Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 48
Ása Karen fæddist þann 3. desember 1942 og ólst upp við Hofsvalla- götu í Reykjavík. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 27. október síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Ásgeirs Matthíassonar blikksmiðs og Þorgerðar Jóhönnu Magnúsdóttur húsmóður. Ása Karen á þrjár eftirlifandi systur. Ásu Karen og fyrrver- andi eiginmanni hennar, Jóhannesi Jónssyni, kaupmanni í Bónus, varð tveggja barna auðið. Þau eru Kristín og Jón Ásgeir. Barnabörn Ásu Karenar eru fimm. Útför hennar fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag 5. nóvember kl. 15.00. Með nokkrum orðum langar mig að minnast Ásu Karenar Ásgeirsdóttur, en það hefur verið í kringum 1977 eða fyrir 38 árum síðan að ég fór að venja komur mínar á heimili hennar og þeirra Jóhannesar þar sem við Jón Ásgeir urðum miklir vinir og höfum verið allar götur síðan. Ég á svo endalaust margar ljúfar minningar um Ásu, bæði heima úti á Nesi, í SS Austurveri þar sem við vinirnir unnum frá 11 ára aldri saman og ekki síst í Kjósinni, sælureit Ásu. Á árunum í Austurveri kom hún ávallt með þeim fyrstu og fór með þeim síðustu, vinnusemin og dugnaðurinn hefur allt- af einkennt hana, og þegar t.d. hugsað er út í uppgang og velgengni Bónuss mörg- um árum síðar, þegar fyrir- tækið var í uppbyggingu, þá var þáttur Ásu þýðingar- mikill í því samhengi, en hún sá þar um uppgjör og fjármál, og vann sem fyrr mjög langan vinnudag og kvartaði aldrei og hennar einkenni nutu sín þá eins og annars staðar. Fyrir mér eru einkenni Ásu, dugnaður, heiðar- leiki, hógværð, lítillæti, auðmýkt, góð- mennska, réttlætiskennd. Mörg orð, en hluti af þeim kostum sem hún skartaði. Ása var yndisleg manneskja og þrátt fyrir alvarlegt yfirbragð, var hún mik- ill húmoristi og hafði til dæmis oftast jafnvel mjög gaman af uppátækjum og fíflaganginum í okkur Jóni og vinum okkar, bæði á æskuárunum og eins eftir að við urðum fullorðnir. Um sumarið árið 2002 hófust, af öflum í þjóðfélaginu, fordæmalausar ásakanir og fjaðrafok, beint gegn fjöl- skyldufyrirtækinu og stóð það yfir í fjölda ára. Erfið fjölmiðlaumræða, óvægin, og viðkvæm. Enginn fótur reyndist síðar fyrir þessum ásökunum, sem vinur minn þurfti að verja sig fyrir og um leið fjölskylduna í áraraðir, eins og síðar kom í ljós, þegar dómar voru kveðnir upp. Þetta hafði djúpstæð áhrif, ekki síst á Ásu, sem misbauð algjörlega framferði einstakra manna sem töldu sig koma fram í nafni rétt- lætis. Hún þoldi ekki óréttlæti, hvort sem það beindist að fólkinu hennar eða öðrum. Ég held að Ása hafi aldrei jafnað sig alveg á þessu. Ég er Ásu mjög þakklátur fyrir allt. Allar samverustundir, góðmennsku hennar og umhyggju. Hún unni fólkinu sínu og hún var „Súperamma“ og naut sín í botn í kringum barnabörnin sín. Og sem dæmi, jafnvel þegar ég renndi við í Kjósinni með dóttur mína, þá fór allt á flug hjá Ásu að bæta á pönnukök- urnar og græja kakó. Þannig var hún. Ása var ávallt náin Ester, mágkonu sinni til fjölmargra ára. Ég hef líka hugsað mikið til Önnu, systur Ásu. Fyrir utan að vera tvíburasystur leyndi það sér ekki að þær voru bestu vin- konur líka. Það var eftirtektarvert, kærleikurinn og vináttan á milli þeirra alla tíð. Ég hugsa til Jóns Ásgeirs og Kristínar sem eru að kveðja báða foreldra sína á rétt rúmum tveim árum. Ég á eftir að sakna Ásu, eins og ég sakna Jóhann- esar, og bið um allan þann styrk sem systkinin, makar þeirra, barnabörnin, fjölskylda og aðrir ástvinir þurfa á að halda núna. Ég minnist Ásu Karenar Ásgeirs- dóttur með mikilli virðingu og þakk- læti. Ása var einstök og ég bið Guð um að blessa minningu hennar. Magnús Örn Guðmarsson Ása Karen Ásgeirsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Guðmundsdóttir húsmóðir, Ásgarði 4, Reykjanesbæ, lést að heimili sínu þann 20. október síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ættingjar þakka hluttekningu og samúðarkveðjur. Guðmundur Svavarsson Sigríður V. Árnadóttir Margrét Ágústsdóttir Árni Ásmundsson Skúli Ágústsson Stella M. Thorarensen barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jóhann Sigurðsson Akurgerði 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 2. