Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 21

Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 21
að æfa með þeim af vanmætti 15 ára gamall og seinþroska og sýndi með flokknum vorið 1946 og næstu tvö ár. Á þessum árum gekk ég í félagið og hefi síðan keppt undir merki þess. Þá hafði ég fengið lítils háttar kynni af frjálsum íþróttum, en það byrjaði ekki vel. Vorið 1947 meiddist ég í keppni og var frá æfingum mestallt sum- arið. Auk þess var áhugi á frjáls- um íþróttum lítill á Akureyri og aðstaðan vond. Nú er hið fyrr- nefnda breytt, áhuginn mikill a. m. k. hjá íþróttamönnunum sjálf- um, en aöstaðan litlu betri. Að vísu er nú ný hlaupabraut full- gerð, sem vonandi verður góð, en ennþá vantar það, sem ég tel skipta miklu meira máli, og það eru böð og búningsklefar. Það má vel æfa íþróttir á lélegum velli eða eyrum — eins og háttar til á Ak- ureyri — ef böð eru á staðnum. Hins vegar tel ég nær frágangs- sök að þurfa að klæða sig úr á bersvæði í misjöfnum veðrum — kannske rigningu — og fara svo sveittur í fötin að lokinni æfingu. Þannig hefur aðstaðan verið á Ak- ureyri og er áreiðanlega víðar á landinu, en það sem verst er: — Þetta batnar ekkert með nýja vel- inum. Veturinn 1948—49 ákvað ég að æfa frjálsar íþróttir innanhúss og síðan hef ég litla rækt lagt við leikfimina — því miður. En fyrr- greindan vetur geisaði óvenjuleg mænuveiki á Akureyri, Akureyr- arveikin svonefnda, og tók ég hana. Ég lá í 2 mánuði, en bein áhrif veikinnar stóðu mér fyrir þrifum í hálft annað ár. Sumarið 1949 tók ég þó þátt í erfiðum keppnum og æfði eftir mætti, en framfara gætti varla, enda of geyst af stað farið. Síðustu tvo vetur hef ég átt því láni að fagna að iðka íþróttir ein- göngu undir tilsögn Benedikts Jakobssonar, og er það ómetan- legur fengur. En hver er nú árangurinn af þessu bröllti? Því er fljótsvarað, ef einhvem fýsir að vita um hann. Síðustu tvö ár hef ég verið fimm-. faldur Akureyrarmeistari í frjáls- um íþróttum eða þessum greinum: 100 og 200 m. hlaupum, langstökki þrístökki og fimmtarþraut. Það sýnir, að ég er ekki við eina fjöl- ina felldur, en spretthlaup er þó mín eftirlætisgrein. Beztum ár- angri hef ég þó ekki náð í neinni þessara greina, heldur langstökki án atrennu, 3.15 m. Tvisvar hef ég tekið þátt í keppni í fimleika- tugþraut og orðið sigursæll. Aðr- ar íþróttir stunda ég ekki að jafn- aði. Þegar penninn er kominn af stað, finn ég, að það er ýmislegt, sem ég hefði viljað minnast á hér viðvíkjandi íþróttunum, en eitt af því verður að nægja. Hér að framan minntist ég laus- lega á þá aðstöðu, sem frjáls- íþróttamenn á Akureyri og víðar á landinu búa við. Mér er hún hinn mesti þyrnir í augum. Það er reynd undanfarinna ára, að margir efnilegustu og beztu íþróttamennimir utan Reykjavík- ÍÞRÖTTIR 129

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.