Vesturbæjarblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 15
KR-ingar áttu ótrúlegan enda-
sprett í lokaviðureigninni við Snæ-
fell í oddaleik félaganna sem skar
úr um það hvort félagið komist
í úrslitaleikina um Íslandsmeist-
aratitil karla í körfuknattleik. KR
vann Snæfell 76:74 í framlengd-
um spennuleik í Vesturbænum
á skírdag. Snæfell var yfir allan
tímann en Brynjar Þór Björnsson
bjargaði KR þegar hann jafnaði
með þriggja stiga skoti, 68:68, í
lok venjulegs leiktíma. KR komst
svo yfir undir lok framlengingar
og Darri Hilmarsson skoraði sig-
urkörfuna þegar tæplega hálf mín-
úta var til leiksloka. Þegar skammt
var til leiksloka stefndi allt í sigur
Snæfells sem var yfir, 66:56. KR
minnkaði muninn í 66:65 en Justin
Shouse virtist hafa tryggt Snæfelli
sigurinn þegar hann skoraði úr
tveimur vítaskotum, 68:65. KR fór
í síðustu sóknina og Brynjar jafn-
aði með erfiðu 3ja stiga skoti þeg-
ar tvær sekúndur voru eftir, 68:68.
Snæfell var yfir til að byrja með
í framlengingunni. Undir lok henn-
ar komst KR í 74:72 en Snæfell
jafnaði, 74:74. Darri skoraði úr
síðustu sókn KR, 76:74, og Snæ-
fellingar náðu ekki að skora úr
lokaskoti Sigurðar Þorvaldssonar,
en naumt var það því boltinn fór í
körfuhringinn og út á völlinn þar
sem KR-ingar náðu frákastinu.
Úrslitakeppni gegn Njarðvík
Njarðvíkingar unnu Grindavík í
hinni úrslitahrinunni um að kom-
ast í úrslitaleikina og var fyrsti
leikurinn milli Njarðvíkinga og
KR-inga sl. mánudag. Njarðvík
vann 99-78. Annar leikurinn var
í gærkvöld, síðan á laugardag og
ef úrslitakeppnin fer í fimm leiki
verður leikið næsta mánudag 16.
apríl og loks miðvikudaginn 18.
apríl. Þrjá sigra þarf til að vinna
titilinn. Í innbyrðis leikjum KR og
Njarðvík í vetur vann KR fyrri leik-
inn í KR-heimilinu sunnudaginn
19. nóvember á sl. ári 75-69 en
Njarðvík vann síðari leikinn sem
fram fór í Njarðvík 26. febrúar sl.
83-73. Það stefnir því allt í hörku-
viðureign.
15VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2007
KR-SÍÐAN
GETRAUNANÚMER
KR ER 107
Íþróttafulltrúi KR er oftast
tengiliður foreldra við félagið
Allflest íþróttafélög höfuð-
borgarinnar hafa í fullu starfi
íþróttafulltrúa, og einnig mörg
hver stærri íþróttafélaganna á
landsbyggðinni. Stefán Arnar-
son er íþróttafulltrúi KR, en því
starfi tilheyrir m.a. að sjá til þess
að allir flokkar og deildir innan
KR í öllum íþróttagreinum fylgi
íþróttastefnu ÍBR samkvæmt
þeirri námskrá sem var gefin
út fyrir hartnær 10 árum síðan.
Einnig hefur Stefán samband við
skólana á svæðinu og einnig við
sérsambönd innan ÍSÍ, þó mest
fyrir knattspyrnuna. Stefán var
íþróttafulltrúi hjá Víkingi í Foss-
voginum í 3 ár en hefur verið
síðustu þrjú árin hjá KR.
“Mitt hlutverk er m.a. að skipu-
leggja alla æfingatíma hér í íþrótta-
húsum KR og eins á gervigrasvöll-
unum fyrir alla flokka. Á sumrin
bætast svo grasvellirnir við og að
skipuleggja og sjá til þess að það
mæti dómarar á alla heimaleiki
KR í yngri flokkunum. Á síðasta
sumri voru þetta 315 leikir!
Ég kem nálægt ráðningu þjálf-
ara til félagsins í mörgum tilfellum
og ég er sá aðili sem foreldrar eiga
að hafa samband við og ræða við
þegar þeir eru ósáttir við þjálfara,
æfingafyrirkomulag eða annað.
