Allt um íþróttir - 01.07.1950, Side 14
Danir biðu ósigur fyrir fslendingum
í FRJÁLSÍÞRÓTTUM
Huseby 48,62. og 16,25. — Skúli 1,96. — Schibsbye fyrstur í 100 m.
Pétur Einarsson vakti mesta athygli.
Önnur milliríkjakeppnin, sem ís-
lendingar þreyta í frjálsíþróttum,
fór fram á íþróttavellinum á Mel-
unum 3. og 4. júlí s.l.
Keppt var við Dani og eins og
alþjóð er nú kunnugt, báru íslend-
ingar sigur úr býtum með 108
stigum gegn 90 stigum Dana.
Eftir setningarathöfnina hófst
sjálf keppnin, en hún var frá upp-
hafi mjög jöfn og tvísýn.
Fyrsta grein fyrri dagsins var
400 m. grindahlaup, en þar unnu
Danir tvöfaldan sigur eins og flest-
ir bjuggust við. Ingi sýndi þó góð
tilþrif.
100 metra hlaupið var mikið
„drama“ fyrir okkur íslendinga, en
þar sigraði Schibsby. Hann náði
langbeztu viðbragði og hélt for-
ustunni alla leið í mark.
Kringlukastið var mjög tauga-
æsandi og virtist sem Huseby ætl-
aði að tapa fyrir hinum bráðefni-
lega J. M. Plum, sem tvívegis sló
danska metið. En í síðasta kasti
tókst Huseby að ná forustunni á
sínu alkunna keppnisskapi.
Það var gaman, þegar 400 m.
14
hlaupið fór fram, en í því sigruðu
Guðmundur og Ásmundur með yf-
irburðum.
Fæstir bjuggust við keppni milli
Islendinga og Dana í 1500 m., en
Pétur Einarsson, okkar nýi „Ósk-
ar“, gerði þá keppni ógleyman-
lega, þó að ekki tækist honum að
„kljúfa“ Danina. Hann bætti sinn
bezta árangur um 5,4 sek. og hefði
áreiðanlega farið langt undir 4
mín. við betri veðurskilyrði.
Stangarstökkið var sérstaklega
tvísýnt og um tíma leit út fyrir
danskan sigur, en Torfa tókst að
bjarga því á síðustu stundu.
Sleggjukastið var algjör sýn-
ingargrein hjá Dönunum. Nú var
í fyrsta sinn notað svokallað „búr“
fyrir sleggjakastarana.
íslendingar unnu óvæntan en
verðskuldaðan sigur í þrístökkinu,
því að þeir yoru mikið betri. Stef-
án hefur sama og ekkert æft, og er
árangur hans því sérstakur.
Boðhlaup 4X100 m. vann sveit
íslands, þrátt fyrir frekar lélegar
skiptingar.
Eins og úrslit einstakra greina
IÞRÓTTIR