Fréttablaðið - 01.08.2015, Page 16

Fréttablaðið - 01.08.2015, Page 16
Tónlistarhátíðin Innipúkinn er haldin í fjórtánda sinn í ár, líkt og í fyrra verður sérstakt úti- svæði þar sem margt verður um að vera, meðal annars fatamark- aður, ljóðalestur, Pub-Quiz, fjöldi matarvagna og plötusnúðar þeyta skífum. „Þetta var frábært í fyrra og þá var útisvæðapælingin tekin upp á hærra plan og við höldum því áfram. Það er auðvitað þversögn út af fyrir sig að vera með úti- svæði á Innipúkanum. En það eru einhverjir sem bara geta ekki án grass verið og verða að finna lykt- ina af nýslegnu grasi yfir verslun- armannahelgina og við erum að þjónusta þennan hóp,“ segir Ásgeir Guðmundsson, einn af skipuleggj- endum hátíðarinnar í ár, glaður í bragði. Fjöldi tónlistarmanna kemur fram um helgina, meðal annars Gísli Pálmi, Sturla Atlas og Steed Lord í kvöld og á morgun Sóley, Mammút og Teitur Magnússon auk fleiri. „Við erum mjög spenntir, þetta verður stórkostleg helgi. Innipúk- inn stendur alltaf fyrir sínu og hefur verið í stöðugri uppbygg- ingu í fjórtán ár. Fólk skemmtir sér vel og fallega á Innipúkanum. Þetta er fullkomin afsökun til þess að segja nei við hræðilegum hug- myndum um að fara út á land í úti- legu,“ segir Ásgeir og hlær. Annað kvöld verður hátíðinni lokað með balli. „Hljómsveitin Babies lokar helginni með Inni- púkaballinu í ár og heldur stemn- ingunni uppi langt fram á kvöld. Þau geta spilað endalaust, öll þessi helstu lög og það er engin leið að hreyfa sig ekki og brosa ekki þegar þau eru með ball,“ segir Ásgeir og bætir við að hljómsveit- in hafi verið við stífar æfingar undanfarið og spili fullt af nýjum lögum. Ásgeir segir skipuleggjendur stilla miðaverði í hóf eins og hægt er. „Við erum með góða bakhjarla, Símann, Vífilfell og GoMobile sem aðstoða okkur. Við reynum að fá aðstoð og láta listamennina fá sem allra mest. Hagnaður hátíðar- innar splittast jafnt á öll böndin, alveg sama hvað þú ert stórt nafn. Það er ekkert annað en tónlistin í forgrunni.“ Nánari dagskrá er hægt að nálg- ast á Facebook-síðu Innipúkans og miða er hægt að kaupa á vefsíð- unni Midi.is en hátíðarpassinn er á 6.990 krónur og miði á stök kvöld á 3.990 en Innipúkinn verður hald- inn á skemmtistöðunum Húrra og Gauknum við Tryggvagötu. Skemmta sér vel og fallega Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í fj órtánda sinn um helgina og lokið hefur verið við að tyrfa útisvæðið. ALLT Á FULLU Undirbúningur fyrir hátíðina var í fullum gangi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði en á útisvæðinu verður fjölbreytt dagskrá um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Níels Thibaud Girerd sjónvarpsmaður Tærnar upp í loft Planið mitt um helgina er mögulega, ég ítreka mögulega, að vera með tærnar upp í loft og horfa á Mummy- kvikmyndirnar. Eða slaka á með öðrum hætti. Ég fer allavegana ekki á Þjóðhátíð. Illugi jökulsson fjölmiðlamaður Beitiskipaútgerð „Ég ætla að rifja upp gamlan fróðleik um beitiskipaútgerð Breta í síðari heimsstyrjöldinni. Betur er ekki hægt að eyða þessari helgi.“ Kökur ¾ bollar Kornax-hveiti 1 tsk. lyftiduft 1/3 bolli mjólk 1 tsk. vanilludropar 2 eggjahvítur 3 msk. mjúkt smjör 1/4 bolli sykur 1/8 bolli sýrður rjómi 6 stk. Lindt-trufflur (skornar í tvennt) Hitið ofninn í 170°C. Stífþeytið eggjahvíturnar í hreinni skál. Hrærið hveiti og lyftiduft saman í annarri skál. Blandið mjólk og van- illudropum í enn annarri skál. Hrærið saman smjör og sykur í fjórðu skálinni. Bætið sýrða rjómanum út í og hrærið vel. Skiptist síðan á að blanda mjólkur- og hveitiblöndunni saman við smjör- blönduna. Að lokum er eggjahvít- unum blandað varlega saman við með sleikju. Setjið í form og bakið í 15 til 20 mínútur. Á meðan er gott að skera Lindt-trufflurnar í tvennt. Skerið lítið X ofan í hverja bollaköku um leið og þið takið úr ofni. Þrýstið Lindt-trufflu ofan í. Kælið kökurnar alveg áður en kremið er sett á. Krem 60 g hvítt súkkulaði 110 g mjúkur rjómaostur 30 g mjúkt smjör 1 tsk. vanilludropar 1 bolli flórsykur Bræðið hvíta súkkulaðið og leyfið því að kólna í þrjár mínútur. Blandið síðan öllum hráefnum saman. Bestu bollakökur í heiminum Lilja Katrín Gunnarsdóttir á blaka.is býr til bestu bollakökurnar, að eigin sögn. ELEGANT BOLLAKÖKUR Lilja katrín er liðtæk í eldhúsinu. AÐSEND MYND/FRÉTTABLAÐIÐ Una Stefánsdóttir tónlistarkona Kósí í bænum Þetta verður reykvísk verslunarmannahelgi í ár. Ég og maðurinn minn erum bæði að vinna yfir helgina þannig að planið er að gera það í rólegheitunum og kíkja í sund. Svo er ég spennt fyrir Innipúkanum og ætla að reyna kíkja og sjá einhver bönd. Annars finnst mér alltaf mjög kósí að vera í bænum yfir versló, mér finnst oft vera rólegra tempó yfir borginni en venjulega. Margeir Steinar Ingólfsson plötusnúður Möguleg mannlífs- rannsókn í Dalnum Ég er að fara til Eyja. Samt ekki á Þjóðhátíð. Ekki nema einhver rétti mér armband, en þá nýti ég tækifærið og framkvæmi mannlífsrannsókn í Dalnum. NÝDÖNSK SPILAR á Þjóðhátíð í Eyjum. INNIPÚKANN í Reykjavík þar sem verður mikið um dýrðir. BLENDED á Stöð 2 um helgina með Drew Barrymore í aðalhlutverki. LJÓS AF HAFI eftir M.L. Stedman í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. HELGIN 1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 E -D 8 8 C 1 5 9 E -D 7 5 0 1 5 9 E -D 6 1 4 1 5 9 E -D 4 D 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.