Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Frosta
Logasonar
Bakþankar
Það er ekkert grín að búa á ein-angraðri eyju lengst norður í Atlantshafi. Íslensk þjóð er
því marki brennd að hafa í þúsund
ár þurft að berjast fyrir lífi sínu
í harðgerðri náttúru á mörkum
hins byggilega heims. Kyn okkar
hefur aðlagast og mótast af erfiðum
aðstæðum og í kjölfarið getið af sér
samfélag sem á sér fáar hliðstæður.
Allt er þetta svo ítarlega skjalfest
á bæði gömlum skinnritum jafnt
sem hátæknilegri Íslendingabók á
vefnum þar sem sjálfur get ég rakið
ættir mínar beint til fyrsta land-
nemans í Reykjavík.
Næstu vikur og mánuðir verða
strembnir á Íslandi. Skammdegið
er að skella á og ef þú ætlar ekki
óvænt að sitja fastur í snjósköflum
og slabbi einhvern næstkomandi
morgun þurfa vetrardekkin að
komast undir fljótlega. Helsta
vandamál mitt næstu mánuðina
verður þó sennilegast skortur á
tíma og skipulagningu. Einn stjórn-
málaflokkurinn hefur lagt til að
seinka klukkunni og það er vel. En
eins og með öll hin góðu málin má
ekki samþykkja það. Þetta er of
róttækt. Þar af leiðandi eiga mínar
hugmyndir um lengri sólarhring
engan möguleika. Svekkjandi.
Mér eins og öðrum Íslendingum
veitti nefnilega ekkert af svona
eins og fjórum aukatímum á dag.
Sérstaklega á þessum árstíma. Ég á
nefnilega eftir að lesa mikið af þeim
bókum sem hafa verið að koma út
á undanförnum vikum. Hallgrímur
Helgason, Jón Gnarr, Einar Már,
Jón Kalman, Stefán Máni og Bibbi
í Skálmöld bíða allir á náttborðinu
mínu. Ég ætla að lesa þá alla fyrir
jól af því ég veit af reynslu að þeir
skrifa allir eðalstöff. Tvö meistara-
verk hafa þegar verið lesin en það
eru bækur Mikka Torfa og Bubba
Morthens. Já, það er vandlifað á
skerinu.
Íslendinga-
bækur
5 5 2 8 6 0 0
B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
www.gudjono.is · Sími 511 1234
FINGRAFÖRIN
OKKAR
ERU
ALLS STAÐAR !
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-1
9
E
C
1
6
D
6
-1
8
B
0
1
6
D
6
-1
7
7
4
1
6
D
6
-1
6
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K