Fréttablaðið - 13.10.2015, Page 1

Fréttablaðið - 13.10.2015, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 3 9 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r þ r i ð j u d a g u r 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 5 lÍfið Tónlistaveitur gefa lítið af sér. 34 Fréttablaðið í dag skoðun Árni Páll Árnason skrifar um stjórnarskrána. 14-16 sport Strákarnir ætla að vinna riðilinn í kvöld. 18 Menning Klassík í Vatnsmýrinni og rýnt í Heimkomuna í Þjóð- leikhúsinu. 24-26 lÍfið Bibbi í Skálmöld gefur út skáldsögu. 32 Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 löggæsla Fjölga þarf í lögreglunni um að minnsta kosti 200 manns til að hún geti sinnt lögboðnum skyld- um sínum, er mat ríkislögreglustjóra. Það var niðurstaða þverpólitískrar þingnefndar árið 2013 að hækka þyrfti framlög til lögreglunnar um alls 3,5 milljarða króna, umfram verðlagshækkanir fjárlaga, á fimm ára tímabili 2013 til 2017. Það er samdóma álit viðmælenda Fréttablaðsins að vandi löggæsl- unnar í landinu er mun djúpstæðari en yfirstandandi kjaradeila lögreglu- manna við ríkið gefur til kynna. Þegar horft er fáein ár aftur í tímann má finna þess stað á fjölmörgum stöðum að vandi lögreglunnar er viðurkenndur af öllum sem gerst þekkja – stjórnvöldum þar með talið og sitjandi ríkisstjórn. Í ársskýrslu ársins 2014 segir Har- aldur Johannessen ríkislögreglustjóri að á árunum 2007 til 2014 hafi lög- reglumönnum fækkað um tæplega 100, en 500 milljóna króna aukafjár- veiting árið 2014 leyfði ráðningar á 44 nýjum lögreglumönnum. Enn er þó langt í land, segir Haraldur, og vísar til niðurstöðu nefndar innanríkisráð- herra frá mars 2013 sem skipuð var fulltrúum allra þingflokka, tveimur fulltrúum innanríkis ráðuneytisins, einum fulltrúa ríkislögreglustjóra, einum frá Landssambandi lögreglu- manna og fleiri. Niðurstaða þingnefndarinnar árið 2013 [Nefnd um gerð löggæsluáætl- unar um Ísland] var að fjölga þyrfti lögreglumönnum um rúmlega 40%, auka þyrfti menntun þeirra og þjálf- un og bæta búnað. Vísað var til þess- arar niðurstöðu í stefnuyfirlýsingu sitjandi ríkisstjórnar sem leiðarljóss í átaki í að efla lögregluna í landinu. Tölur ríkislögreglustjóra sýna að lög- regluna skipuðu 712 lögregluþjónar árið 2007. Þeir voru 640 í febrúar síðastliðnum. Haraldur segir að mun meira þurfi að koma til ef staðan á að verða ásættanleg. Að mati Haraldar þurfa lögreglumenn í landinu að vera að lágmarki 860, staðfestir hann við Fréttablaðið, en sprenging í komum ferðamanna og fleiri þætti þurfi þó að skoða mun betur við mat á skipan lögregluliðanna í landinu. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, tekur undir með ríkislögreglustjóra og nefnir að fjölga þurfi um 200 manns. Hann telur að lögreglan hafi horft upp á hvert svikið loforðið á fætur öðru og að „mælirinn sé ein- faldlega orðinn fullur“. Eigi það jafnt við um kjaramál og mönnun lögreglu sem annað. – shá / sjá síðu 12 Fjölga þarf í lögreglu um minnst 200 manns Vandi löggæslunnar ristir mun dýpra en kjaradeila lögreglumanna við ríkið gefur til kynna. Fjölga þarf lögregluþjónum um minnst 35% og veita milljarða til viðbótar til grunnlöggæslu. Viðurkennt í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Á Háskólatorgi stendur stór uppblásinn ristill. Hann er hluti af Bleiku slaufunni, átaki Krabbameinsfélagsins, sem fram fer þessa dagana. „Ristilkrabbamein er tiltölulega algengur sjúk- dómur. Þriðja algengasta krabbamein hjá körlum og konum,“ segir Lára Guðrún Sigurðardóttir, fræðslustjóri Krabbameinsfélags Íslands. Fréttablaðið/SteFán 712 646 693 659 647 624 610 620 640 ✿ fjöldi lögreglumanna 2007 2011 2008 2012 2009 2013 2010 2014 2015 Heimild: Ríkislögreglustjóri uMhverfisMál Beita á „gjöreyðingar- lyfinu“ Roundup gegn lúpínu í Dal- víkurbyggð næsta vor. Bæjaryfirvöld vilja alla landeigendur í sveitarfélaginu með í verkefnið sem taka á fimm ár. „Menn eru mjög jákvæðir gagnvart því að fara í þessa eyðingu,“ segir Valur Þór Hilmarsson, umhverfisstjóri Dalvíkur- byggðar. Roundup inniheldur virka efnið glyfosat, en Umhverfisstofnun vakti í sumar athygli á fréttum þess efnis að plöntuverndarvörur sem innihalda þetta efni kynnu að valda krabbameini í mönnum. – gar / sjá síðu 8 Umdeildu efni beitt á lúpínu dóMsMál „Þetta er áfellisdómur um allt byggingareftirlit á Íslandi, alla byggingarfulltrúa og opinbert eftir- lit með húsakosti,“ segir Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Leigj- endasamtakanna um nýjan dóm í myglumáli. Héraðsdómur hefur dæmt að fjöl- skylda skuli fá endurgreidda húsaleigu vegna stúdentaíbúðar sem hún leigði á Ásbrú veturinn 2011 til 2012. Sannað þyki að leigusali hafi vitað af rakaskemmdum í íbúðinni áður en fjölskyldan flutti inn. Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður fjölskyldunnar, segir málið fordæmisgefandi. ebg / sjá síðu 6 Áfellisdómur yfir eftirliti 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 B F -8 C C 0 1 6 B F -8 B 8 4 1 6 B F -8 A 4 8 1 6 B F -8 9 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.