mikið í því að kortleggja veikleika fólks. Og það má alveg hafa það eftir mér, það er veikleikavæðing innan velferðar­ þjónustunnar. Og í samfélaginu yfir höfuð. Fólk er upptekið af því hvaða greiningar það hefur fengið, hvaða sjúkdóma það hefur fengið, hverjir hafa skilið í stórfjölskyldunni og mögulega valdið áföllum alveg frá þriggja ára aldri og hverjir hafa orðið fyrir ofbeldi og svona. Þið fjölmiðlarnir algjörlega alið á þessu með því að koma engum í viðtal nema hann hafi orðið fyrir ofbeldi eða áfalli alveg endalaust. Ég segi stundum að Íslendingar séu bara haldnir algjörri áfallastreituröskun og viðhalda sér í áfallinu með því að fá alltaf fleiri og fleiri sögur af fleiri og fleiri áföllum hjá öðrum. Við erum bara föst í þessu.“ Fá meira fyrir að eiga bágt Ertu að segja að það sé einhver aum- ingjavæðing í gangi? „Það er það. Þú færð meira með því að eiga svolítið bágt, meiri athygli og meiri bætur.“ Ertu ekki að gera lítið úr þeim sem eiga við raunverulegan vanda að stríða? „Nei, ég vil nefnilega hjálpa. Það eiga allir við sinn vanda að stríða en það er ekki gott að festast í vandanum. Félags­ ráðgjafar eiga að sparka í rassinn á fólki og koma því áfram. Það er verkefni fé­ lagsráðgjafa, það hafa allir styrkleika. Ég ætla bara segja það hér, að mér finnst það synd þegar félagsráðgjafinn fer að líta á það sem mannréttindi skjólstæð­ ings síns að reykja kannabis og fokka upp lífi sínu. Að fara að berjast fyrir því að hann fái að vera bara á þeim stað í tilverunni,“ segir Björk, og talar um málið af ástríðu. „Þegar viðkomandi gæti kannski með öllum sínum styrk­ leikum og persónutöfrum farið að gera eitthvað miklu, miklu betra. Ekki fyrir samfélagið heldur fyrir sjálfan sig,“ út­ skýrir hún og heldur áfram. „Kannski eigum við að fara að krefj­ ast árangurs. Ég hef talað fyrir því að fé­ lagsráðgjafar og það kemur inn á rekstr­ ahallann, að við erum með alltof mikið af vinnufæru fólki á fjárhagsaðstoð. Að sjálfsögðu á samfélagið að veita fólki fjárhagsaðstoð sem ekki getur veitt sér neina björg sjálft. En að hafa fólk sem er vinnufært á fjárhagsaðstoð á sama tíma og okkur sárvantar strætóbílstjóra, fólk í heimaþjónustu, fólk á frístundaheim­ ilin og allt þetta. Það er bara algjörlega galið. Ég sjálf ber ábyrgð ásamt öllum í velferðarráði á þessu regluverki sem fjárhagsaðstoðin er byggð á. Ég hef ver­ ið að berjast fyrir því í mörg mörg ár að koma á skilyrðingum í fjárhagsaðstoð en það hefur ekki tekist vegna þess að lögin gefa ekki heimild til þess. Það er ekki í lögum um félagsþjónustu sveitar­ félaga að það megi skilyrða fjárhagsað­ stoð. Við höfum verið að beita ákveðn­ um skilyrðingum samt sem áður. Nú er Hafnarfjörður farinn að gera þetta mun harðar með mjög góðum árangri þó að lögunum hafi ekki verið breytt. Það hefur tekist frábærlega vel en við höf­ um ekki náð því pólitískt fram í Reykja­ vík vegna þess að lögfræðingarnir segja að það sé mjög hættulegt að fara þessa leið. Lögin beinlínis heimili það ekki,“ heldur hún áfram. „Við sömdum um það við ríkis­ stjórnina þegar Samfylking og Vinstri græn voru í ríkisstjórn að breyta þess­ um lögum þannig að við gætum skilyrt fólk sem sannarlega væri vinnufært til þess að fá minni fjárhagsaðstoð ef það neitaði vinnu. Ríkisstjórnin sveik það. Svo komast Sjálfstæðisflokkur og Fram­ sóknarflokkur til valda, það er sama. Það er engu breytt í þessum lögum.