Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 24
Afreksmenn í frjálsíþróttum VI:
Bœtir da Silva heimsmetið í þrístökki
í sumar?
Margir eru á móti þrístökki og
telja það skaðlegt fyrir frjáls-
íþróttamanninn. Okkar þrístökkv-
arar hafa a. m. k. fengið að kenna
á því, t. d. methafinn okkar, Stef-
án Sörensson. En ástæðan fyrir
því er eða var okkar harða braut,
sem nú hefur verið lagfærð. Hvað
um það, þó að þrístökkið sé ekki
að sumu leyti gott, er reglulega
gaman að sjá það vel stokkið,
og líklega mun það lifa á meðan
frjálsíþróttir eru iðkaðar.
Sú þjóð, sem fremst hefur stað-
ið í þessari grein, eru Japanir, en
þeir hafa tvo síðustu áratugina
átt hvem manninn öðrum betri.
Finnar, Ástralíumenn og nú síðast
Rússar hafa einnig átt góða þrí-
Arne Ahman, ölymplumeistarl
í þrístökki.
stökkvara. Þrátt fyrir mikið stökk-
veldi Bandaríkjanna eiga þeir að-
eins einn af 20 beztu þrístökkv-
urum heimsins; það er D. Aheam,
sem 1911 stökk 15.52 m.
Síðustu árin hefir árangur beztu
þrístökkvara heimsins verið frek-
ar slakur, miðað við árangur fyr-
ir stríð, en í fyrra eða um síðustu
áramót stökk Brasilíumaðurinn
Adhemar Ferreira da Silva 15.83
m. og skömmu seinna jafnaði hann
heimsmet Tajima og stökk 16.00
m. Meira að segja var eitt ógilt
stökk hans 16.03 m. mælt frá tá.
Þessi frábæri árangur, sem ekki
virðist nein tilviljun, gefur vonir
um, að vænta megi heimsmets í
þessari grein strax á næsta sumri.
f blaðaviðtali skömmu eftir 16
m. stökkið sagði da Silva, að kom-
ið gæti til mála, að hann færi til
Skandinavíu í sumar. Þar bjóst
hann jafnvel við, að hægt væri að
stökkva 16.20—16.30 m., því að
hann hafði heyrt, að þar væru
beztu aðstæðumar til frjáls-
íþróttakeppni. Ef da Silva tekst
þetta ekki, eru Ólympíuleikir
næsta ár og þar verður hann sjálf-
sagt meðal keppenda, kannske
hann bæti metið þá, eins og gert
var á leikjunum 1932 og 1936.
Eins og minnzt var á í byrjun
þessa greinarstúfs, hefur brautin
132
IÞRÓTTIR