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Margrét Valdimarsdóttir Einar Jóhannsson, Sigrún Jónsdóttir Hekla Jóhannsdóttir, Ágúst Sigurmundsson Einar Haukstein, Ásta Margrét, Jón Ingi, Guðrún Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta Kristinsdóttir áður til heimilis að Sólvöllum 17, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Lögmannshlíð 31. október. Sigurhörður Frímannsson Kristjana Sigurharðardóttir Gunnfríður Sigurharðardóttir Kristinn F. Sigurharðarson Kristín J. Þorsteinsdóttir Ívar E. Sigurharðarson Marta Vilhelmsdóttir Guðný Sigurharðardóttir Einar Magnússon Hörður Sigurharðarson Bryndís Jóhannesdóttir ömmu- og langömmubörn. Okkar ástkæra Ásta Ísberg Tjarnarmýri 35, Seltjarnarnesi, lést mánudaginn 2. nóvember. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Þórðarson Bróðir minn og frændi okkar, Guðmundur Þorkelsson bókbindari, Barmahlíð 51, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 29. október, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Helgi Gunnar Þorkelsson Kolbrún Guðmundsdóttir Gunnar Þorsteinsson Ingveldur Þorkelsdóttir Sigríður H. Þorsteinsdóttir Jón Ingi Guðmundsson Ástkær sambýliskona, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir, Ásgerður Garðarsdóttir Silungakvísl 6, 110 Reykjavík, lést á líknardeild LSH sunnudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Ljósið líknarfélag njóta þess. Þóroddur Stefánsson Garðar Hinriksson Hulda Jónsdóttir Ásgeir Jóel Þrúður Arna Briem Tinna Rut Þóroddsdóttir Jóhann Kröyer Halldórsson Rakel Þóroddsdóttir Blær Örn Ásgeirsson Kolka Prema Ásgeirsdóttir og systkini. Okkar ástkæri Skúli Grétar Guðnason endurskoðandi, Sólbraut 17, Seltjarnarnesi, andaðist miðvikudaginn 28. október sl. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember kl. 13.00. Kristjana Björnsdóttir Berglín Skúladóttir og Óskar Axelsson Magnús Árni Skúlason og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Þórir Magnússon bóndi, Syðri-Brekku, sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 28. október síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Þingeyrakirkju föstudaginn 6. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Sigrún Þórisdóttir Gunnlaugur Björnsson Þórkatla Þórisdóttir Jón Guðlaugsson Axel, Sveinn, Elín Eva, Eva, Ingibjörg, Þórey, Sigurður Björn, Þórir Óli, tengdabörn og langafabörn. „Við reiðum hátt til höggs og höldum tónleika annað kvöld til að minnast þess að 100 ár eru frá stofnun Karlakórsins Svana. Við erum á tánum og bíðum spennt. Svo erum við svo heppnir að fá liðsmenn, hljómsveitina Dúmbó og Steina,“ segir Viðar Einarsson sem er formaður Svana í dag. Viðar kann sögu kórsins upp á sína tíu fingur. Hún hófst á því að 10 ungir menn á Skaganum stofnuðu Svani 14. október 1915. „Stjórnandinn var kona, eins og núna, hún hét Petrea Sveins- dóttir,“ segir Viðar og tekur fram að kórinn hafi stundum tekið hlé  en blómaskeið hans hafi verið upp úr 1960 þegar Haukur Guðlaugsson hafi stjórnað honum. „Þá þóttu Svanir með betri kórum landsins.“ Lengsti lúr kórsins var frá 1983 til 2012. „Þegar gamlar upp- tökur með kórnum höfðu verið gefnar út á diski kviknaði neisti og kórinn var endurvakinn, með aðstoð Páls Helgasonar kór- stjóra. Síðan tók Valgerður Jónsdóttir við, hún  er dáð af öllum enda er mjög gaman á æfingum hjá henni,“ segir Viðar og tekur fram að tónleikarnir séu í Grundaskóla annað kvöld og hefjist klukkan 20.30. gun@frettabladid.is Valgerður er dáð af öllum Karlakórinn Svanir á Akranesi fagnar aldarafmæli  á morgun með tónleikum. Dúmbó og Steini leggja honum lið. Svanirnir og Valgerður kórstjóri ásamt hljóðfæraleikurum. Mynd/Guðni HanneSSon 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r36 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 D 6 -5 F 0 C 1 6 D 6 -5 D D 0 1 6 D 6 -5 C 9 4 1 6 D 6 -5 B 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.