Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 23
MATUR Í FERÐINA
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2015 Kynningarblað Nestishugmyndir, uppskriftir og góð útileguráð.
Það er skemmtileg áskor-un að lesa í spilin og sjá fyrir hvernig þarfir neyt-
enda þróast til að bjóða nýjar
og breyttar vörur í takt við tíð-
arandann hverju sinni. En þó
að margt breytist þá skipta gæði
alltaf mestu máli og svo í aukn-
um mæli vitund um uppruna
og aðstæður framleiðslunnar,“
segir Steinþór Skúlason, for-
stjóri SS.
Hann segir sögu fyrirtækisins
vera merkilega því félagið hafi
verið stofnað af bændum fyrir
meira en heilli öld til að koma
skipulagi á kjötverkun og sölu og
ekki síður til að tryggja gæði sem
hafa alla tíð verið aðalsmerki SS.
Félagið sé í eigu bænda og í raun
verkfæri þeirra til að koma af-
bragðs afurðum sínum milliliða-
laust úr íslenskri sveit til neyt-
enda. „Við byggjum á langri hefð
en á sama tíma hefur nýsköpun
og vöruþróun forgang í starfsem-
inni og við erum sífellt að leita
leiða til að þróa nýjar og endur-
bættar vörur fyrir neytendur.“
Hálfúrbeinuð læri
Sem dæmi nefnir hann að síð-
asta haust hafi SS breytt öllum
krydduðum lærum úr hefð-
bundnum lærum í hálfúrbeinuð
læri sem eru án hækils, rófubeins
og mjaðmarbeins. „Neytendur fá
því vöru sem er með meira kjöti
og minna beini. Þeir sem hafa
prófað þessi læri sjá ávinning-
inn og kaupa þessa vöru aftur og
aftur.“
Bragðgóð fjörulambslínan
Annað sem SS hefur gert á undan-
förnum árum að sögn Steinþórs
er að þróa vörulínur fyrir grill-
ið sem eru án allra aukaefna.
„Þar má nefna vörulínur eins og
ítölsku línuna, grísku línuna og
þá nýjustu, sem við kynntum í
vor, sem er fjörulambið. Það er
margra mánaða þróunarvinna
sem liggur að baki nýjum vöru-
línum til að finna rétta bragð-
ið. Ég hef ekki séð að aðrir hafi
notað íslensk sjávarsöl með þeim
hætti sem við gerum sem gefur
mjög bragðgóða en einnig öðru-
vísi vöru.“
Ljúffeng hálflæri
En heilt læri, þó að það sé hálfúr-
beinað, er frekar seinlegt í mat-
reiðslu og um leið matur fyrir
4-6 manneskjur. „Stundum eru
færri í mat og ekki langur tími til
eldunar. SS þróaði því öðru-
vísi læri sem við köllum
hálflæri. Það er klofið
læri án leggs og um
eitt kg að þyngd.
Það hentar því í
matinn fyrir 2-3
manneskjur og
eldunin tekur
helmingi styttri
tíma en á heilu
læri.“
Þjóðarréttur Íslendinga
Það er ekki hægt að tala um
sumar og grill án þess að
nefna hina einu sönnu SS
pylsu sem alltaf stendur fyrir
sínu og hentar í allar grillveisl-
ur. „Það ber fagmennsku okkar
góða starfsfólks og smekk Íslend-
inga frábært vitni að slík vara sem
er búin að vera á markaði í rúm 80
ár skuli vera með góða söluaukn-
ingu.“
Í takt við tíðarandann
Þrátt fyrir stöðuga vöruþróun og nýjar vörur í takt við tíðarandann skipta gæðin alltaf mestu máli hjá SS.
Á undanförnum árum hafa bragðgóðar og skemmtilegar nýjungar litið dagsins ljós, s.s. hálfúrbeinuð
læri, hálflæri og vörulínur fyrir grillið án allra aukaefna. SS pylsan stendur einnig alltaf fyrir sínu.
„Við byggjum á langri hefð en á sama tíma hefur nýsköpun og vöruþróun forgang í starfseminni,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS.
M
Y
N
D
/V
A
LL
I
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
F
-9
5
C
0
1
5
8
F
-9
4
8
4
1
5
8
F
-9
3
4
8
1
5
8
F
-9
2
0
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K