Vesturbæjarblaðið - 01.04.2007, Page 9
9VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2007
Ég er orðinn of lífsreyndur til halda
því fram að einn stjórnmálaflokkur sé
óalandi og óferjandi, meðan að annar
flokkur sé hafinn yfir gagnrýni. Allir
flokkar hafa til síns máls nokkuð og
eiga erindi. Stundum meira að segja
sama erindi. Öfgarnar eru minni en
áður, ágreiningsmálin hafa þrengst og
nálgast óðum hvert annað og svo mik-
ið að maður veltir því fyrir sér, hvers-
vegna flokkum er ekki fækkað og þeim
steypt saman sem líkastir eru.
Í raun og veru má skipta pólitískri
afstöðu fólk í tvær fylkingar. Annars-
vegar eru kjósendur sem hallast til
hægri og vilja sem minnst ríkisafskipti.
Við getum kallað þá pólitík bandarísku
leiðina.
Hinsvegar standa þeir sem leggja
meiri áherslur á svokallaða félags-
hyggju, samábyrgð og jöfnuð. Norræna
leiðin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið flaggskip fyrri leiðarinnar með
frjálshyggjuna og markaðslögmálin að
leiðarljósi meðan flestir aðrir flokkar
aðhyllast einnig frelsi markaðarins en
í mismiklum mæli. Jafnaðarhugsjón-
in, norræna leiðin, er í meginatriðum
þeirra stefna. Hugsunina um jafnrétti
og bræðralag er einnig að finna með-
al margra kjósenda sjálfstæðismanna.
Íslendingar eru í eðli sínu að miklum
meirihluta jafnaðarmenn með hjartað
á réttum stað.
Hversvegna í ósköpunum er þá
svona mikill ófriður og hamagangur í
pólitíkinni, þegar flokkarnir eru meira
og minna að róa á sömu mið?
Ég get mér þess til að það sem aftrar
annars góðu fólki til að slíðra sverðin
og stokka upp úrelta flokkapólitík sé
sagan, hagsmunirnir og völdin. Í fyrsta
lagi er sagan og hefðin rík í fari okkar
Íslendinga og gildir það jafnt um stjórn-
málaflokka sem önnur félög, samtök
og tryggðarbönd. Við höldum tryggð
við gamla íþróttafélagið, skátafélagið,
kvenfélagið o.s.frv. Í öðru lagi nefni
ég hagsmunina. Fjöldi fólks hefur hag
að því að styðja tiltekinn flokk, á þar
athvarf og greiða leið að foringjum og
fyrirgreiðslu. Sú hagsmunagæsla geng-
ur jafnvel í erfðir!
Í þriðja lagi eru það völdin, sem
stjórnmálaflokkar sækjast eftir, völd-
in til að ráða og komast í nefndir og
stjórnir og að kjötkötlunum.
Já, það eru auðvitað völdin sem
lokka. Halda völdum, halda um stjórn-
artaumana. Sem allra lengst. En gallinn
við langvarandi völd er sá, að valda-
mennirnir eru misgóðir eins og gengur
og gerist um okkur flest. Og svo er hitt
að völdin spilla. Þau má vefja sér um
fingur og misnota. Völd reyna á þolrifin
að því leyti að því lengur sem þau vara
því meiri værukærð, hroki og dramb-
semi. Aðrar skoðanir eru illa þokkaðar,
gagnrýni eru ónot, andstaða eru svik.
Jú, jú allir eru jafnir en sumir eru jafn-
ari en aðrir! Hversu marga þekkjum við
sem beygja sig fyrir valdinu, hneygja
sig í duftið og koma sér í mjúkinn hjá
ráðamönnum? Undirgefni og auðmýkt.
Það eru fylgifiskarnir. Þannig sogar
valdið til sín meiri völd og sama fólkið
fer að líta á sig sem eðalborna yfirstétt
og valdið gengur í erfðir og valdsmenn-
irnir missa sjónar á þeim greinarmun
sem er á embættinu, sem þeir gegna
og sinni eigin persónu.Valdið, það er
ég, sagði keisari Lúðvík.
