Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 56
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 36 SPORT Vetrarólympíuleikarnir 2022 verða haldnir í Peking, höf- uðborg Kína. Þetta var tilkynnt í Kúala Lúmpúr í gær. Valið stóð á milli Peking og Almaty, stærstu borgar Kasakstans en Stokkhólm- ur, Kraká, Lviv og Ósló drógu umsóknir sínar til baka. Þetta er í fyrsta sinn sem Vetr- arólympíuleikarnir fara fram í Peking en borgin hélt Sumaról- ympíuleikana árið 2008. Vetraról- ympíuleikarnir 2022 verða aðrir leikarnir í röð sem fara fram í Asíu en Pyeonchang í Suður-Kór- eu heldur leikana 2018. - iþs Peking varð fyrir valinu PEKING VetrarÓL verða haldnir tvisvar í röð í Asíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP SPORT FÓTBOLTI Eins mikið og Íslending- ar kvarta yfir veðrinu og köldu sumri leyfa áhugamenn um enska boltann sér að hlakka til vetrar- ins þegar það hentar. Það á þá oft- ast við þegar enski boltinn er að hefjast og verður generalprufan á morgun, sunnudag, þegar Chelsea og Arsenal mætast í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Bæði lið hafa styrkt sig vel fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeild- inni. Chelsea er ansi líklegt til að verja Englandsmeistaratitilinn en Arsenal hefur ekki verið líklegra til að standa uppi með þann stóra í háa herrans tíð. Stærstu kaup tímabilsins hjá Arsenal voru ekkert svo stór í milljónum punda talið þegar liðið fékk Petr Cech frá Chelsea fyrir tíu milljónir punda. Auðvitað er það rosalega mikill peningur en bara klink í heimi enska boltans eins og hann er í dag. Þessi kaup gætu þó verið þau stærstu hjá Arsenal og þau mikil- vægustu í mörg ár. Liðið hefur verið án alvöru markvarðar síðan Jen Lehmann kvaddi og sést það alveg á árangri liðsins. Arsenal-menn hafa reynt að halda tryggð við Pólverjann Woj- ciech Szczesny og aðra meðaljóna sem varið hafa mark Lundúnaliðs- ins undanfarin ár en niðurstaðan var átta titlalaus ár áður en tveir bikarmeistaratitlar unnust í röð. Nú er kominn alvöru markvörð- ur. Sigurvegari. Maður sem hefur unnið ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum (þrisvar sem aðalmark- vörður), bikarinn fjórum sinn- um og Meistaradeildina. Það sem meira er, hann var algjör lykil- maður á bak við alla þessa titla og fór langt með að vinna Meistara- deildina fyrir Chelsea árið 2012. José Mourinho veðjaði á Thi- baut Courtois og er það gott og blessað enda Belginn magnaður og mun yngri en Cech. En Tékk- inn er langt frá því að vera búinn og getur staðið vaktina í marki Arsenal næstu árin. Cech er markvörður sem vinnur stig og leiki. Leiki sem skila titl- um. Það er það sem Arsenal hefur vantað í langan tíma og fá aðdá- endur Arsenal og enska boltans kannski að sjá strax í fyrsta leik hvers virði hann er. - tom Fyrsti bikar vetrarins Petr Cech mætir Chelsea í fyrsta leik enska boltans þegar keppt verður um Samfélagsskjöldinn á sunnudaginn. MÆTTUR Arsenal er loks komið með heimsklassamarkvörð, en Petr Cech kostaði liðið ekki nema tíu milljónir punda sem er gjöf en ekki gjald. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY GOLF Einvígið á Nesinu, árlegt Góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, fer fram á mánudaginn, en um er að ræða eitt skemmtilegasta golfmót hvers ár. Skemmtun er aðalatrið- ið en með dassi af keppnisskapi. Venju samkvæmt er tíu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BUGL (Barna- og unglinga- geðdeild Landspítalans). BUGL sérhæfir sig í greiningu og meðferð á geðröskunum barna og unglinga með það að leiðarljósi að stuðla að auknum lífsgæð- um þeirra og fjölskyldna þeirra. BUGL fær eina milljón króna frá DHL. Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið sjálft þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. Birgir Leifur Hafþórsson, fremsti kylfingur Íslands, verður með í Einvíginu ár ásamt Íslands- meisturunum í höggleik 2015; Signýju Arnórsdóttur og Þórði Rafni Gissurarsyni. Björgvin Þorsteinsson, sexfaldur Íslands- meistari, verður einnig með líkt og Ragnhildur Sigurðardóttir og fleiri góð. Kristján Þór Einarsson verður ekki með að þessu sinni en hann á titil að verja. - tom MEISTARINN Þórður Rafn verður með í Einvíginu á Nesinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þau tíu bestu há einvígi FÓTBOLTI „Ég er búinn að skora meira en áður og er bara nokkuð ánægður með tímabilið hjá mér,“ segir Óskar Örn Hauksson KR- ingur en hann hefur verið einn af bestu leikmönnum Pepsi-deildar- innar í sumar. Hann hefur sem fyrr verið í lykilhlutverki hjá KR sem er komið í bikarúrslit og er einu marki frá toppsæti deild- arinnar. Eins og hann bendir á hefur hann skorað meira en áður og er kominn með tíu mörk í öllum keppnum. Það stóð ekki til að Óskar Örn myndi spila með KR í sumar enda var hann lánaður til Kanada út árið. Þar spilaði hann með FC Edmonton. Sú dvöl varð styttri en til stóð og Óskar kom heim tíu dögum fyrir fyrsta leik. Gott að kúpla sig út „Ég held ég hafi haft gott af því að kúpla mig aðeins út úr íslenska boltanum í smá stund og koma ferskari til baka,“ segir Óskar en hvað klikkaði í Kanada? „Ég var ekki að passa vel inn í liðið og leikstílinn þeirra. Þetta var vinnulið og ekki mikið með boltann. Þetta var meira hlaup og djöfulgangur. Það hentaði mér ekki. Þjálfarinn hugsaði mig sem miðjumann og ég var þar meira og minna að elta boltann. Þá kemur lítið út úr mér. Þetta byrjaði vel og skemmtilega en það fjaraði undan þessu og var lítt gaman í lokin.“ Eins og íslenskir knattspyrnu- unnendur vita mætavel hefur Óskar verið með betri leikmönn- um deildarinnar undanfarin ár. Atvinnumennskutilraunir hans hafa þó ekki gengið upp. Hann fór til að mynda til Sandnes Ulf árið 2012 en kom aftur heim. „Ég hef oft pælt í af hverju þetta hefur ekki gengið. Sandnes var svipað og Edmonton. Lið sem er lítið með boltann. Ég hef ekki hentað í þannig bolta og kannski ekki fengið almennileg tækifæri til að spila. Á æfingum tel ég mig hafa sýnt hvað ég kann í fótbolta,“ segir Óskar og viðurkennir að vera svolítið svekktur yfir því að þessir hlutir hafi ekki gengið upp. „Það er auðvelt að segja þjálfar- inn. Ég veit ég er nógu góður til að gera meira úr þessu en ég hef kannski tekið vitlausar ákvarðan- ir með lið. Svo meiðist ég um mitt tímabil 2011 þegar það var mikið í gangi. Þá var ég að eiga mitt besta tímabil. Það hefur ekki legið fyrir að mér að vera í atvinnumennsku.“ Í ágúst í fyrra var Óskar Örn á leiðinni til norska liðsins Våler- enga en það datt upp fyrir á ell- eftu stundu. „Það var rosalega svekkjandi því þá var ég að fara í lið sem er stórt í Noregi og í Evrópubaráttu. Lið sem er meira með boltann og hefði kannski hentað mér betur. Þetta dæmi var týpískt fyrir mig og minn atvinnumannsferil. Ég fékk tveggja daga frí til að jafna mig á svekkelsinu. Ég keyrði með konunni út á land til að kúpla mig út úr öllu. Ég var ekkert sér- staklega skemmtilegur þessa tvo daga.“ Alltaf ágætur í sköllunum Óskar Örn er að verða 31 árs gam- all og gerir sér grein fyrir því að atvinnumannstækifærin eru ekki þau sömu og áður. „Ég er ekkert að horfa á það núna. Ég held að lið séu ekki að horfa á mann sem er að verða 31 árs, hefur spilað á Íslandi nán- ast allan sinn feril og átt hálfmis- heppnaðan atvinnumannsferil.“ Miðað við það hvernig Óskar er að spila í sumar má ekki útiloka neitt í framhaldinu. „Þetta er eitt af mínum bestu tímabilum þó svo það hafi verið hljótt um það. Nú er ég orðinn þekktur skallamaður líka. Ég hef alltaf verið ágætur í sköllunum og núna hefur það dottið. Ég náði kannski að styrkja mig aðeins í djöfulganginum í Kanada.“ henry@frettabladid.is EITT MITT BESTA TÍMABIL Óskar Örn Hauksson hefur farið mikinn með liði KR í sumar eins og svo oft áður. Þessi hæfi leikaríki leik- maður hefur ekki náð neinni fótfestu í atvinnumennskunni og segir ýmsar ástæður vera fyrir því. MAGNAÐUR Óskar Örn fagnar hér marki sínu gegn Cork í Evrópukeppninni. Hann er búinn að skora tíu mörk í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/INPHO 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 F -1 8 B C 1 5 9 F -1 7 8 0 1 5 9 F -1 6 4 4 1 5 9 F -1 5 0 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.