Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 40
FÓLK|HELGIN SIGGI BÚBÚ Hér má sjá hópinn Sigga Búbú í glæsilegum, klæðskerasniðnum jakkafötum eftir Selmu. Ég myndi segja að það væri mestmegnis Eyjafólk sem mætir í búningum og metnaðurinn er gríðarlegur. Hóp- arnir telja allt frá þremur og upp í tuttugu manns. Ég held að þetta hafi byrjað með því að vinahópar vildu aðgreina sig frá fjöldanum og vera með eitthvað einkenni og þekkja hver annan í fjöldanum,“ segir Selma sem telur að hóparnir séu að minnsta kosti á milli tutt- ugu og þrjátíu og fjölgi ár hvert. „Svo koma líka einhverjir ofan af landi. Þetta litar mannfjöldann á þjóðhátíðinni, maður sér hópana saman í brekkunni og á dans- gólfinu.“ Hún telur ýmsar ástæður liggja að baki þessari skemmtilegu hefð. „Ég held að fólk sé að þessu til að einkenna sig og þekkjast úr hópnum og líka til að gera undir- búninginn ennþá skemmtilegri og kannski lengri. Fólk byrjar snemma að plana búningana og hlakkar þá enn þá meira til Þjóðhátíðarinnar.“ Selma hefur saumað á að minnsta kosti tuttugu hópa. „Já, það hlýtur að vera. Ég byrjaði fyrir meira en tuttugu árum og er með hóp á hverju ári.“ Flestir eru í búningnum alla hátíðina eða eins og hann dugar, að sögn Selmu. „Sumir gallarnir eru ekki beint hannaðir fyrir rigningu eða kulda en svo gerði ég til dæmis einu sinni mjög flott hvít jakkaföt úr pollagallaefni sem slógu alveg í gegn. Síðustu ár hafa samfestingar verið í tísku. Þetta fylgir auðvitað aðeins tískunni og svo hefur það líka áhrif hvaða tónlistarmenn eru að spila og svo framvegis.“ Á hverri þjóðhátíð er svo efnt til keppni um flottustu búningana. Það var HENSON sem stóð fyrir fyrstu eiginlegu búningakeppn- unum. „Þá var tískan að flestallir hóparnir voru í tríkoti (íþrótta- galla) sem Henson þá yfirleitt saumaði.“ Það var svo um alda- mótin sem búningadómnefnd Þjóðhátíðar tók við enda búning- arnir þá orðnir mjög fjölbreyttir. „Búningakeppnin er stórmál í dalnum. Nú er það orðið þannig að hóparnir þurfa að skrá sig í keppnina ef þeir vilja vera með í henni. Sumir vilja bara vera í bún- ingum fyrir sig og gleðina en aðrir eru mjög metnaðargjarnir. Það er dómnefnd að störfum í dalnum og úrslitin tilkynnt á laugardeginum á stóra sviðinu. Þá er hópurinn kall- aður upp á svið og fær viðurkenn- ingarbikar og mikinn heiður. Það er eftirsótt að vinna og úrslitin eru alltaf mjög umdeild, ekki bara hjá keppendum heldur skapast oft heitar umræður í dalnum um hver hefði eða hefði ekki átt að vinna.“ Selma er núna eins og undan- farin ár á sama árstíma að leggja síðustu hönd á búninga en hvern- ig þeir eru er algjört leyndarmál. „Það má aldrei segja frá því allir vilja koma á óvart þegar á Þjóðhá- tíðina er komið og ef ég hef verið að gera búninga á fleiri en einn hóp hef ég alltaf þurft að fela fyrir hinum.“ Selma er sjálf í hópi sem mætir stundum í búningi á Þjóðhátíð. „Þetta er sauma- klúbbur nokkurra Eyjakvenna um fertugt, sem er svona í elsta lagi, búningafólkið er yfirleitt yngra. Við köllum okkur Nettar nálar og höfum ákveðna stefnu í búninga- málum. Við erum ekki í búningum á hverju ári heldur bara þegar eitthvað sérstakt tilefni kallar. Og vinnum búningana út frá því. Við erum í búningunum eitt kvöld og erum smart á því.“ Og þá er að sjá hver hlýtur búningaverðlaunin í dalnum í kvöld. BÚNINGAKEPPNIN STÓRMÁL Í DALNUM SKEMMTILEGT Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og Eyjameyja, hefur undan- farin tuttugu ár saumað búninga fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Búninga- hefð hátíðarinnar er gamalgróin og færist í aukana ef eitthvað er. PINK LADIES Þessir kappakstursgallar eru vatnsheldir sem getur komið sér vel á Þjóðhátíð. SAUMAKLÚBBURINN NETTAR NÁL- AR HYLLTI VIGDÍSI Selma Ragnarsdótt- ir árið 2010 en saumaklúbburinn Nettar nálar ákvað að hylla Vigdísi Finnboga- dóttur árið 2010 í tilefni af því að þrjátíu ár voru liðin frá forsetakjöri hennar.HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER HAPPY HOUR ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR SIGGI HLÖ ER Í LOFTINU MILLI KL. 16:00 - 18:30LAUGARDAG #BYLGJANBYLGJAN989 Veikindabaninn HAWAIIAN NONI Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup Heilsuávöxturinn NONI ávöxtur kemur upprunalega frá Kyrrahafs- eyjum og flokkast sem ofurfæða vegna þess hve einstaklega ríkur hann er af næringaefnum. Hann er auðugur af A, B, C og E-vítamínum, járni, kalki, kalíum, sinki og inniheldur 17 af 20 lífsnauðsynlegum aminósýrum. Noni er ríkari af pro-xeroníni, en aðrir ávextir, en efnið er nauðsynlegt frumum líkamans og styður við myndun seratóníns í heila. • • Veikindi • Blóðþrýstingur • Sýkingar 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 F -2 2 9 C 1 5 9 F -2 1 6 0 1 5 9 F -2 0 2 4 1 5 9 F -1 E E 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.