Breiðholtsblaðið - 01.08.2006, Síða 14
Um 40 ÍR-ingar tóku þátt í
unglingalandsmóti Ungmennafé-
lags Íslands á Laugum í Þingeyja-
sveit sem fram fór 5. til 8. ágúst í
Reykjadal. Hekla Rún Ámunda-
dóttir úr ÍR sigraði í hástökki
stelpna 11 ára, stökk 1.30 m. og
gerði sér lítið fyrir og varð fimm-
ta í 600 m. hlaupi á 9.75 sek.
Hekla Rún hlaut þrenn verðlaun
á mótinu en hún varð önnur í
spjótkasti og þriðja í kúluvarpi í
sínum flokki.
Dóroóthea Jóhannesdóttir ÍR
hafði nokkra yfirburði í hástökki
12 ára stelpna en hún stökk 1.40
m. í hástökki og Jóhanna Kristín
Jóhannesdóttir stökk 1.30 m. Jó-
hanna, Heiður Þórisdóttir, María
Rún Gunnlaugsdóttir og Hilda
Margrét komust síðan áfram í 100
m. hlaupinu. Heimir Þórisson ÍR
gerði sér lítið fyrir og hljóp 100 m.
undanrásir á 11.92 sek. í flokki 15
til 16 ára. Snorri Sigurðsson sem
aðallega hefur keppt í 800 m. og
1500 m. tók einnig þátt í 100 m.
hlaupinu og hljóp á 12.82 sek., Ár-
mann Óskarsson hljóp á 14.03
sek. í þessari sömu grein.
Hekla Rún áfram
Hekla Rún Ámundadóttir komst
áfram í undanúrslit í 60 m hlaupi
11 ára stelpna og Davíð Árni Þór-
mundsson varð 2. í langstökki 11
ára stráka með 4.15 m og komst
áfram í 60 m hlaupinu. Elín Ás-
laug Helgadóttir 4. í sömu grein í
með 4.38 m í flokki 13 ára telpna
en María Rún varð 6. með 4.33m,
Karen Gunnarsdóttir varð 9.,
Hilda Margrét 10., Heiður 15.,
Sæunn Ýr Óskarsdóttir 16. og
Jóhanna Rut Sævarsdóttir 21. en
41 telpa keppti í greininni. Hekla
Rún varð 2. í spjótkasti 11 ára
stelpna með 19.20 m. og Hulda
Þorsteinsdóttir fór einnig á verð-
launapall í hástökki með 1.55 m.
Arna Ómarsdóttir sigraði í spjót-
kasti meyja með 31.67 m. Chelsey
Kristína Birgisdóttir náð lágmarki
í úrvalshóp unglinga FRÍ þegar
hún hljóp 800 m. á 2:24.97 mín. og
sigraði með nokkrum yfirburðum.
Í lengri hlaupunum drengja þá
varð Ólafur Konráð 3. í 800 m. á
2:09.05 mín og Vignir Már
Lýðsson 7. með 2:17.92 mín. Snor-
ri Sigurðsson varð 5. í 800 m.
hlaupinu og hljóp á 2:11.43 mín.
og lágmark í úrvalshóp unglinga
FRÍ. Heimir varð 8. á 2:31.13 mín.
og Áramann Óskarsson varð 9. á
2:35.38 mín. María Rún Gunn-
laugsdóttir keppti í 800 m. hlaupi
og varð hún 3. á 2:42.49 mín. og
Sæunn Ýr Óskarsdóttir 7. á 2:54
mín.
Björg sigraði í 600 m.
hlaupinu
Keppt var í 600 m. hlaupum í
yngstu aldursflokkunum og sigr-
aði Björg Gunnarsdóttir í 600 m.
hlaupi 12 ára stelpna á 1:53.96
mín. Dóróthea varð 4. á 1.59,15
mín. og Andrea Bergþórsdóttir
13. á 2:14.70 mín. Í spjótkasti 13
ára telpna varð Heiður Þórisdótt-
ir í 3. sæti með 26.89 m., Elín Ás-
laug Helgadóttir í 4. sæti með
25.25 m. og Sæunn Ýr Óskarsdótt-
ir 5. með 24.15 m., María Rún
Guðlaugsdóttir 7. með 23.29 m.
og Hilda Margrét Ragnarsdóttir
11. með 21.56 m. Hekla Rún
Ámundadóttir sigraði í langstökki
í flokki 11 ára stelpna með 4.09
m., hún varð síðan 3. í kúluvarpi
með 6.96 m. og 7. í 800m á 2:13.90
min.
Elvar Ingi Vignisson varð 11. í
spjótkasti 11 ára stráka með kast
upp á 20.92 m.
