Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 16

Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 16
PAAVO NURMI Frægasti íþróttamaður Finnlands fyrr og síðar. Sumum finnst þetta kannske fulldjúpt tekið í árina, en þó að öll afrek Nurmi’s hafi verið máð burt af heimsmetaskránni, mun minningin um afrek hans lifa um ókomnar aldir, svo einstæð og góð voru þau. Það var árið 1919, sem Nurmi Hér sést Paavo Nurmi í víöavangs- hlaupi Olympíuleikjanna 1921/. var uppgötvaður, en með alveg sér- stökum hætti. Uppgötvunin skeði á kappleik, en ekki á hlaupabraut eða íþróttavelli, heldur kappgöngu hermanna úr finnska hemum, sem fram fer árlega úti á víðavangi. Hermennimir em látnir ganga um 20 km. leið með 10 punda sand- poka á bakinu og í fullum her- klæðum, þeir mega fara eins hratt og þeir vilja. í þessari kappgöngu var Nurmi hálfri klukkustund á undan næstá manni í mark, og þá var það sem finnskir þjálfarar fóm fyrst að veita honum athygli. Á þessu ári hljóp Nurmi 3 km. á 8:58.1 mín., 5 km. á 15:31.5 og 10 km. á 32:56.0. Næsta ár vom Ólympíuleikar, og þar var Nurmi meðal keppenda bæði í 5 og 10 km. hlaupum. Þá tók hann og þátt í víðavangshlaupi, sem þá var enn meðal Ólympíu- greina. Honum tókst að sigra í tveim síðamefndu greinunum og verða annar í 5 km. Nurmi æfði mjög mikið bæði á hlaupabraut og svo í skóglendi, eins og þolhlauparar þar í landi gera mjög mikið. Hann hafði þann einkennilega sið að hlaupa alltaf með skeiðklukku í hendinni, bæði á æfingum og í keppnum. Hann reiknaði út tímann fyrir hvern hring í hverju hlaupi og hljóp al- veg samkvæmt því. Að hans áliti varð þetta honum að miklu liði. 124 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.