Fréttablaðið - 05.11.2015, Síða 2
Safna fötum fyrir flóttafólkVeður
Austan og suðaustan 8-15 m/s, en allt að 20
m/s við suður- og suðausturströndina í dag.
Rigning um landið sunnan- og vestanvert, en
úrkomuminna um landið norðaustanvert.
Hiti 3 til 8 stig. Sjá Síðu 36
Kringlan / 588 2300
Vi
nn
us
to
fa
n
Fa
rv
i /
/
11
15
viðSkipti Icelandair hættir að kaupa
eldsneyti af N1 þegar samningur
rennur út á gamlársdag. Þetta kemur
fram í árshlutauppgjöri N1 fyrir þriðja
fjórðung. Icelandair hyggst semja við
Skeljung. Staðfestir Valgeir Baldursson,
forstjóri Skeljungs, að viðræður standi
yfir.
Í árshlutauppgjöri N1 segir að tekjur
félagsins af viðskiptum við Icelandair
á fyrstu 9 mánuðum ársins hafi verið
9,2 milljarðar króna af 39,3 milljarða
heildarsölu N1. Áhrif þessara viðskipta
við Icelandair á EBITDA félagsins eru
þó sögð óveruleg. – jhh
N1 missir sölu
til Icelandair
NýSköpuN „Mér fannst vanta nýjar
leiðir til þess að fyrirbyggja lífsstíls
tengda sjúkdóma áður en skaðinn
er skeður,“ segir Tryggvi Þorgeirsson
læknir, lýðheilsufræðingur og einn
stofnandi íslensksænska fyrirtækisins
Sidekick Health.
Á dögunum gerði Massachussetts
Generalspítalinn í Boston samning
við fyrirtækið um að nota heilsueflandi
leik fyrirtækisins, Sidekick, til rann
sóknar á lífsstílsinngripi fyrir sjúklinga
sína. Þá er fyrirtækið einnig í samstafi
við sérfræðinga í háskólunum MIT og
Harvard í Boston.
„Spítalinn hefur margoft verið val
inn besti spítali Bandaríkjanna og því
er það mikill heiður fyrir starfsfólk
Sidekick að hafa verið valið til þessa
verks,“ segir Tryggvi og útskýrir að um
ræði leikjavædda heilsueflingu sem
fólk geti hlaðið niður á síma og spjald
tölvur.
Tryggvi útskýrir að Sidekick sé ein
föld leikjavædd lausn sem gerir heilsu
eflingu skemmtilega og aðgengilega til
að ná fram varanleagum lífsstílsbreyt
ingum. „Langvinnir lífsstílstengdir
sjúkdómar, svo sem áunnin sykursýki
og hjartaog æðasjúkdómar, valda 86
prósentum af dauðsföllum í Evrópu.
Langstærsti útgjaldaliðurinn hjá heil
brigðiskerfinu í dag fer í að bregðast
við vandanum eftir að skaðinn er
skeður og er þessi lausn sett fram til
þess að fyrirbyggja sjúkdómana áður.“
Þá segir Tryggvi að aðferðafræði
Sidekicklausnarinnar byggist á
sterkum vísindagrunni. „Til dæmis
eru þrjár doktorsrannsóknir í gangi
núna í tengslum við lausnina. Rann
sóknirnar eru í samstarfi við aðila frá
Háskóla Íslands, Landspítalanum,
Karolinska Institutet í Stokkhólmi,
Harvard og MIT.“ Hann segir lausnina
einnig nýtast fyrirtækjum sem vilji
bæta heilsu starfsmanna sinna. Starfs
menn fá þá aðgang að snjallsímalausn
Sidekick sem meðal annars inniheldur
heilsutengda leiki og keppni milli
starfsmanna.
Sæmundur Oddsson læknir er annar
stofnandi Sidekick ásamt Tryggva,
en fyrirtækið var stofnað árið 2013.
