Fréttablaðið - 01.08.2015, Síða 54
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 34
Vigdís Linda Jack er deildarstjóri
heilsulindar hjá Aðventkirkjunni
og hefur hún verið að skipuleggja
ásamt Adrian Lopez, manni
sínum, Heilsu Expó sem verður
í gangi í haust. Markmiðið er að
leggja áherslu á heilsuna og gefa
fólki kost á að fara í alls konar
mælingar ókeypis. „Við erum að
reyna að fá fólk til þess að taka
heilsuna í sínar eigin hendur.
Þetta mun heita Heilsu Haust
2015 og verður einu sinni í mán-
uði frá ágúst til nóvember. Ég
held að þessi sýning eigi eftir að
gera Íslendingum gott.“ Fyrsta
sýningin verður nú á sunnudag-
inn í Hlíðardalssetrinu í Ölfusi
og stendur frá klukkan tvö til
fimm. Það er frítt inn og mæl-
ingar og upplýsingabæklingar
eru fríir fyrir gesti og gangandi.
„Það eru 10 ár frá því að sýn-
ing í líkingu við þessa hefur
verið hér á landi. Þetta er haldið
um allan heim og kominn tími til
þess að halda heilsusýningu hér.
Þetta verður sett þannig upp að
það verða átta básar sem fólk
mun labba um. Þeir snerta allir
mismunandi viðfangsefni. Einn
mun fjalla um næringu, annar
um loft og enn annar um vatn
og þar fram eftir götunum. Fólk
getur farið í mælingu í hverjum
bás fyrir sig. Við munum mæla
súrefni, blóðþrýsting, blóðsykur
og margt fleira.“
Sýningin á sér erlenda fyrir-
mynd en það eru aðeins Íslend-
ingar sem koma að henni.
Aðventkirkjan er í samstarfi við
hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða
og lækna og nokkur fyrir tæki
sem munu lána ýmis tæki og tól
til mælinga. - gj
Heilsusýning í
fyrsta sinn í áratug
Heilsu Haust 2015 eru sýningar þar sem allir geta mætt og fengið mælingar og
upplýsingar um allt sem viðkemur heilsunni og heilbrigðum lífsstíl.
SKIPULEGGJENDUR Adrian og Vigdís skipuleggja sýninguna á vegum Aðventkirkjunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fagnar 25 ára afmæli
sínu um þessar mundir og af því tilefni fara þar fram
heljarinnar tónleikar á sunnudaginn. „Þarna munu
menn og dýr syngja og dansa saman,“ segir Stuðmað-
urinn Jakob Frímann Magnússon, en hann kemur fram
á tónleikum með hljómsveit sinni, Jack Magnet Quintet,
og þá mun hann einnig spila með reggíhljómsveitinni
AmabaDama. Jakob Frímann og reggísveitin hafa leitt
saman hesta sína að undanförnu og komu fram á Inni-
púkanum í gær. „Við vorum búin að æfa þetta fína pró-
gramm fyrir Innipúkann og nú flytjum við það fyrir
annan markhóp. Þarna er líklega breiðasti aldurshóp-
ur landsins af gestum á tónleikum um helgina.
Þarna verða foreldrar með börn frá eins árs
aldri og svo foreldrar með foreldra, aldurs-
hópurinn er líklega frá eins árs til hundrað
ára,“ segir Jakob.
Hann hefur oft komið fram á tónleikum
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum með
Stuðmönnum og hefur miklar mætur á
garðinum græna. „Laugardalurinn,
þessi fallegi græni staður, er full-
komin umgjörð um svona tónleika-
hald þar sem tónleikar eru í for-
grunni en ekki Bakkus. Á svona
hátíðum er Bakkus gjarnan að skemmta og tónlist til
kryddunar. Þessi iðgræni skógivaxni dalur hefur góð
áhrif og dýrin þar eru á besta mögulega staðn-
um. Þetta er öruggur staður til að vera á.“
Á tónleikunum koma einnig fram söng-
konurnar Dísa, dóttir Jakobs, og Glowie
sem syngur eitt vinsælasta lag lands-
ins í dag, No more. Tónleikarnir hefjast
klukkan 14.30 á sunnudag. - glp
Menn og dýr syngja saman
Mikil tónleikaveisla í tilefni 25 ára afmælis Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
AFMÆLI Mikil gleði verður í garðinum um helgina.
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
SPARBÍÓ
VARIETY
CHICAGO SUN TIMES
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS
OG GUARDIANS OF THE GALAXY
EMPIRE
TOTAL FILMVARIETY
HITFIX
THE HOLLYWOOD REPORTER
VARIETY
SÝND KL. 2 SÝND KL. 2SÝND KL. 1:45
SÝND Í 2D
SÝND Í 2D
ÍSL
TAL
ÍSL
TAL
TILBOÐ KL 1:45 TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
POWERSÝNING
KL. 10:35
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
OPIÐ ALLA
VERSLUNARMANNAHELGINA!
SÝNINGARTÍMA MÁ FINNA INNÁ
MIDI.IS OG LAUGARASBIO.IS
Góða skemmtun í bíó
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
F
-0
4
F
C
1
5
9
F
-0
3
C
0
1
5
9
F
-0
2
8
4
1
5
9
F
-0
1
4
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K