Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 24
Margir leysa geymsluvesen og umfelganir sem fylgja skipt-
um milli vetrar- og sumardekkja með því að aka um á heilsárs-
dekkjum. En hver er munurinn á vetrardekkjum og heilsárs-
dekkjum?
Á vetrardekkjum er mjúk gúmmíblanda á slitfleti dekkjanna
sem grípur vel í ísilagða vegi og snjó. Blandan helst mjúk þrátt
fyrir kulda og frost svo dekkin halda veggripi allan veturinn. Í
hlýrra veðurfari eins og á sumrin verður gúmmíið þó of mjúkt
og bíllinn verður óþjáll í akstri. Því er nauðsynlegt að skipta
yfir í sumardekk.
Heilsársdekk eru yfirleitt grófmunstruð sumardekk. Þau hafa
því ekki jafngott grip í frosti þar sem gúmmíblandan í þeim er
ekki mjúk. Heilsársdekk geta orðið glerhörð í frosti og taka þarf
tillit til þess í akstri.
Meta þarf hvers konar akstursaðstæður eru ríkjandi á því
svæði sem ekið er um daglega þegar velja á dekk undir bílinn.
Nagladekk má ekki nota frá 15. apríl til 1. nóvember.
Heimild: fib.is
Vetrardekk eða
heilsársdekk?
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Þetta er fimm kennslustunda nám sem skiptist í þrjár bóklegar kennslustund-
ir og tvær verklegar. Nemendur
á hverju námskeiði eru tólf tals-
ins. Við byrjum að fjalla um sam-
spil veggrips, hraða og ökumanns
og förum svo í skrikbílana úti á
plani og gerum æfingar við mis-
munandi veggrip. Í hverjum bíl
eru ökukennari og þrír nemend-
ur sem skiptast á að keyra. Bíl-
arnir eru þannig úr garði gerð-
ir að hægt er að stýra veggripinu
með því að stilla hversu þungt
þeir liggja á götunni. Við erum því
ekki bundin af því að hafa hálku
á brautinni heldur getum kennt
allan ársins hring,“ útskýrir Jón
Haukur Edwald, framkvæmda-
stjóri Ökuskóla 3.
Prófa áður en farið er út í umferðina
Nemendur gera svo ýmsar æf-
ingar. „Þeir prófa meðal ann-
ars hvernig er að koma í beygju
á miklum hraða með mismun-
andi veggrip og upplifa hvaða af-
leiðingar það hefur og hvernig á
að bregðast við. Þetta er allt gert
í öruggum aðstæðum og getur
kennari gripið inn í og skellt bíln-
um í fullt veggrip ef þarf,“ út-
skýrir Jón Haukur.
Hann segir ekki endilega um
að ræða færniþjálfun. „Mark-
miðið er ekki að nemendurn-
ir verði ofboðslega góðir í að
skransa í hálku heldur að þeir
hafi lent í þessum aðstæðum
áður en þeir fara út í umferðina
og viti hvað ber að varast. Vonin
er sú að þeir komi sér þá síður í
hættulegar aðstæður.“
Í bílnum er svo farið yfir það
hvað hafi gerst, af hverju, hvað
hafa þurfi í huga og hvað sé
hægt að gera betur. Nemendurn-
ir ræða þessi mál með kennaran-
um og koma líka með sínar hug-
myndir og lausnir. „Þetta er því
líka eins konar jafningjafræðsla
og hefur sú nálgun gefist vel.“
Læra að aka í takt við aðstæður
Önnur æfing sem nemendur
gera er að átta sig á mismun-
andi hemlunarvegalengd. „Við
röðum upp plastkubbum í sömu
lengd og strætisvagn. Nemendur
eru svo látnir aka á 50 kílómetra
hraða en byrja að hemla við aft-
ari hluta strætisvagnsins. Á þeim
hraða fer bíllinn fjórtán metra á
hverri sekúndu og nemendurn-
ir komast að raun um að bíll-
inn byrjar ekki að hægja á ferð-
inni fyrr en þeir eru komnir fram
hjá strætisvagninum. Þetta á við
um venjulegt veggrip. Hemlun-
arvegalengdin er svo mun lengri
í hálku. Þeir sem aka á 30 kíló-
metra hraða myndu hins vegar
ná að stöðva,“ útskýrir Jón Hauk-
ur. Hann segir æfinguna sýna
nemendum hversu mikilvægt er
að vera á varðbergi og keyra í takt
við aðstæður.
