Fréttablaðið - 05.11.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 05.11.2015, Síða 6
Opinber heimsókn til Víetnams StjórnSýSla Katrín Oddsdóttir lög- maður fékk í gær þrjár synjanir um gjafsókn fyrir hælisleitendur. Hún segir synjanirnar hafa komið stórkostlega á óvart. „Þetta er stefnubreyting sem við vitum ekkert hvaðan kemur,“ segir Katrín en synjanirnar koma frá gjafsóknarnefnd og eru undirritaðar af embættismönn- um innanríkisráðuneytisins. „Ég held að enginn hafi átt von á þessu. Rauði kross Íslands kom með þessi mál á okkar borð því það var talið að um ranga niðurstöðu væri að ræða og það þyrfti að taka málið upp fyrir dóm- stólum.“ Katrín segir hælisleitendur yfirleitt fá gjafsókn. „Það er ekki alveg undan- tekningarlaust, en oftast. Enda hafa þeir engan annan möguleika á að láta reyna á réttmæti ákvarðana um hvort beri að senda þá í önnur lönd,“ segir hún. Synjanir sem um ræðir eigi sam- eiginlegt að varða hælisleitendur sem senda á til annars lands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. „Eitt af þeim málum sem liggja á mínu borði er stóralvarlegt. Það varðar ungan mann sem hefur verið á flótta frá barnsaldri, er með vottorð frá lækni um að vera of veikburða og andlega lasinn til að ferðast og nú á að senda hann til Ítalíu. Hann mun ekki lifa það af. Aðstæður á Ítalíu eru skelfilegar og eng- inn heldur því fram að það sé í lagi að senda fólk þangað. Innanríkisráðherra hefur meira að segja haft orð á því.“ Í synjunarbréfunum kemur fram að ekki þyki tilefni til málshöfðunar. Katrín bendir á að það sé eingöngu dómstólsins að ákveða slíkt með dómsniðurstöðu, en ekki nefndar úti í bæ. Án gjafsóknar eigi hælisleitendur engan möguleika á að leita réttar síns. Þess má geta að það að reka dóms- mál á Íslandi kostar mörg hundruð þúsund. Eingöngu þingfestingargjöld nema tugum þúsunda. „Allir eiga rétt á að fara með deilu- mál sín fyrir dómstóla. Það stendur í stjórnarskránni. Það hefur marg- oft gerst að hælisleitendur fari með mál sín fyrir dómstóla og unnið þau. Ákvarðanirnar eru ekki alltaf taldar réttmætar og þannig heldur það áfram að vera. Því er gríðarlega alvarlegt að búið sé að útiloka einn minnihlutahóp frá dómstólum í landinu,“ segir Katrín. erlabjorg@frettabladid.is Hælisleitendur fá ekki gjafsókn Lögmaður segir yfirvöld hafa breytt stefnu sinni án þess að kynna það formlega og neiti hælisleitendum um gjafsókn í dómsmálum. Gríðarlega alvarlegt sé að minnihlutahópur sé útilokaður frá dómstólum. Rauði kross Íslands kom með þessi mál á okkar borð því það var talið að um ranga niðurstöðu væri að ræða og það þyrfti að taka málið upp fyrir dóm- stólum. Katrín Oddsdóttir lögmaður Dorrit Moussaieff forsetafrú og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hitta Truong Tan Sang, forseta Víet- nams, og Mai Thi Hanh, eiginkonu hans, í forsetahöllinni í Hanoí. Þriggja daga opinber heimsókn forsetans til Víetnams hófst í gær, en í henni tekur einnig þátt Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Þá eru auk embættismanna með í för forstjórar Hafrannsóknastofnunar og Orkustofnunar auk rektors Háskólans í Reykjavík. Einnig verður farið til Suður-Kóreu og Singapúr. NordicPhotos/AFP félagSmál „Markmið göngu gegn einelti er að stuðla að jákvæðum sam- skiptum, vekja athygli á mikilvægi vin- áttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið,“ segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ vegna eineltisgöngu þar á morgun. Það verða leik- og grunnskólabörn sem á morgun ganga gegn einelti í þriðja sinn. „Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti,“ segir í tilkynningu bæjarins. „Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni í fyrra og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.“ – gar Skólakrakkar gegn einelti Frá fyrstu eineltisgöngu skólabarna í Kópavogi fyrir tveimur árum. FréttAblAðið/GVA 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 f I m m t U D a g U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 D 6 -4 6 5 C 1 6 D 6 -4 5 2 0 1 6 D 6 -4 3 E 4 1 6 D 6 -4 2 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.