Það er gríðarlega mikilvægt að for-
eldrar geti komið og rætt við ein-
hvern sem þekkir til sem flestra
atriða. Ég fullyrði að þeir foreldr-
ar sem hafa komið hingað til mín
og verið óánægðir hafa fengið
úrlausn sinna mála, hafa fengið
útskýringar á málum. Yfirleitt
hafa þessar kvartanir verið á mis-
skilningi byggðar, en með betra
skipulagi deilda og með betri
þjálfurunum hefur þetta batnað
mikið, þ.e. kvartanir eru ekki eins
tíðar og þær voru áður fyrr. Ég
tel hiklaust að við séum að að
gera margt gott hér, en auðvitað
getum við bætt starfið enn betur.
Stundum eru kvartanir vegna eig-
in barns frekar en að heildarhags-
mundir séu hafðir í heiðri, t.d. ef
barnið hefur þurft að sitja á vara-
mannabekknum heilu leikina og
foreldrar telja að það hafi verið
órétti beitt. Ég held að við höfum
alltaf leyst það farsællega, “ segir
Stefán Arnarson.
- Eitthvað hlýtur þó að mega bet-
ur fara, hvað er það helst?
“Við þurfum að bæta okkur
félagslega, og erum skipulega að
vinna í því. Það vantar stundum
aga í þjálfunina og við þurfum að
bæta þar úr. Það helst í hendur
við það að mér finnst að agi hjá
íslenskum börnum fari minnk-
andi, og um leið fjölgar agavanda-
málum, ekki bara innan íþrótta-
félaganna, heldur í þjóðfélaginu
öllu. Skólarnir eru þar engin und-
antekning.”
Stefán segir að því miður hafi
dregið úr heimsóknum fólks í
KR-heimilið, kannski finnist fólki
það eiga minna erindi, allt sé svo
skipulagt og vel mannað að ekki
þurfi að leggja félaginu lið. Sjálf-
boðaliðsstarf sé þó enn gríðarlega
mikilvægt en um leið og farið er
að launa störf innan íþróttafélag-
anna minnkar framboð sjálfboða-
liða en félaginu sé mikil nauðsyn á
því að fá áfram sjálfboðaliðsstarfa
til félagsins. Unnið er að því að
að taka vel á móti sjálfboðaliðum
og finna þeim starf við hæfi eða
ákveðin verkefni, en Stefán segir
að þar geti KR gert betur. Stund-
um hafi það gerst að fólk sem er
tilbúið að starfa er fljótlega kosið
í stjórn deilda eða annars, og fljót-
lega hafi hlaðist á það svo mörg
verkefni að sumir hverjir gefast
upp undan álaginu og hverfa.
Virkja þurfi alla sjálfboðaliða skyn-
samlega.
- Íþróttafélögin í Reykjavík eru
talsvert að vinna hvert í sínu
horni. Væri mögulegt að koma á
einhverju samstarfi sem gagnaðist
þeim öllum á einhvern hátt?
“Þetta hefur reyndar batnað,
en félögin gætu unnið enn betur
saman. Með tilkomu íþróttafull-
trúanna hefur sambandið batnað,
við hittumst nokkrum sinnum á
ári. Við komum því t.d. á að það
er gert hlé á knattspyrnunni á
sumrin í yngri flokkunum frá 24.
júlí til 8. ágúst, svo fólk geti skipu-
lagt sumarfríin sín og tekið börnin
sem eru að æfa á sumrin með í
ferðalög eða sumardvöl. Það var
mjög þakklátt framfaraskref.”
“Foreldrar í dag vilja helst að
börnin þeirra æfi aðeins eina
íþrótt. Ég er mjög ósammála því
enda sýna rannsóknir að um 85%
toppíþróttamanna í heiminum
voru að æfa tvær, jafnvel þrjár
íþróttir, þegar þeir voru á ung-
lingsárunum. Það er einnig mun
heilbrigðara að æfa fleiri íþrótta-
greinar en að hanga í tölvuleikjum
tímunum saman, jafnvel hvern
dag. Það hefur hins vegar ekki ver-
ið gerð nein könnun á því hvaða
íþróttagreinar falla best saman,
en það væri gaman að rannsaka
það.
