Allt um íþróttir - 01.07.1950, Qupperneq 7
KNATTSPYRNA:
K. R. Islandsmeistari 1950.
Fram efst eftir fyrri umferð Rvíkur-mótsins.
Snemma í vor bentu allar líkur
til, að yfirstandandi leiktímabil
yrði eitt hið viðburðaríkasta, því
að þá höfðu verið lögð drög að
þremur erléndum heimsóknum.
Því miður hefur ein heimsóknin
fallið niður, koma þýzku liðanna
á vegum Fram og Víkings, en fyr-
ir dyrum standa heimsóknir 2ja
danskra liða, Kaupmannahafnar-
liðsins KFUM á vegum Vals og
úrvalsliðs knattspymusambands
Sjálands (SBU).
í vetur var samþykkt nýtt fyr-
irkomulag allra Reykjavíkurmót-
anna. Var ákveðið að meistara-
flokksleikir skyldu fara fram á
laugardögum, hvernig sem viðr-
aði að heita má, til þess að trufla
sem minnst æfingar félaganna,
sem flest eða öll höfðu fengið dýra
þjálfara, sem ekki mundu nýtast
til fulls, ef æfingakvöld yrðu not-
uð til leikja. Þetta hefur einnig
orðið til þess að aðsókn hefur orð-
ið töluvert meiri en líkur eru til
að ella hefði orðið og verið hefur
undanfarin ár.
Fyrri umferð Reykjavíkurmóts-
ins hófst með leik KR og Víkings
23. apríl í blíðskaparveðri. Eftir
jafnan fyrri hálfleik (1:1) náði
KR yfirhöndinni og skoraði 4
mörk. Lið Víkinga hafði ekki út-
hald í fullan leik, en KR-ingar voru
í góðri æfingu og réð það bagga-
muninn.
Annar leikurinn var milli Vals
og Fram. Var það eina sinnið, sem
veðrið lék ekki við leikmenn, en
meðan á leiknum stóð var rok og
slydda. Leikurinn var heldur þóf-
kenndur, sem ekki er undarlegt,
þegar tekið er tillit til aðstæðna.
Um miðjan síðari hálfleik skoraði
Fram eina mark leiksins.
KR og Valur léku þriðja leikinn
í ágætu veðri 6. maí. Valur hélt
uppi nokkurri sókn í fyrri hálf-
leik, en tókst ekki að finna net
andstæðinganna, en í síðari hálf-
leik skipti algerlega um, því að
þá lék KR vörn Vals sundur og
saman og skoraði 4 sinnum.
Fjórði leikurinn varð enn
markaríkari en fyrsti leikurinn,
því að í honum tókst Fram að
koma knettinum 6 sinnum í netið
hjá Víking, sem ekki tókst að svara
fyrir sig nema einu sinni.
Fimmti leikurinn var eiginlega
úrslitaleikur umferðarinnar og
getur haft úrslitaáhrif á endanleg
úrslit mótsins, því að keppinaut-
amir voru ósigraðir. í fyrri hálf-
leik skoraði KR eitt mark, en í
síðari hálfleik tókst Fram að skora
tvisvar og stendur því betur að
vígi í haust, þegar síðari umferð-
in hefst.
IÞRÖTTIR
7