Hulda Þorsteinsdóttir varð 2. í
langstökki með 4.81m en 25 stúlk-
ur kepptu í langstökki í þessum
flokki. Hún varð síðan 4. í 800 m.
hlaupi. Elín Áslaug Helgadóttir ÍR
varð þriðja í hástökki 13 ára telp-
na, stökk 1.45 m. Arna Ómars-
dóttir ÍR tryggði sér sín önnur
verðlaun á mótinu með silfri í
kúluvarpi meyja 15 til 16 ára,
kastaði 9.97 m. Ármann Óskars-
son ÍR kastaði 38.85 m. og varð
sjöundi. Ketill Guðmundsson ÍR
varð fjórði í 60 m. hlaupi stráka
11 ára á 9.43 sek.. Dóróthea
Jóhannesdóttir ÍR sigraði í 60 m.
hlaupi 12 ára stelpna á 8.76 sek.
og í því hlaupi varð Jóhanna
Kristín Jóhannesdóttir ÍR þriðja á
9.08 sek. Dóróthea og Jóhanna
unnu einnig gull og brons í lang-
stökki þegar Dóróthea stökk 4.62
m. og Jóhanna 4,27 m. Jóhanna
og Dóróthea voru svo í
boðhlaupssveit ÍBR sem sigraði í
4x100 m. boðhlaupi 12 ára
stelpna á 58.35 sek.
ÁGÚST 200614 Breiðholtsblaðið
Áframhaldandi góður árangur
einkenndi síðari dag Meistara-
móts Íslands 15 til 22 ára og áttu
ÍR-ingar þar hlut að máli að
vanda. ÍR sigraði í stigakeppni í
sveina og meyjaflokki, varð í
öðru sæti í drengjaflokki, þriðja
sæti í ungkvennaflokki, fjórða
sæti í ungkarlaflokki og sigraði
svo í heildar stigakeppninni með
342, 5 stig en FH varð í öðru sæti
með 320,5 stig.
Fyrst ber að nefna árangur
sveinasveitarinnar í 4 x 400m boð-
hlaupi en hún varð í 1. sæti á nýju
Íslandsmeti 3:40.03 mín. en gamla
metið var í eigu landssveitar Ís-
lands, 3:43,6 mín. síðan 1997.
Sveitina skipuðu þeir Steinar
Thors, Snorri, Heimir og Einar
Daði.
Guðmundur Sverrisson sem
keppir í sveinaflokki varð sigur-
vegari í sleggjukasti með 40,98 m.
hann varð síðan í 2. sæti í spjót-
kasti með 54.07 m. Sandra Péturs-
dóttir vann gull í sleggjukasti með
34.62m, og varð 3. í spjótkasti
með 26.94 m.
Einar Daði Lárusson hélt áfram
þar sem frá var horfið eftir fyrri
daginn vann gull í 300 m. grinda-
hlaupi á 40,53 sek en Heimir Þóris-
son varð þriðji á 43,21 sem er
bæting hjá honum og Steinar
Thors varð fjórði á 44.26 sek. Ein-
ar Daði varð síðan í fyrsta sæti í
200 m. hlaupi á 24.02 sek, annar í
hástökki með 1.81 m, þriðji í
þrístökki með 12,76 m. Í 200 m átti
ÍR ss. tvo fyrstu hlaupara en
Heimir Þórisson varð 2. þegar
hann hljóp á 24.43 sek. Ásdís
Magnúsdóttir sigraði í þrístökki
með 10.70 m. og var 30 cm. á und-
an næsta keppanda. Í þrístökki
meyja varð Hulda Þorsteinsdóttir
í 3. sæti með 10.06 m. og Alda Gra-
ve 5. með 9.69 m.
Brynjar Gunnarsson sigraði í
300m grindahlaupi á 41,85 sek
annar í þrístökki með 11.98m
Valdís Anna Þrastardóttir varð
önnur í spjótkasti með 34.30 m
sem er nálægt hennar besta.
Sara Björk Lárusdóttir keppti í
300m grindahlaupi, sigraði og
bætti sig er hún hljóp á 49.42 sek,
og varð 2 sek á undan næsta
keppanda. Hún varð síðan í 2.
sæti í 800 m hlaupi á 2:43.54 mín.
Helga Björt Bjarnadóttir varð 4.
í 300 m. grindahlaupi en hún hljóp
á 52.28 sek.
Kristborg Anna Ámundadóttir,
náði gulli í sleggjukasti með 30.41
m. sem er lágmark í úrvalshóp
unglinga FRÍ, og er hún 30 ÍR-ing-
urinn inn í hópinn. Fanney Björk
Tryggvadóttir varð í fyrsta sæti í
hástökki ungkvenna með 1.50 m.
og Helga Þráinsdóttir varð 2. í há-
stökki stúlkna með 1.56 m. Snorri
Sigurðsson bætti sig bæði í 3000
m. og 800 m. hlaupi. Í 3000 m. sigr-
aði hann á 10:06.21 mín og er það
lágmark í úrvalshópinn. Í 800 m.
hljóp hann á 2:12.08 mín. og varð í
3. sæti. Ólafur Konráð Sigurðsson
varð í 6. sæti í sömu grein og náði
að bæta sig þegar hann hljóp á
2:06.86 mín en hann varð 2. í 300
m. grindahlaupi á 43.78 sek. Vignir
Már Lýðsson varð fjórði í 3000 m.
á 10:22.39 mín. Í boðhlaupunum
varð A-sveit meyja í 3. sæti en B-
sveitin í því 4.
Góður árangur
á síðari degiHekla Rún með
þrenn verðlaun frá Laugum
Unglingalandsmót Laugum: