Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 26
Ýmislegt.
Góður árangur á Sundmóti Í.R.
Keppt var í níu sundgreinum á
Sundmóti Í.R., sem fram fór í s.l.
mánuði. Mótið gekk mikið betur
og var skemmtilegra en það næsta
á undan. Það var t. d. hagræði að
sýna, hvaða riðil verið var að til-
kynna á tilkynningatöflunni, auk
þess sem aðrir starfsmenn stóðu
sig vel.
Aðeins eitt met var sett á mót-
inu, en það gerði sveit Ægis í
þrísundinu, eftir mjög harða
keppni við ÍR-sveitina. í sveit
Ægis voru: Hörður, Elías Guð-
mundsson og Ari.
Annað markvert á móti þessu
var árangur Ólafs í baksundinu,
en hann náði sínum bezta tíma,
og er vonandi, að hann og Hörður
æfi nú betur snúninginn, þá kemur
1:12.0—1:14.0 og jafnvel betra
hjá þeim báðum. Ara tókst að
sigra Pétur í skriðsundinu, eftir
mjög vel útfært sund og góða
snúninga. — Kristjan Þórisson
synti nú 200 m. í fyrsta sinn und-
ir 3 mín. og er fimmti íslending-
urinn, sem það afrek vinnur.
Úrslit urðu þessi:
50 metra skriösund kvenna:
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Á......37.8
Þórdis Árnadóttir, Á........... 39.1
100 metra baksund:
Hörður Jóhannesson, Ægi ... 1:16.3
Ölafur Guðmundsson, IR .... 1:16.9
Þórir Arinbjarnar, Ægi ...... 1:22.1
Rúnar Hjartarson, Á......... 1:22.6
100 metra bringusund kvenna:
Þórdís Árnadóttir, Á......... 1:31.2
Gréta Jóhannesdóttir, ölvfs. .. 1:36.5
100 metra skriösund:
Ari Guðmundsson, Ægi ........... 61.1
Pétur Kristjánsson, Á........... 61.6
Theodór Diðriksson, Á........... 66.5
Skúli Rúnar, IR ................ 67.5
200 metra bringusund:
Atli Steinarsson, IR ......... 2:55.1
Kristján Þórisson, Umf. Rd. .. 2:58.1
Guðmundur Guðjónsson, IR .. 3:05.0
Helgi Björgvinsson, Á......... 3:06.2
50 metra flugsund:
Hörður Jóhannesson, Ægi ........ 33.9
Elías Guðmundsson, Ægi ......... 35.0
Þorstein Löve, IR .............. 35.4
50 metra skriösund drengja:
Þórir Arinbjarnar, Ægi ......... 29.5
Þórarinn G. Þorsteinsson, Á.....30.3
Þórir Jóhannesson, Ægi ......... 30.8
3X100 metra þrísund:
Ægir A-sveit .......... (met) 3:40.0
Iþróttafélag Reykjavikur .... 3:42.2
Glímufél. Ármann, A-sveit . .. 3:50.9
Sundsamband íslands
var stofnað hér í Reykjavík 25.
febr. síðastl. Þessir voru kosnir í
stjóm þess: Erlingur Pálsson for-
maður, Logi Einarsson ritari, Úlf-
ar Þórðarson gjaldkeri. Meðstjóm-
endur Stefán Þorleifsson, Nes-
kaupstað, og Guðjón Ingimundar-
son, Sauðárkróki. í varastjórn
vom kosnir Ragnar M. Gíslason,
Reykjavík, Jón M. Guðmundsson,
Reykjum í Mosfellssveit, og Ingi
R. Baldvinsson, Hafnarfirði.
Sá fyrsti 46.0—sjötti 46.9 í 400 m.
Jafnasta og bezta 400 m. hlaup,
sem farið hefur fram, er að öllum
líkindum úrslitahlaup bandaríska
meistaramótsins, sem fór fram í
Philadelphia 29. júní 1941. Klem-
mer sigraði á 46.0 (metjöfnun),
2. Kems 46.1, 3. Bourland 46.1,
4. Diebolt 46.4, 5. Herbert 46.8,
5. Campbell 46.9!
134
IÞRÓTTIR