Allt um íþróttir - 01.07.1950, Qupperneq 10
KR (1) 1 — Fram (0) 0
Fyrir þennan síðasta leik móts-
ins stóðu leikar þannig, að Fram
hafði 5 stig, KR 4. Nægði Fram
því jafntefli til að stöðva KR.
Veður var ekki gott til knatt-
spymukeppni, norðan strekkingur
og kuldi. KR lék fyrst undan og
tókst eftir hálfrar stundar leik að
skora. Gerði það Hörður Óskars-
son. í síðari hálfleik náði Fram
síðan yfirtökum, en alltaf voru
örlagaríkir, þýðingarmiklir sentí-
metrar á milli bikarsins og ósig-
ursins. KR tókst að halda út, eink-
um með því að spyrna út af, til
að draga tímann á langinn (þessi
leikur var ekki frábrugðinn úr-
slitaleik íslandsmótsins 1941 að
öðru leyti en því, að andstæðingar
KR léku nú í bláum peysum, en
þá voru þær rauðar, svo keimlíkir
eru leikimir. Þetta er 13. sinnið,
sem KR hreppir titilinn. Fram hef-
ur einnig unnið hann 13 sinnum,
Valur 11 sinnum og Víkingur 2.
Lokastaða mótsins:
L U J T Mörk St.
KR 4 2 2 0 7—3 6
Fram 4 2 1 1 8—4 5
ÍA 4 0 3 1 6—7 3
Víkingur 4 1 1 2 8—11 3
Valur 4 1 1 2 5—9 —s— 3
Ulrich Jonath.
Rabbað við þýzkan íþróttamann.
Þýzki íþróttaþjálfarinn og
frjálsíþróttamaðurinn Ulrich Jon-
ath hefur dvalizt hér á landi s.l.
fimm vikur á vegum ÍR. Jonath
er yfirlætislaus og prúður og ber
það með sér, að hann er sannur
íþróttamaður. Jonath er aðeins 24
ára gamall, fæddur og uppalinn í
borginni Hamm í Vestur-Þýzka-
landi, sem er álíka stór og Reykja-
vík. Hann hefur stundað nám við
íþróttaháskólann í Köln s.l. þrjú
ár og tók mjög gott próf þaðan.
Síðan hefur hann verið þjálfari
og haft undir sinni handleiðslu
eins fræga hlaupara og Lickes,
Kremer og Pesch, en þeir hafa
hlaupið 100 m. á 10.4 og 10.5 sek.
Blaðið átti stutt viðtal við Jonath
fyrir skemmstu og fer það hér á
eftir:
— Hvernig lízt þér á ísland og
íslendinga?
10
IÞRÓTTIR