“ Unga fólkið missir smám saman lífskraft Hún segir Samband íslenskra sveitarfé­ laga vilja þessar breytingar, að skilyrða fjárhagsaðstoð. „En það hefur verið andstaða við það hjá velferðarsviði borgarinnar en ekki hjá þjónustumið­ stöðvunum, þar sem starfsmenn hitta unga fólkið sem er vinnufært, þar til að það verður óvinnufært því fólk sem er lengi á fjárhagsaðstoð festist í svona fátækragildru. Það smám saman missir hlutverk sitt, missir taktinn í tilverunni. Fer að sofa kannski þrettán tíma á sól­ arhring, fær vegna þess stoðkerfisvanda sem ekki var til staðar áður. Svo þegar hann er kominn og þér finnst allt hálf vonlaust enda alltaf með bakverk þá ertu orðinn dapur og svo þunglyndur. Þú smám saman missir allan lífskraft. Mér finnst þetta svo mikið mannrétt­ indabrot sem við erum að gera gagn­ vart ungu fólki að einhvern veginn bjóða því upp á aðstoð sem er mjög dýr fyrir samfélagið og mjög dýr fyrir ein­ staklinginn. Og ég hef tapað í þessari baráttu. Það er alveg sama hver ræður á Alþingi, lögunum er ekki breytt. Samt höfum við ótal dæmi um fólk sem nær bata. Nærtækt er að nefna kollega minn í borginni sem dæmi um mann sem hefur spjarað sig vel þrátt fyrir að hafa lýst því yfir opinberlega að hann hafi reykt sig alla leið í geðrof, Halldór Auð­ ar Svansson. „Og ég nefni eiginmann minn. Ef hann hefði verið settur á ein­ hverja aðstoð þá hefði hann kannski aldrei spjarað sig sjálfur og hætt að reykja kannabis. Hvar væru þeir og allir hinir sem ná bata ef við hefðum bara leyft þeim að vera á þeim stað sem þeir voru í veikindum sínum?“ Vill rannsaka veikleikavæðinguna Björk hyggst nú, þegar hún hættir í pólitíkinni, klára mastersnám í félags­ ráðgjöf. „Og rannsaka þetta sem ég kalla veikleikavæðingu velferðarþjón­ ustunnar. Hvort velferðarþjónustan sé einmitt hreinlega að ýta undir að fólk bjargi sér ekki sjálft með því að taka undir: Já, þú ert með þrjár greiningar og foreldrar þínir skildu þegar þú varst sjö ára og þú þurftir töluvert að vera hjá ömmu þinni og afa, það voru erfiðar heimilisaðstæður þar og svo öll sagan. Í staðinn fyrir að hitta einstaklinginn og hugsa bara um hann. Hvaða styrkleika hann hefur. Ég þekki sjálf fullt af þessu unga fólki sem hefur verið á fjárhagsað­ stoð og ég sé ekki allan þennan vanda sem er til staðar hjá þessu fólki því ég sé bara ungt og öflugt fólk þangað til það grotnar niður og endar á örorku.“ Býr kerfið til þessi vandamál? „Ég er viss um það. Nú verða félagsráðgjafar brjálaðir þegar þeir heyra þetta og það verður bara að hafa það. Ég veit alveg að margir eru sömu skoðunar, en eru kannski fastir í þessu vinnulagi. Mér finnst of mikil linkind innan kerfis­ ins og við vera með of margt vinnu­ fært fólk á fjárhagsaðstoð. Við getum sparað mjög mikla fjármuni með því að fækka fólki á fjárhagsaðstoð. Auk þess að spara í heilsutengdum kostnaði til framtíðar. Þetta er svona stóra pólitíska málið sem ég brenn fyrir því mér finnst við eigum að gefa ungu fólki tækifæri ef ekki á vinnu þá menntun.“ Þið fjölmiðlarnir al- gjörlega alið á þessu með því að koma engum í viðtal nema hann hafi orðið fyrir ofbeldi eða áfalli alveg endalaust. Ég segi stundum, mér finnst stjórn- málamennirnir ráða alltof litlu því þeir eru í svo miklu samráði við hagsmunahópa. Við þurfum að krefja fólk um árangur og ég held við getum hag- rætt innan kerfsins þannig og verið bara svolítið stífir atvinnurekendur. Það sem fólk veit ekki er að það er oft eitt- hvert svona reglu- verk, annaðhvort lögfræði eða stjórnsýsla eða eitthvað annað sem stoppar hlutina innan kerfanna. Björk kveður stjórnmálin og segir sinn tíma vera kominn. Hún ætlar að fara til Palestínu og snúa svo aftur til upprunans og fara að starfa sem félagsráðgjafi. Fréttablaðið/Vilhelm 1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r16 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð Mamma stáltá Myndu sálfræðingar á heilsugæslu- stöðvunum ekki geta greitt úr þessum vanda að hluta til? Að ungt fólk hefði greiðari aðgang að smá sálgæslu? „Jú, það væri ágætt. Ég væri algjörlega til í að borga fyrir sálfræðinga á hverri ein­ ustu heilsugæslustöð ef sálfræðingarnir segðu við viðkomandi: Já, ég skil þig. Það hefur verið erfitt að lenda í þessu, en núna ertu hér, ótrúlega flott og þú bara bjargar þér. Við megum ekki velta okkur upp úr þessu. Það er verið að sóa peningum í að greina alla í stað þess að mæta bara þörfum fólks. Þannig að ef sálfræðingarnir á heilsugæslustöðv­ unum væru þá ekki allir að sjúkdóms­ væða alla skapaða hluti væri ég til í að borga fyrir það. En ég er ekki til í að borga lengur fyrir það að allir þessir sérfræðingar gefi greiningar, sem við­ komandi fer svo með til félagsráð­ gjafans og segja bara: Ég er með svona og svona greiningu og þið verðið að hjálpa mér.“ Björk hefur viðurnefnið Mamma stáltá í borgarstjórninni, gælunafn sem kollegi hennar Elsa Yeoman fann upp. Þarf að fá Mömmu stáltá aftur í félagsráðgjöfina? „Elsu finnst ég vera svo hörð þannig að hún kallar mig Mömmu stáltá. Ég er svona hörð því ég kann að segja nei og það er svo mikil­ vægt að kunna það. Vegna þess að ég held að þú hjálpir fólki svo vel með því. Ég hef sjálf oft þurft að fá spark í rassinn. Ég er ógeðslega löt í eðli mínu og gæti alveg farið í það að gera ekki neitt, en það væri ekki gott fyrir mig og ekki fyrir samfélagið. Ég hef þurft að sparka í rass­ inn á börnunum mínum og öllum. Það er mikilvægt að geta sett fólki stólinn fyrir dyrnar, og ég er bara glöð með að vera kölluð Mamma stáltá.“ Þú ert greinilega grjóthörð? „Ég er grjóthörð og svo er ég er með stálhné, og þetta með Mömmu stáltá kom löngu áður en ég fékk stálhnéð. Þann­ ig að það var alltaf verið að pæla í því fyrra hvort ég ætti að fá mér stáltá eða hvort ætti að breyta þessu og kalla mig Mömmu stálhné, en okkur þótti það ekki jafn flott,“ segir hún hlæjandi. Öflug með stálhné í berjamó Björk fór fyrst að hugsa um að hætta í pólitík þegar hún fór í veikindaleyfi í fyrra. „Þá fékk ég stálhnéð. Það er því­ líkur lúxus og virkar í berjamó. En þeg­ ar ég var í leyfinu var ég alltaf að tala við hjúkrunarfræðinga og fara í undir­ búningsviðtöl og allir sögðu: Æi, aum­ ingja þú, þetta lítur illa út á myndum. Það verða miklir verkir. Ég segi: Ætlið þið aldrei að spyrja hvað ég er orku­ mikil? Hvað ég get gert? Ég er alveg til í að fara í sjúkraþjálfun frá fyrsta degi. Ég er alltaf til í að hreyfa mig. Þá fór ég að upplifa hvernig veikleikar manns eru kortlagðir – hvernig allt kerfið er upptekið af því að kortleggja það sem er að. Þó að ég sé með gigt í nokkrum liðum þá er ég alveg ótrúlega öflug, þó ég segi sjálf frá. Það var um þetta leyti sem ég fór að hugsa um að kannski væri minn tími kominn,“ útskýrir Björk sem ætlar að reyna að snúa þess­ ari þróun við í félagsráðgjöfinni. Hún segir sér hafa mistekist í velferðarráði. „Mér hefur alveg tekist að gera fullt af flottum hlutum. Ég hef gert marga góða hluti en nú er komið annað fólk sem líka er tilbúið að berjast. Ég hef engan áhuga á að verða einhver besser visser, svona týpa sem situr fundi og segir: Það er búið að prófa þetta, þetta gekk ekki, eða: Við fórum í þetta 2005, það tókst ekki. En mér hefur mistekist að koma á skilyrð­ ingum fyrir fjárhagsaðstoð sem ég hef svo mikla trú á. Ég hef trú á því að gefa ungu fólki tækifæri.“ 1 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 0 F -A 0 9 4 1 6 0 F -9 F 5 8 1 6 0 F -9 E 1 C 1 6 0 F -9 C E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.