Jón Haukur segir hraðann
hafa mikið að segja en sömu-
leiðis yfirborð vegarins og veðr-
ið. „Tíminn sem er að fara í hönd
er til dæmis oft lúmskur enda
getur skyndilega myndast frost
á blautum vegum. Þá skipta góðir
hjólbarðar miklu máli en við
getum stillt mismunandi veggrip
framan og aftan á bílinn. Þann-
ig átta nemendur sig á því hvaða
áhrif það hefur á aksturseigin-
leika bílsins að vera á slitnum
dekkjum að framan og góðum
að aftan eða öfugt.“
Í Ökuskóla 3 er líka velti-
bíll sem nemendur fá að prófa.
„Þeir fara í hring og finna hvern-
ig beltin grípa. Þeir fara sömu-
leiðis í svokallaðan beltissleða.
Á honum eru tvö bílsæti með
beltum og rennur hann á sex
kílómetra hraða. Þegar hann
snöggstöðvast finna nemend-
ur það högg sem verður á hefð-
bundnum gönguhraða og geta
þá ímyndað sér hvernig það er á
meiri hraða. Svo erum við með
sleða sem undirstrikar hversu
mikilvægt er að hafa rétt stillta
hauspúða og hvaða afleiðing-
ar það hefur ef þeir eru of lágt
stilltir sem er því miður mjög al-
gengt í umferðinni. Sömuleiðis
að fólk sé með skakkt stillt sæti
en þessi atriði geta skipt sköp-
um þegar um aftanákeyrslur er
að ræða.“
Athygli við akstur og lausamunir
Í bóklega hlutanum er að sögn
Jóns Hauks farið yfir það hvað
hægt er að gera til að draga úr
afleiðingum ef ekki tekst að af-
stýra óhappi. „Þar fjöllum við um
rétta notkun bílbelta. Sömuleiðis
athygli ökumanna og þá sérstak-
lega um notkun farsíma við akst-
ur, sem er síaukið vandamál. Við
förum líka yfir hætturnar sem
fylgja lausamunum í farþega-
rými svo dæmi séu nefnd en þess
má geta að 100 gramma farsími
sem liggur laus í bíl gefur 12 kílóa
högg á 90 kílómetra hraða,“ upp-
lýsir Jón Haukur.
Hann segir f lesta nemend-
ur hafa gaman af náminu í öku-
skóla 3 og að það gagnist þeim
vel. „Ökunám á Íslandi er mjög
gott ef við berum okkur saman
við önnur Evrópulönd og ekki
veitir af enda akstursaðstæður
oft krefjandi. Það hafa líka verið
gerðar ýmsar umbætur á öku-
náminu síðustu áratugi og er
Ökuskóli 3 nýjasta viðbótin en
allt á það án efa þátt því að um-
ferðaróhöppum hjá ungum öku-
mönnum hefur fækkað.“
Þótt Ökuskóli 3 sé fyrst og
fremst sóttur af ökunemend-
um segir Jón Haukur ekkert því
til fyrirstöðu að einstaklingar
og hópar taki sig saman og prófi
með það að markmiði að auka
færni sína í umferðinni.
Liður í að fækka slysum
Flestir ökumenn eru sammála um að akstur í hálku sé krefjandi og mörg umferðaróhöpp og slys má rekja til minna veggrips sökum
hálku. Í ársbyrjun 2010 var Ökuskóli 3 stofnaður en markmið hans er að leyfa ökunemendum að prófa akstur í hálku og erfiðum
aðstæðum. Námið hefur gefist vel og er að öllum líkindum einn liður í því að dregið hefur úr slysum hjá ungum ökumönnum.
Skrikbílarnir eru þannig úr garði gerðir að hægt er að stýra veggripinu með því að stilla
hversu þungt þeir liggja á götunni. MYND/GVA
13. október 2015 ÞrIÐJUDAGUr4 Vetrardekk
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
_
N
ÝT
T
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
B
F
-D
6
D
0
1
6
B
F
-D
5
9
4
1
6
B
F
-D
4
5
8
1
6
B
F
-D
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K