Enginn
gengur að
völdunum
vísum
Þetta á við
um einstak-
l i n g a m e ð
h v e r s k o n -
ar völd og
mannaforráð,
í f é l ö g u m ,
fyrirtækjum,
f lokkum og
stjórnum og ekki síst í sjálfri lands-
stjórninni. Langvarandi seta við stjórn-
völ eða nægtarborð, daglegt og árvisst
vald til að eiga síðasta orðið leiðir til
kæruleysis, geðþótta og rembu, þess
sem þar trónar. Minn er mátturinn og
dýrðin.
Þetta á við um okkur öll, alla flokka.
Það er engum hollt að sitja of lengi að
kjötkötlunum. Það er eðli lýðræðisins
og lögmál þess að aftra slíku ástandi
eða að minnsta kosti gera tilraun til að
breyta því. Til þess eru kosningar, til
þess er okkur gefið tækifæri á fjögurra
ára fresti til að skipta um fólk í brúnni,
hleypa nýjum sjónarmiðum að, nýju
fólki, þannig að enginn sé endalaust og
ævarandi að drottna yfir og ráðskast
með lifskjör okkar og væntingar. Afl-
gjafi heilbrigðs og heiðarlegs samfélags
er dómgreind okkar og réttur (jafnvel
skylda) um að halda valdhöfunum við
efnið og skipta þeim út með reglulegu
millibili. Aðhaldið felst í því að það
gangi enginn að völdum sínum vísum.
Sextán ár er langur tími.
Ellert B. Schram
Höfundur er í framboði fyrir Samfylk-
inguna í Reykjavík norður
Í aðdraganda kosninga
Ellert B. Schram
Vesturbæingar eru almennt ánægð-
ir með hverfið sitt og líður þar vel.
Reynslan sýnir að hafi fólk einhvern
tímann búið í Vesturbænum vill það
gjarnan búa þar áfram. Við höfum jú
Vesturbæjarlaugina, íþróttafélagið
okkar - KR, góða skóla, Melabúðina,
Skerjafjörðinn, göngustíginn við Ægi-
síðuna, Háskólabíó, Landakotstún-
ið, Neskirkju, okkar gróna hverfi og
svona mætti áfram telja. En alltaf má
gera betur og í þeim tilgangi stendur
hverfisráð Vesturbæjar fyrir opnum
íbúafundi mánudaginn 16. apríl nk.
kl. 20 í Safnaðarheimili Neskirkju.
Frá því að nýtt hverfisráð Vestur-
bæjar tók til starfa síðastliðið vor
hafa fjölbreytt verkefni og erindi ver-
ið á borði ráðsins. Nægir í þessu sam-
bandi að nefna skipulagsmál, leikvall-
armál og beiðnir um aðstoð við hvers
kyns uppákomur. Auk þess sem ráð-
ið hefur farið um hverfið og kynnt
sér þá starfsemi sem þar fer fram og
hafa bæði íbúar og íbúasamtök verið
dugleg við að senda ráðinu fjölmörg
erindi og ábendingar. Ber að þakka
þann áhuga og og þá umhyggju fyrir
Vesturbænum sem fram kemur í þess-
um erindum.
Hverfisráð eiga að vera vettvang-
ur samráðs íbúa, félagasamtaka,
atvinnulífs og borgaryfirvalda. Hlut-
verk þeirra er líka að stuðla að
hvers konar samstarfi innan hverfis,
móta stefnu og gera tillögur til borg-
arráðs sem varða verksvið þeirra.
Við störfum náið með Vesturgarði,
þjónustumiðstöðinni okkar hér í Vest-
urbænum. Þá á hverfisráð að stuðla
að kynningu skipulags, framkvæmda
og þjónustu borgarstofnana í hverf-
unum og beita sér fyrir að samráð sé
haft við íbúa.
Opinn íbúafundur
16. apríl
Á opna íbúafundinum 16. apríl nk.
mun undirrituð ásamt þeim Sif Sig-
f ú s d ó t t u r,
Felixi Bergs-
syni og Silju
Báru Ómars-
dóttur kynna
hverfisráðið
og störf þess
en fyrst og
fremst ætlum
við að hlusta.
H l u s t a o g
taka þátt í
u m r æ ð u m
um hvað bet-
ur má fara í hverfinu okkar. Ég hvet
Vesturbæinga til að mæta á fundinn
og taka þátt í því að gera okkar góða
hverfi enn betra.
Sæunn Stefánsdóttir
alþingismaður og formaður
hverfisráðs Vesturbæjar
Hvernig við gerum
Vesturbæinn enn betri
Sæunn Stefánsdóttir.