Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 52
Á sum dansverk mÁ
koma bara til að
njóta hreyfinga, hughrifa
og fegurðar.
Og himinninn kristall-ast er stór uppfærsla með sjö dönsurum, flóknum sviðshreyf-ingum, ljósum og
flugeldum. Það er gríðarlega mikið
í hana lagt,“ segir Sigríður Soffía
Níelsdóttir þegar hún er beðin að
útskýra dansverkið sitt sem lifnar
á stóra sviði Borgarleikhússins í
kvöld.
Verkið er framhald flugelda-
sýninga þriggja menningarnátta
síðustu ára sem Sigríður Soffía hafði
veg og vanda af. „Þetta er enda-
punktur minn á því að kynna það
fyrir almenningi að fugleldasýning
geti verið samin sem dansverk,
nú geri ég flugeldasýninguna að
dansverki,“ segir Sigríður Soffía og
segir verkið nánast endursköpun
á flugeldasýningunni Stjörnubrim
sem flutt var á Menningarnótt 2015.
Hún þvertekur fyrir að hún segi
sögu í sýningunni. „Ég er einmitt
að fá fólk til að njóta dansins á
sama hátt og það nýtur flugelda-
sýningar. Það dettur engum í hug
að segja eftir flugeldasýningu: „Ég
fattaði ekki hver var vondi karlinn
og hver góði.“ Hið sama gildir hér,
það er ekkert að skilja. Í sumum
dansverkum má fólk koma og njóta
hreyfinga og hughrifa og sjónar-
spils.“
Sigríður Soffía segir sýningar
sínar unnar upp úr heimspeki-
legum pælingum um fegurðina og
skynjun heilans á henni. Í fram-
haldinu hafi komið vangaveltur
um af hverju við heillumst, til
dæmis af hverju okkur þykja flug-
eldasýningar svo æðislegar. „Það er
fegurð þeirra sem hefur aðdráttar-
afl,“ segir hún. „Flugeldasýning er
sett upp niðri í miðbæ og hundrað
þúsund manns koma til að horfa
á hana, nánast eins og flugur sem
fljúga á ljós.“
Fegurðin hefur
aðdráttarafl
og himinninn kristallast heitir verk sem Íslenski dansflokkurinn
sýnir í kvöld í borgarleikhúsinu. Það er eftir sigríði soffíu, hönnuð
flugeldasýninga síðustu þriggja menningarnátta.
Mikið er lagt í að endurskapa flugeldasýninguna Stjörnubrim, með dönsum, búningum og ljósum. Mynd/íSlenSki danSflokkurinn
„en nú geri ég flugeldasýninguna að dansverki,“ segir danshöfundurinn Sigríður
Soffía níelsdóttir. fréttablaðið/Stefán
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Sigríður Soffía vinnur að
sýningunni með Hildi Yeoman
fatahönnuði og Helga Má
Kristinssyni listamanni en
þau skipuðu hið listræna
teymi sýningarinnar Svartar
fjaðrir sem var opnunarsviðs-
verk Listahátíðar í Reykjavík
2015. Þau hlutu öll mikið lof
fyrir verkið og var Sigríður
Soffía tilnefnd til Grímunnar
2015 sem Sproti ársins og
Hildur Yeoman var tilnefnd til
Grímunnar 2015 fyrir búninga
ársins.
listrÆnt teymi
5 . n ó v e M b e R 2 0 1 5 F I M M T U D A G U R40 M e n n I n G ∙ F R É T T A b L A ð I ð
menning
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-3
7
8
C
1
6
D
6
-3
6
5
0
1
6
D
6
-3
5
1
4
1
6
D
6
-3
3
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K