„Sæmundur var þá læknir í Svíþjóð
á einu stærsta sjúkrahúsi í Evrópu
og fann fyrir því hve mikið vantaði
lausnir til að fyrirbyggja og meðhöndla
lífsstíls tengda kvilla.“
Hjá fyrirtækinu starfa ellefu manns,
meðal annars læknar, sálfræðingur,
lýðheilsufræðingur, verkfræðingar
og forritarar. „Þetta er ótrúlega öflugt
teymi og þess vegna höfum við náð
svona langt.“
Sidekick hefur þegar fengið fjár
mögnun upp á nokkur hundruð
milljónir króna í gegnum erlenda fjár
festingu og styrki, meðal annars frá
Tækniþróunarsjóði.
nadine@frettabladid.is
Samningur við besta
spítala Bandaríkjanna
Tryggvi Þorgeirsson er annar stofnenda íslensk-sænska nýsköpunarfyrirtækis-
ins Sidekick Health sem hefur samið við Massachusetts General-spítala um
notkun á heilsueflandi leik til rannsóknar á lífsstílsinngripi fyrir sjúklinga.
Leikurinn Sidekick er einföld leikjavædd lausn sem gerir heilsueflingu aðgengilega
til að ná fram varanlegum lífsstílsbreytingum. FréttabLaðið/anton brink
n1 seldi flugvélabensín fyrir 9 milljarða
á níu mánuðum. FréttabLaðið/VaLLi
MeNNtuN Menntamálastofnun
hefur birt niðurstöður úr sam
ræmdum könnunarprófum í
íslensku, stærðfræði og ensku fyrir
10. bekk sem haldin voru í septem
ber.
Munur á milli meðaltala normal
dreifðra einkunna í íslensku og
stærðfræði eykst milli ára á milli
höfuðborgarsvæðis og lands
byggðar. Munurinn milli höfuð
borgarsvæðis og landsbyggðar
kemur enn skýrar fram í hlutfalli
einstakra einkunna. Þannig er
hlutfall þeirra nemenda sem fengu
A á höfuðborgarsvæðinu verulega
hærra en á landsbyggðinni. Þetta á
við í öllum fögum. Í Reykjavík fengu
til að mynda 9,7 prósent hæfnisein
kunnina A í íslensku en aðeins 3,5
prósent í Suðurkjördæmi.
Menntamálastofnun telur mikil
vægt að bregðast við muninum á
námsárangri milli höfuðborgar
svæðis og landsbyggðar. – kbg
Fáir fá A á
landsbyggðinni
Mér fannst vanta
nýjar leiðir til þess
að fyrirbyggja lífsstílstengda
sjúkdóma áður en skaðinn
er skeður
Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsu-
fræðingur
BretlANd Í yfirlýsingu sem skrif
stofa Davids Cameron, forsætis
ráðherra Bretlands, sendi frá sér í
gær er skýrt hvers vegna flugferðir
breskra ferðalanga til Sínaískaga
hafa verið stöðvaðar. Sprengja gæti
hafa grandað rússnesku flugvélinni
og því þurfi að gæta fyllstu varúðar.
„Eftir því sem fleiri upplýsingar
koma í ljós aukast áhyggjur okkar
af því að flugvélinni gæti hafa verið
grandað með sprengju,“ segir í til
kynningunni. – kbg
Vélin gæti hafa
verið sprengd
David Cameron.. Fréttablaðið/Stefán
Fatasöfnun fyrir flóttafólk á grísku eyjunni Lesbos fer nú fram á leikskólanum Sælukoti. Síðasti dagur söfnunarinnar er föstudagurinn 6. nóvember
en söfnunin hefur gengið afar vel. Mikið af hlýjum fatnaði, flís og ull, teppum og alls konar barnafatnaði hefur borist. Flutningsmiðlunarfyrirtækið
FRAKT ætlar að leggja málefninu lið með því að standa straum af sendingarkostnaði við það sem safnast. FréttabLaðið/anton
5 . N ó v e M B e r 2 0 1 5 F i M M t u d A G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
D
6
-1
E
D
C
1
6
D
6
-1
D
A
0
1
6
D
6
-1
C
6
4
1
6
D
6
-1
B
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K