Allt um íþróttir - 01.07.1950, Síða 8
í sjötta leiknum tókst Val að
sigra Víking með einu marki gegn
engu og ýtti Víking niður í neðsta
sætið.
Eftir fyrri umferðina er röðin:
L U J T Mörk St.
Fram 3 3 0 0 9—2 6
KR 3 2 0 1 10—3 4
Valur 3 1 0 2 1—5 2
Víkingur 3 0 0 3 2—12 0
Fram-liðið byrjaði umferðina
heldur lélega undirbúið, úthaldinu
var mjög ábótavant. Liðið var
ekki komið í verulega æfingu fyrr
en í leiknum gegn KR. Þessu var
annan veg farið með KR-inga, því
að þeir voru í beztri æfingu síðari
helming apríl og framan af maí,
en þá fór að draga af þeim og
gekk illa að „finna“ samleikinn,
sem færði þeim sigurinn yfir Val.
Það eru því miklar líkur til, að
leik Fram og KR hefði lyktað
á annan veg, hefðu félögin mætzt
snemma í umferðinni. Valur náði
sér aldrei á strik, liðinu var í sí-
fellu breytt, til að finna árangurs-
ríka samstæðu, en allt virtist koma
fyrir ekki. Enn sem fyrr virðist
Víking ganga illa að setja bætur
á götin, sem undanfarið hafa ver-
ið á liðinu, og fyrr en það hefur
tekizt, eru litlar líkur til að þar
rofi til.
Aðeins þremur dögum eftir síð-
asta leik Reykjavíkurmótsins
hófst svo
ÍSLANDSMÓTIÐ
með leik milli
Fram (0) 0 — ÍA (0) 0.
Veður var heldur leiðinlegt,
hvasst og rigning. Leikurinn var
f jörugur og skemmtilegur, og kom
mönnum geta Akurnesinga mjög
á óvart. Veðrið var þeim í hag,
því að þótt Fram hafi undanfarið
átt skilið viðurnefnið „Börn óveð-
ursins' fyrir gengi sitt í leikjum
í hvassviðri, tókst þeim aldrei að
ná verulegum samleik, sem virð-
ist eina ráðið til að sigrast á hinu
unga, en kraftmikla og harða liði
ÍA.
KR (1) 2 — Víkingur (2) 2
Um það bil sem leikurinn hófst,
var veðurhæðin á íþróttavellinum
um 6 vindstig. Það var því engin
furða, þótt þessi leikur fyllti flokk
þeirra lélegri, sem sézt hafa hér
í vor. Með Víking lék nú Kristján
Ólafsson, sem áður lék með Fram,
og hafði hann mjög truflandi áhrif
á leik KR. Bjarni Guðnason og
Sigurður Jónsson skoruðu fyrir
Víking, en Hörður Óskarsson og
Steinar Þorsteinsson fyrir KR.
Valur (2) 2 — ÍA (1) 2
Valur hóf leikinn eins og geng-
ið skyldi strax í upphafi milli bols
og höfuðs á Skagamönnum, en
vörn þeirra er sterk og tókst henni
að halda skotmönnum Vals í skefj-
um. En þá vildu þau óhöpp til, að
hægri bakvörðurinn skoraði tvö
sjálfsmörk, en undir hléið tókst
miðframherja Þórði Þórðarsyni að
minnka muninn. Allan síðari hálf-
leikinn hélt ÍA uppi látlausri sókn,
en tókst ekki að jafna fyrr en 7
mín. fyrir lok (Pétur Georgsson).
8
ÍÞRÓTTIR