Stór hluti foreldra telur ennþá
að knattspyrna skemmi fótleggi
kvenna, en það er gríðarlegur mis-
skilningur. Ég mundi hvetja þessa
foreldra til að sjá t.d. íslenska
landsliðið leika og sjá hversu
föngulegar þær eru og með falleg-
ar fætur,” segir Stefán Arnarson,
íþróttafulltrúi KR.
KR-ingar Íslandsmeistar-
ar í 7. flokki drengja
Úrslitamót í 7. flokki drengja í
körfubolta var leikið helgina 24. -
25. mars sl. í DHL-Höllinni. KR-ing-
ar unnu alla sína leiki og tryggðu
sér þar með Íslandsmeistaratitil-
inn. Þór Þorlákshöfn varð í 2. sæti
og hreppti því silfurverðlaunin.
Örvar Kristjánsson, þjálf-
ari UMFN, sagði að mótið hefði
heppnast mjög vel. Umgjörð og
dómgæsla hefði verið mjög góð
og að þarna væru mjög efnilegir
leikmenn sem gaman væri að fylgj-
ast með í nánustu framtíð Örv-
ar sagði að KR-ingar væru vel að
Íslandsmeistaratitlinum komnir
en þeir hafa leikið mjög vel í vetur
gegn sterkum andstæðingum.
Þessi flokkur, þ.e. 7. flokk-
ur drengja hjá KR, hefur unnið
Íslandsmeistaratitilinn sl. 2 ár.
Þeir hafa leikið 36 leiki í sínum ald-
ursflokki í Íslandsmóti og aðeins
tapað 2 leikjum. Mjög fjölmennur
flokkur 22 stráka er að æfa en í
sumar fer liðið til Boston í viku
æfingabúðir.
www.kr.is
Stefán Arnarson, íþróttafulltrúi KR. “Við þurfum að bæta okkur
félagslega, og erum skipulega að vinna í því. Það vantar stundum
aga í þjálfunina og við þurfum að bæta þar úr.”
KR leikur til úrslita gegn Njarðvík
KR vann toppslaginn
í 2. deild kvenna
KR vann toppslaginn gegn
Fjölni 54:46 þegar toppliðin mætt-
ust í 2. deild kvenna í körfubolta.
Þar með komust KR stúlkur upp
fyrir Fjölni en liðin eiga eftir einn
leik.
Það verður því mikill slagur á
lokasprettinum um hvort liðið
endar sem sigurvergari í 2. deild
kvenna.
Fjölnir á eftir leik gegn Snæfelli
í Rimaskóla og KR leikur gegn
Skallagrími. Báðir leikirnir fara
fram 14. apríl, þ.e. á morgun.
Aðeins eitt sæti er laust í úrvals-
deild kvenna næsta leiktímabil.
Íslandsmeistarar KR í 7. flokki. Efnilegir körfuboltastrákar sem eflaust
munu halda merki KR í körfubolta hátt á lofti á næstu árum.
Fjórir KR-ingar í
æfingahóp U-18 karla
Einar Árni Jóhannsson þjálf-
ari U-18 ára landsliðs karla í
körfuknattleik hefur valið hópinn
fyrir undirbúning liðsins fyrir
Norðurlandameistaramótið sem
fer fram dagana 16. - 20. maí nk.
Eftirtaldir leikmenn KR eru í hópn-
um:
• Pétur Jakobsson bakvörður
• Snorri Páll Sigurðsson
bakvörður
• Víkingur Sindri Ólafsson
framherji
• Örn Sigurðarson framherji
Hópurinn æfir fyrst sem um
sinn í Kennaraháskólanum en 12
manna hópur verður valinn eftir
þessar æfingar og mun svo æfa
eins og kostur er fram að móti.
Einn KR-ingur í U-16
Yngvi Gunnlaugsson landsliðs-
þjálfari U-16 stúlkna hefur valið
25 manna undirbúningshóp fyrir
Norðurlandamót sem fram fer í
maí nk. Einn KR-ingur er í hópn-
um, Þorbjörg Friðriksdóttir.
Nýliðar mfl. karla í knattspyrnu. F.v.: Henning E. Jónasson, Stefán
Logi Magnússon, Pétur H. Marteinsson, Óskar Örn Hauksson,
Jóhann Þórhallsson og Ingimundur N. Óskarsson. Á myndina
vantar Atla Jóhannsson sem var með landsliðinu á Spáni.