Allt um íþróttir - 01.07.1950, Blaðsíða 3
ALLTUM ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR DG ERLENDAR ÍÞRDTTIR
RITSTJÓRAR :
RAGNAR INGDLFSSON □ G ÖRN EIOSSDN
ÁBYRGÐARMAÐUR:
GÍSLI ÁSMUNDSSGN
1. HEFTI JLJLÍ, 195D 1. ÁRG.
UTANÁSKRIFT:
TÍMARITIÐ ÍÞRDTTIR.
VÍÐIMEL 31
SÍMI: 5□ 55 - KL. 9-11 ÁRD. -
Afrek íslenzkra íþróttamanna
undanfarin ár og þó einkum hið
síðasta og það sem liðið er af þessu,
hafa verið ærið umræðuefni meðal
almennings hér. Er það að vísu
ekki furðulegt, þar sem frammi-
staða þeirra hefur verið með mikl-
um ágætum og sér í lagi erlendis,
en þar hafa þeir varpað ljóma yf-
ir land og þjóð, sem lengi mun í
minnum haft.
Erlendis, sem hér, eru íþrótta-
mót snar þáttur í skemmtanalífi
almennings og að allra áliti holl-
ustu skemmtanimar. Verður ekki
annað hægt að segja, en að íslend-
ingar séu orðnir mjög íþróttasinn-
uð þjóð og taki af lífi og sál þátt
í sigrum og ósigrum fulltrúa sinna
á íþróttaleikvanginum. Og það er
einmitt leiðin til þess að skapa
mikla afreksmenn á þessu sviði.
Þróun og framgangur íþróttamál-
anna byggist og á því, að almenn-
ingur skilji hlutverk sitt og geri
allt, sem í hans valdi stendur til
þess að hlúa að íþróttahreyfing-
unni, þeim ' menningarauka, sem
hver og ein þjóð getur verið stolt
af að búa yfir.
Gildi íþróttanna þekkja allir og
þarf ekki lengur að eyða orðum
um það. Aftur á móti eru margir,
sem ekki kunna að meta leiki
iþróttamannanna, en einmitt leik-
imir em stærsti þáttur íþróttalífs-
ins. Vel þjálfaðir menn reyna með
sér á margs konar hátt og er geta
þeirra og hæfni auðvitað ærið mis-
jöfn. Æðsta þrá þeirra er að verða
samkeppnisfærir á erlendum vett-
vangi og komist þeir á það stig,
taka þeir þátt í keppnum sem
fulltrúar sinnar þjóðar.
Til þess að hafa gaman af þeim
keppnum, verður almenningur að
hafa greiðan aðgang að upplýsing-
um um getu erlendra íþróttamanna
og geta þannig borið saman við
árangra sinna eigin manna og
kunna ennfremur skil á góðum ár-
angri og vondum.
Það þarf varla að taka það fram,
að þetta rit er sprottið upp úr
þeim jarðvegi. Það þarf að flytja
Frh. á 2. kápusíðu.
IÞRÓTTIR
3