Allt um íþróttir - 01.04.1951, Qupperneq 8

Allt um íþróttir - 01.04.1951, Qupperneq 8
um gegn 7. Hann hét Emanuel Lasker og gaf Steinitz aftur 2 ár- um síðar í Moskvu tækifæri til að vinna titilinn á ný, en sigurinn varð enn meiri nú, 12 y2—4%. Eins og Lasker hefur komizt að orði, taflmaðurinn hafði sigrað hugs- uðinn. Steinitz byggði á kenningum Morphys um hraða framrás mann- anna og þýðingu tempósins fyrir sóknina, en eftir því sem honum varð ljósara eðli lokuðu staðanna, varð staðan æ þýðingarmeiri í augum hans. í skákum hans kem- um fyrst fram sá stíll, sem kall- aður hefur verið „posisjónsstíll“, þar sem hver leikur er liður í áætlun, sem ætlað er að ná ákveðnu marki og byggð er á athugunum og hugleiðingum á þörfum og kröfum stöðunnar, eða eins og eitt sinn var komizt að orði, að það sé að taka tillit til allra mann- anna á skákborðinu. Ekki er þar með sagt, að Steinitz hafi gengið fram hjá þeim þætti skákarinnar, sem áður var í hásæti, kombína- sjóninni. Hún verður liður í áætl- uninni, meðal til að ná takmark- inu. Steinitz kenndi skákheiminum að tefla í anda stöðunnar (posi- sjónelt), hann sýndi fram á mik- ilvægi peðastöðunnar, mismunar- ins á svigrúmi, algjörra yfirráða yfir þýðingarmiklum línum og fleiri atriða til að ná yfirhöndinni. En hugmyndir og kenningar hans voru of nýstárlegar fyrir sam- tímamenn hans, rólega framrás mannanna, langar ferðir riddara í byrjuninni, samfara flutningum velsettra manna, voru þeim of fjarlægar, svo að það, sem frum- legt var hjá Steinitz, var öllu fremur eignað þrákelkni og sér- vitrungshætti, en að það væri af- leiðing dýpri umhugsunar. En staðreyndirnar tala máli hans, því að hann sigraði sterk- ustu samtímamenn sína, jafnvel þótt sumir þeirra hefðu ríkari skákgáfur en hann. En strax og fram kom maður, sem tileinkað hafði sér stil og tækni Steinitz, jafnframt því sem hann hafði fram að færa eitthvað nýtt, varð Steinitz að víkja úr hásætinu. Hér kemur ein af skákum Stei- nitz, tefld í London 1876. Hv. Steinitz Sv. Blackburne RUY LOPEZ. 1. e2—e4 e7—e5 2. Rgl—f3 Rb8—c6 3. Bfl—b5 Spánski leikurinn, sem er framhald árásarinnar á e-peð svarts, er hófst með Rgl—f3. Óviturlegt væri að reyna að vinna það með BXR, því að svartur stæði betur eftir E)—d4 eða —g5. 3 .... a7—a6 4. Bb5—a4 Til er að drepa riddarann í þeim til- gangi að skapa veikan hlekk á peða- keðju svarts. 4 .... Rg8—f6 5. d2—d3 Nú orðið er venjulega reynt að leika d2—d4 við fyrsta tækifæri, en Stei- nitz kaus venjulega heldur lokað mið- borð með peð á c2, d3 og e4, til að geta undirbúið truflunarlaust sókn á kóngsarminum. 116 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.